Morgunblaðið - 10.08.2015, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 10.08.2015, Blaðsíða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 2015 Sumarsæla Kýrnar á Mýrum sem myndaðar voru úr lofti létu sér fátt um finnast og héldu flestar áfram að bíta gras eða hvíla sig, þó litu örfáar upp til himins í undrun. RAX Óli Björn Kárason‚ varaþingmaður Sjálf- stæðisflokksins, hefur tekið að sér að skýra og eftir atvikum verja stefnu flokks síns í heilbrigðismálum. Það er krefjandi viðfangs- efni og greinilega ekki alltaf auðvelt. Í nýj- ustu grein sinni beinir Óli Björn, sem oftar, orðum til mín og hreyfir hann nokkrum atriðum sem verðskulda málefnalega umræðu. Í greininni þarf að venju að kom- ast í gegnum allmiklar pólitískar umbúðir til að eygja hin mál- efnalegu rök höfundar. Hin illa „vel- ferðarstjórn“, sem stýrði landinu á síðasta kjörtímabili, er hrakyrt og rækilega undirstrikað hve mikið hefði verið skorið niður í heilbrigð- ismálum í ráðherratíð minni. Ekki deili ég um þetta og hef ég sjálfur margoft farið í gegnum tölfræði rík- isútgjaldanna í kjölfar efnahags- hrunsins. Satt best að segja veit ég ekki til hvaða lesenda varaþingmað- urinn er að reyna að höfða því ekk- ert af þessu er nýtt og kemur um- ræðuefni okkar um skipulag heilbrigðisþjónustunnar ekki við, að öðru leyti en því að hinn mikli nið- urskurður eftirhrunsáranna reynd- ist heilbrigðiskerfinu erfiður og dýr- keyptur og eru þó engan veginn öll kurl komin til grafar. Þegar veikleikar skapa tækifæri Ef til vill er varasamasta arfleifð þessa tíma veikleikinn sem er að finna víða í kerfinu vegna nið- urskurðar og aðhalds. Við slíkar að- stæður sjá boðendur einkalausna „tækifæri“ í stöðunni eins og Sigríð- ur Á Andersen, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, hefur opið og kinn- roðalaust bent á. Hún á lof skilið fyrir að standa keik fyrir málstað sínum að þessu leyti í stað þess að setja hann í feluliti eins og þeim hættir til að gera sem eru meðvit- aðir um hve umdeilt það er í þjóð- félaginu að innleiða markaðslögmál í heil- brigðiskerfinu. Í þessari nýjustu grein sinni vísar Óli Björn sigri hrósandi á línurit sem sýnir að framlag til sjúkrahús- anna hefur verið að aukast eftir því sem fjær dregur hruninu. Það er vel og væri vissulega óskandi að við gætum sameinast um það, hvar í flokki sem við stöndum, að veita meira fjármagn til heilbrigðiskerfisins en nú er gert. Það sem deilt er um Reyndar skil ég það svo að ágreiningurinn snúist ekki um það markmið heldur hitt hvernig fjár- munirnir verði best nýttir og á hvaða forsendum kerfið eigi að þjóna samfélaginu; þeim sem þurfa að leita til heilbrigðisþjónustunnar og síðan hvað komi þeim best sem borga brúsann. Þá skiptir og grund- vallarmáli í hvaða vasa peningarnir renna. Fyrirvarar mismunandi skoðanafylkinga um framlög til heil- brigðismála, ráðast af þessu. Þannig er ég þess til dæmis ekki fýsandi að borga mína skattpeninga til þess að „fjárfestar á velferð- arsviði“ eins og þeir eru kallaðir, geti makað krókinn. Þetta finnst markaðssinnum hins vegar ekki að þurfi að vera frágangssök enda trúa þeir því að kerfið verði afkastameira og stytti biðraðir. Ég efast stórlega um að sú yrði raunin en legg áherslu á að allt þetta þurfum við að ræða málefnalega ef við viljum veita þess- ari umræðu inn í gjöfulan farveg. Dugar skammt að fullyrða Þá verða Óli Björn og félagar líka að taka sig á því fullyrðingar um að allt verði betra fyrir tilstilli mark- aðslausna duga skammt. Þannig þyrfti Óli Björn að skilgreina með raunverulegum reynsludæmum og með hliðsjón af veruleikanum hver innistæða er að baki þeim bakföllum sem hann tekur yfir meintu skiln- ingsleysi andstæðinga sinna: „Hér skal játað að mér er það óskiljanlegt af hverju Ögmundur Jónasson og skoðanabræður hans berjast gegn því að nýta kosti einkarekstrar í heilbrigðisþjónustu. Engu virðist skipta þótt takmarkaðir fjármunir ríkissjóðs geti nýst betur og að þjónustan við landsmenn eflist, líkt og dæmin sanna. Andstaðan við einkaframtakið á sér svo djúpar rætur í huga Ögmundar að engu skiptir þótt allir séu betur settir en áður; landsmenn (sjúklingar) sem fá betri þjónustu, heilbrigðisstarfsfólk sem fær möguleika til að verða eigin herrar og eignast fjölbreyttari tæki- færi til vinnu og ríkissjóður (skatt- greiðendur) sem fær meira fyrir þá fjármuni sem lagðir eru í heilbrigð- ismál.“ Fjármagn fylgi sjúklingi Áður en vikið er að einhverjum þessara fullyrðinga – aðrar kalla á ítarlegri umfjöllum svo sem um meint frelsi og sjálfræði almennra starfsmanna á einkareknum heil- brigðisstofnunum, því ekki verða þar allir sjálfs sín herrar! – þá vil ég fara nokkrum orðum um grundvall- aratriði sem Óli Björn hreyfir við og varðar leiðir til að tryggja mark- vissa ráðstöfun fjármuna í heilbrigð- iskerfinu. Það tengist svo aftur framgangreindri framsetningu um ágæti einkarekinnar heilbrigð- isþjónustu. Samandregið þá telur Óli Björn affarasælast að láta fjármagn fylgja sjúklingi. Hann telur að þar með væri stuðlað að því að peningar rynnu þangað sem þeirra er helst þörf og væri auk þess afkastahvetj- andi fyrirkomulag. Stofnanir legðu sig betur fram um að veita tiltekna þjónustu til að ná í fjármagn og allir högnuðust fyrir vikið. Þetta kann að vera rétt svo langt sem það nær. Þeir sem stjórna framboði stýra för En þarna er líka til staðar hættan á að einstakar stofnanir fari að stýra áherslum í þróun heilbrigðiskerf- isins. Og með tilkomu fjárfesta sem hefðu auga fyrir því hvernig hrað- virkast væri að mala gullið, yrði framboð á þjónustu samkvæmt slík- um útreikningum. Ef fjármunir væru ótakmarkaðir kynni þetta að ganga, en það eru þeir ekki! Þess vegna er þörf á að byggja framþróun kerfisins á yf- irvegaðri heildarsýn. Svipuð um- ræða kom upp í kjölfar stofnunar einkaháskóla sem lögum samkvæmt höfðu sjálfkrafa tilkall ofan í buddur okkar skattgreiðenda að því til- skildu að þeir uppfylltu tiltekin skil- yrði. Auðvitað var velgengni þeirra háð eftirspurn námsmanna og var hún því ákveðinn varnagli. Sá nagli hélt hins vegar ekki þegar stefnu- mótun var annars vegar um þróun menntakerfisins og ráðstöfun á tak- mörkuðum fjármunum. Eiga læknar að keppa á grundvelli verðlags? Herða mætti á eftirspurnarþætt- inum með því að tengja hann fjár- hag notenda. Þegar örendi skatt- greiðenda þryti ættu sjúklingar þess kost að greiða úr eigin vasa. Slíkt yrði hins vegar fráhvarf frá þeirri meginhugsun sem við höfum byggt á, nefnilega þeirri að ef læknar á annað borð eru þátttak- endur í almenna sjúkratrygg- ingakerfinu þá skuli þeir vera það alla leið og ekki heimilt að smyrja ofan á greiðslur frá sjúklingum um- fram það sem gert er ráð fyrir í nið- urnjörvuðum samningum við hið op- inbera. Á Alþingi hefur sú hugsun ítrekað komið fram að heimila skuli læknum að keppast um sjúklinga á sam- keppnismarkaði, bjóða upp á til- tekna þjónustu á tilteknu verði sem þá tæki mið af framboði og eft- irspurn. Mér leikur forvitni á að vita hvort Sjálfstæðisflokkurinn vilji heimila slíkt eins og sumir þing- menn hafa talað fyrir á Alþingi. Talsmenn flokksins á borð við Óla Björn Kárason hafa ekki talað skýrt að þessu leyti. Þörf er á því að þeir geri það svo við vitum nákvæmlega hvert förinni er heitið. Kostnaðarsöm yfirbygging Gríðarlega mikilvægt era ð taka þessa umræðu nú áður en fjárfestar taka til sín stefnumótunarvaldið. Mikilvægt er að gefa sér góðan tíma til að brjóta til mergjar reynslu ann- arra þjóða. Hvað það varðar að fjár- magn fylgi sjúklingi, þá mun það til dæmis vera reynsla margra ná- grannaþjóða eða svæða innan þeirra, að slík kerfi krefjist mikillar yfirbyggingar ef þessi leið á að ganga upp. Þá má ætla að sú yf- irbygging, sem greiðandinn yrði að koma upp, væri hlutfallslega stærri þar sem einingar eru litlar, eins og hjá okkur hér á landi. Útboð heilsugæslunnar Útboð á heilsuþjónustu er annað form sem rætt hefur verið og prakt- íserað – að bjóða út þjónustu til heilsugæslu- og þjónustustöðva. Sannfærandi er að ná megi hag- stæðum kjörum á upphafsstigi slíks ferlis en mér er það ráðgáta hvernig þetta gæti tryggt hag skattgreið- enda þegar horft er til langs tíma. Þegar búið er að koma þjónustunni í hendur stórra eininga á ég erfitt með að sjá að aftur verði snúið og efnt til raunverulegs útboðs, einfald- lega vegna þess að aðrar einingar eru ólíklegar til að verða settar á laggirnar til þess að keppa við fyrri samningshafa. Útboð á tilteknum læknisverkum hafa einnig verið rædd. Þar kann eitt að gilda um þéttbýli og annað um dreifbýli. Það væri fráleitt að rústa góðri þjónustu úti á landi í anda útboðs, og halda svo að hún sé tilbúin að taka við aftur ef útboðs- takinn af einhverjum ástæðum gengur úr skaftinu. Aftur hér þarf að tala skýrar. Eftir Ögmund Jónasson » Gríðarlega mikil- vægt er að taka þessa umræðu nú áður en fjárfestar taka til sín stefnumótunarvaldið. Mikilvægt er að gefa sér góðan tíma til að brjóta til mergjar reynslu ann- arra þjóða. Ögmundur Jónasson Höfundur er fyrrverandi heilbrigðis- ráðherra. Sjálfstæðisflokkurinn tali skýrar um einkavæðingaráform sín

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.