Morgunblaðið - 10.08.2015, Page 1
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Maður lést og annar slasaðist þegar
flugvél fórst í Barkárdal, sem liggur
inn af Hörgárdal á Tröllaskaga,
skammt vestan við Akureyri í gær.
Sá sem komst lífs af er Arngrímur
Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri
flugfélagsins Atlanta og flugstjóri.
Maðurinn sem
lést er erlendur
en ekki er hægt
að gefa upp nafn
hans að svo
stöddu. Var hann
látinn þegar flug-
vélin fannst.
Lögðu menn-
irnir tveir af stað
frá Akureyri
klukkan tvö eftir
hádegi í gær og
var lending flugvélarinnar áætluð á
Keflavíkurflugvelli klukkan 16.20.
Samhæfingarstöð ríkislögreglu-
stjóra var svo ræst klukkan 17.06 eft-
ir að ljóst varð að flugvélin hafði ekki
skilað sér til Keflavíkur.
Spurðu bændur og ferðalanga
Í kjölfarið hófst umfangsmikil leit
að vélinni þar sem lögregla, björg-
unarsveitir og Landhelgisgæslan
lögðust á eitt. Allar björgunarsveitir
Slysavarnafélagsins Landsbjargar á
Norðurlandi, Vesturlandi og Suður-
landi voru kallaðar út, en alls var um
að ræða 43 sveitir.
Við leitina voru notaðar bifreiðir,
jeppar og fjórhjól auk þess sem
menn fóru fótgangandi um leitar-
svæðin. Skimuð voru þau svæði þar
sem líklegast þótti að flugvélina
mætti finna.
Þyrla Landhelgisgæslunnar fann
vélina um klukkan 20.30 innarlega í
Barkárdal við Gíslahnúk en sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
var flak vélarinnar illa farið þegar
það fannst.
Erfitt er að komast að flakinu og
er það aðeins aðgengilegt með hjálp
þyrlu. Sigu stýrimaður og læknir úr
þyrlu Landhelgisgæslunnar að flak-
inu til að komast að mönnunum.
Arngrímur var fluttur með þyrlu
Landhelgisgæslunnar til Akureyrar
og þaðan með sjúkraflugvél til
Reykjavíkur. Ekki fengust upplýs-
ingar um líðan hans í gærkvöldi.
Vanar víðfeðmum leitum
Leitin gekk hratt og örugglega
fyrir sig að sögn Jónasar Guðmunds-
sonar, verkefnastjóra Slysavarna-
félagsins Landsbjargar.
„Við skiptum niður á leitarsvæði
og það gekk hratt og vel fyrir sveit-
irnar að sækja út á svæðin,“ segir
Jónas. Hann bætir við að björgunar-
sveitir Landsbjargar hafi áður tekið
þátt í álíka víðfeðmum leitum und-
anfarin ár og að meðlimir björgunar-
sveitanna séu vanir álaginu.
Lögðu áherslu á Tröllaskaga
„Þetta var fjölmennt og stórt við-
bragð strax í upphafi, enda ástæða
til. Lögð var áhersla á svæðið þar
sem vélin fannst að lokum vegna þess
að veðrið var þess eðlis á þeim slóð-
um. Það var því talin ástæða til að
leggja ákveðinn þunga á það en jafn-
framt var leitað á öðrum svæðum.“
Flugvélin er af gerðinni De Havill-
and Canada DHC-2 Beaver Mk1 og
getur verið útbúin til að lenda á vatni
jafnt sem landi. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins var vélin lengi í
eigu kanadíska hersins en vélarnar
þykja jafnan sterkar og áreiðanleg-
ar.
Geirþrúður Alfreðsdóttir, formað-
ur rannsóknarnefndar samgöngu-
slysa, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi að
rannsóknarstjóri væri á leið á vett-
vang. „Rannsókn á slysinu hefst um
leið og hann kemur á staðinn,“ segir
hún.
Komst lífs af úr flakinu
Erlendur maður lést í flugslysi í Barkárdal Annar var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur
Flugvélin lagði af stað klukkan tvö frá Akureyri Fannst um klukkan 20.30 innarlega í Barkárdal
Morgunblaðið/Þórður
Á Reykjavíkurflugvelli Sjúkraflugvél Gæslunnar flutti Arngrím frá Akureyri til Reykjavíkur seint í gærkvöldi.
Ö
x n
a d
a l
u
r
Hö
rg
á r
da
l u
r
Akureyri
B a r k á r d a l u r
Flugvélin fannst við Gíslahnúk
Gíslahnúkur
Morgunblaðið/Ómar
Flugvélin er af gerðinni De Havill-
and Canada DHC-2 Beaver Mk1.
Arngrímur
Jóhannsson
M Á N U D A G U R 1 0. Á G Ú S T 2 0 1 5
Stofnað 1913 185. tölublað 103. árgangur
SUMIR HÓPAR
HUNSAÐIR Í
AUGLÝSINGUM HEIM MEÐ TVÖ BRONS
LÁGMENNINGAR-
ÓPERA Á PLAYERS
Í KÓPAVOGI
LYFTINGAKAPPI 10 TRYGGVI GUNNARSSON 26VIÐSKIPTI 26
Mikill viðbúnaður var hjá lögreglu á
Kirkjuvöllum í Hafnarfirði í gær-
kvöldi. Lögreglu barst hávaðatil-
kynning seint í gær og fljótlega
önnur ábending um að maður kynni
að vera vopnaður en hvellur heyrð-
ist frá íbúð. Í kjölfarið var sérsveit
ríkislögreglustjóra kölluð á vett-
vang og var viðbúnaður mikill seint
í gærkvöldi. Skv. heimildum Morg-
unblaðsins var talið að hleypt hefði
verið af þremur riffilskotum.
„Ég sá fullt af sérsveitargaurum
hlaupa yfir hraunið að Kirkjuvöllum
7,“ sagði Kristín R. Friðriksdóttir
sem býr í hverfinu. Íbúar í hverfinu
voru margir hverjir mjög óttaslegn-
ir og sköpuðust umræður um við-
búnað lögreglu á Facebook-hópi
íbúa hverfisins.
Heyrði mjög hávært öskur
„Lögregla gengur um og bankar
á Bjarkavöllum F og G á fyrstu og
annarri hæð,“ sagði Sveinn Dal
Björnsson, íbúi í hverfinu. Maður í
íbúð fyrir ofan íbúð meints byssu-
manns sagði í umræðuþræði á
Facebook að ekki væri um skot-
hvelli að ræða heldur hefði meintur
byssumaður, sem er góðkunningi
lögreglunnar, slegið með járnstöng
í grindverk svalanna og öskrað
mjög hátt.
Þegar Morgunblaðið fór í prent-
un um hálfeitt í nótt hafði sérsveitin
ekki enn yfirbugað manninn heldur
beið átekta fyrir utan íbúðina að
sögn íbúans fyrir ofan.
Mikill viðbúnaður
sérsveitar á Völlunum
Morgunblaðið/Þórður
Lögregluaðgerð Mikill viðbúnaður hjá lögreglu og sérsveit ríkislögreglu-
stjóra á Völlunum í Hafnarfirði vegna ábendingar um vopnaðan mann.
Töldu sig heyra byssuskot Íbúum sagt að halda sig inni