Bændablaðið - 09.07.2015, Síða 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júlí 2015
þá versnar samkeppnisstaðan. Þá
eru dönsk kúabú þau langstærstu á
Norðurlöndunum og raunar í allri
Evrópu, með rúmlega 160 kýr að
jafnaði. Á hverju meðalbúi starfa 1–2
starfsmenn auk ábúandans og því er
skiljanlegt að hefðbundnar mjaltir
henti betur.
Alls voru um áramótin 4.293
kúabú á Norðurlöndunum með
mjaltaþjóna og á þeim alls 6.894
mjaltaþjónar.
Norðurlöndin framleiða
12 milljarða kg
Eins og sést við lestur á töflu 2 þá er
mjólkurframleiðsla Norðurlandanna
nú komin yfir 12 milljarða kg á
ári en slíkt magn hefur ekki verið
framleitt á Norðurlöndunum í á
annan áratug. Sem fyrr ber dönsk
mjólkurframleiðsla af með rúmlega
5 milljarða kílóa en þar á eftir
kemur sænsk mjólkurframleiðsla
með tæplega 3 milljarða kílóa.
Tæknihópur NMSM hefur
áætlað að af þessum rúmlega 12
milljörðum kílóa mjólkur þá komi
um 3,5 milljarðar kílóa frá mjalta-
þjónabúum eða nærri 29% allrar
mjólkur. Eru þessir útreikningar
m.a. byggðir á upplýsingum um
bústærðir og meðalnyt.
Nærri 30% af kúnum mjólkaðar
með mjaltaþjónum
Þó svo að mjaltaþjónar séu á
rúmlega 16% búanna þá er ljóst
að hlutdeild þessara búa í heildar
mjólkurframleiðslunni er mun meiri
og felst skýringin á því í bústærðinni
eins og sjá má við lestur á töflu
3. Þar kemur m.a. fram að meðal
kúabúið á Norðurlöndunum er með
53 árskýr en séu mjaltaþjónabúin
dregin út fyrir sviga er myndin
töluvert önnur.
Meðalbúið sem er með
hefðbundna mjaltatækni er með
46 kýr en meðalbúið sem er
með mjaltaþjón er með 91 kú.
Mjaltaþjónabúin eru með öðrum
orðum tvöfalt stærri að jafnaði en
þau kúabú sem nota hefðbundna
mjaltatækni.
Sé svo horft til heildarfjölda
norrænna kúa, sem voru 1.398
þúsund um síðustu áramót, þá eru
nærri 28% þeirra á mjaltaþjónabúum.
Hlutfallslega flestar eru í Noregi
þar sem 33,8% allra kúa eru á
mjaltaþjónabúum.
Snorri Sigurðsson
sns@seges.dk
Ráðgjafi hjá SEGES P/S
Danmörku
Lokað frá og með
20. júlí til og með 7. ágúst
Vegna sumarlokunar
eru bændur
minntir á að panta
nautgripamerkin
tímanlega.
Starfsþjálfunar – og enduhæfingar vinnustaður
Plastiðjan Bjarg - Iðjulundur
Furuvöllum 1, 600 Akureyri.
Opnunartími:
Mánudaga – föstudaga, kl. 08.00-16.00
Sími 461-4606, Fax 461 2995
Netfang pbi@akureyri.is
Bændablaðið
Dreift í 32 þúsund eintökum
á 387 dreifingarstaði
og á yfir 5.000 býli á Íslandi
Vínræktandi í Búrgúndí-héraði
í Frakklandi, sem leggur áherslu
á lífræna ræktun, á yfir höfði sér
allt að sex mánaða fangelsi og
háa sekt fyrir að neita að úða
akra sína með skordýraeitri.
Stjórnvöld hafa fyrirskipað
vínræktendum í Búrgúndí-
héraði að úða vínekrur sínar með
skordýraeitri til að stemma stigu
við bakteríusýkingu sem herjar
á vínviðarplöntur í nágrenni
héraðsins. Rök þess sem neitar
að eitra er að það komi ekki til
greina að eyðileggja jarðveginn
með eiturefnum.
Bakterían sem um ræðir nefnist
Flavescence dorée á latínu og
drepur ungar vínviðarplöntur
og dregur verulega úr þrótti
og framleiðslugetu fullorðinna
plantna. Bakterían berst milli
plantna með skordýrum og því
talið mögulegt að hefta útbreiðslu
hennar með skordýraeitri.
Um 140 þúsund manns hafa
skrifað undir stuðningsyfirlýsingu
við bóndann auk þess sem fleiri
ræktendur í héraðinu eru líklegir
til að fylgja í fótspor hans. /VH
Lífræn ræktun:
Gæti endað í fangelsi fyrir að neita
að úða með skordýraeitri
Sýkt planta. Bakterían sem um ræðir
nefnist Flavescence dorée á latínu
og drepur ungar vínviðarplöntur
og dregur verulega úr þrótti og
framleiðslugetu fullorðinna plantna.