Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1969, Page 9
Inngangur.
Introduction.
A. Tilhögun og framkvæmd aðalmanntals 1960.
Scope and execution of general census 1960.
Samkvæmt lögum íir. 4/1920, um manntal á íslandi, skal taka almennt mann-
tal um land allt 10. hvert ár, þau ár, er ártalið endar á 0. í kaupstöðum annast
bæjarstjórnin um framkvæmd manntalsins, en annars staðar prestarnir með aðstoð
hreppstjóra og hreppsnefnda. Skal skipta hverjum kaupstað og prestakalli í svo
mörg umdæmi eða hverfi, að einn maður komist á einum degi yfir að skrá alla,
sem eru á því svæði, og afia um þá þeirra upplýsinga, sem krafizt er. Teljarastarfið
er trúnaðarstarf, sem enginn getur skorazt undan, sem til þess er hæfur. Teljarar
geta ekki krafizt kaups fyrir starf sitt, en heimilt er að greiða þeim einhverja þóknun
úr hæjar- eða sveitarsjóði, ef óstæða þykir til, og þaðan greiðist annar kostnaður,
sem verða kann við framkvæmd manntalsins í kaupstaðnuin eða hreppnum. —
Teljari skal, með fáum undantekningum, fara í hvert einasta hús og liverja einustu
íbúð á sínu svæði og útfylla þar sjálfur manntalseyðublöðin cftir upplýsingum
fólksins, en frá þessu er vikið meira og minna, og raunar skortir mikið á, að sú
rækt sé lögð við manntalsskráninguna, sein þjTfti að vera.
Yið manntalið 1960 var óskað svipaðra upplýsinga og við næsta aðalmanntal
á undan. Felldar voru niður spurningar um blinda (sem höfðu ekki gefið góða raun
við manntal 1950) og um flutningsár til heimilissveitar. Bætt var við spurningum
um atvinnu í marz og júlí 1960, til þess að ljósi yrði varpað á árstíðabundna flutn-
inga milli atvinnugreina. Sem fyrr var óskað allnákvæmra upplýsinga um atvinnu
á manntalsdegi (raunar í vikunni 20.—26. nóvember — ,,nóvembervikunni“) og
voru þær spurningar nokkuð á annan veg en við manntal 1950. Þá voru og spurn-
ingar um barneign kvenna nokkuð með öðrum liætti en 1950.
Gerð var manntalsskýrsla fyrir livert liús, þar sem allir íhúar þess (heiinilis-
fastir og aðkomumenn) skyldu tilgreindir með viðeigandi upplýsingum, en á bak-
hlið eyðublaðsins skyldi svarað spurningum um húsið sjálft og íbúðir í því. Til þess
að sem gleggst mynd fáist um grundvöll aðalmanntals 1960 skal liér fyrst gerð grein
fyrir þeim almennu reglum, er giltu um útfyllingu manntalsskýrslunnar, og síðan
verða spurningar eyðuhlaðsins raktar og skýrðar nokkuð.
1. Gerð skyldi skýrsla um öll hús, er notuð væru til íbúðar, livort sem nokkur
dveldist þar á manntalsdegi eða ekki, og auk þess um alla mannabústaði, sem
fólk byggi í 1. des. 1960, þó þeir hefðu ekki verið ætlaðir til íbúðar við hyggingu.
Einnig skyldi gera skýrslu um öll íslenzk farskip og botnvörpuskip, hvar sem
þau væru hinn 1. des. 1960.
2. Manntalseyðublaðið skyldi útfyllt á sjálfan skráningardaginn, og á það skyldu
skráðir allir, sem dveldust í hverju húsi, gistihúsi, stofnunum o. s. frv. aðfarar-
nótt 1. desember, livort sem þeir ættu þar lögheimili eða ekki (sjá þó undan-