Morgunblaðið - 10.08.2015, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 2015
SVIÐSLJÓS
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í
Snæfellsbæ, segir það aðeins tíma-
spursmál hvenær tappað verður
vatni á flöskur í sveitarfélaginu og
þvertekur fyrir
að draumurinn
um átöppunar-
verksmiðju í
sveitarfélaginu sé
úti eftir að hús-
næði átöppunar-
verksmiðju var
keypt en nýir eig-
endur hyggjast
rífa húsið niður.
„Þá veit ég
ekki hvort ég er að tala um einn
mánuð, eitt ár, tíu ár, eða tuttugu.
Allir þeir sem fylgjast með vatnsbú-
skap í heiminum átta sig á því að
þetta er að verða vandamál í mörg-
um löndum,“ segir Kristinn og bætir
við: „Forsenda alls lífs er að hafa
vatn. Alla daga er verið að tala við
okkur um vatn,“ segir Kristinn.
Voru stórhuga árið 2007
Félagið Móabyggð hefur fest
kaup á húsinu sem átti að hýsa
vatnsverksmiðju Iceland Glacier
Products í Rifi á Snæfellsnesi.
Forsvarsmenn vatnsverksmiðj-
unnar höfðu háleit markmið í fyrstu,
en hinn 15. ágúst 2007 greindi Morg-
unblaðið fyrst frá því að samningar
hefðu náðst á milli sveitarfélagsins
og IGP.
Framkvæmdir áttu þá að hefjast
stuttu síðar og átti verksmiðjan að
taka til starfa ári síðar, árið 2008, og
áttu 40 til 50 ný störf að skapast með
tilkomu verksmiðjunnar.
Flytja átti út vatn til Bandaríkj-
anna í plastflöskum og gerðu sveit-
arfélagið og verksmiðjan með sér
einkaréttarsamning til 95 ára.
Í júlí 2009 kom hins vegar babb í
bátinn þegar hæstaréttardómari í
Ontario-fylki í Kanada úrskurðaði að
félög í eigu athafnamannsins Ottos
Spork, sem var forkólfur verksmiðj-
unnar í Rifi, skyldu tekin til gjald-
þrotaskipta og í ársbyrjun 2012 aug-
lýsti þrotabú IGP til sölu verk-
smiðjuhúsið. Áður hafði samstarfs-
samningur bæjarins við fyrirtækið
runnið út þar sem það hafði ekki stað-
ið við skilyrði um framgang verksins.
Annað verksmiðjuhús ónotað
Kristinn segir það þó ekki vera
neikvætt í sjálfu sér fyrir sveitarfé-
lagið að missa þetta 8.200 fermetra
húsnæði úr sveitarfélaginu en nýi
eigandinn, félagið Móabyggð,
hyggst rífa það niður og flytja ylein-
ingar hússins til Reykjavíkur. Krist-
inn tekur þó fram að auðvitað hefði
verið best að fá starfsemi í húsið í
Rifi.
„Nei, nei. Það verður þá bara
byggt annað síðar,“ segir Kristinn
og bætir við að við ákvarðanatöku
sem þessa séu hlutirnir skoðaðir út
frá viðskiptalegum hagsmunum
sveitarfélagsins.
„Við höfum fengið töluverðar
tekjur af öllu þessu brölti, en auðvit-
að vill maður sjá það gerast að það
verði hér vatnsútflutningur og það
skapi störf í byggðinni,“ segir Krist-
inn. Vatnslagnirnar sem lagðar hafa
verið til átöppunar vatns eru til stað-
ar í Rifi og með þeim er hægt að
tappa á 90 lítrum af vatni á sekúndu
að sögn Kristins.
„Af besta vatni sem þú færð í
heiminum í dag. Við erum náttúrlega
með þetta flotta forðabúr sem er
Snæfellsjökull,“ segir Kristinn og
bætir við að þetta vatn renni nú ein-
faldlega til sjávar og að ekki sé verið
að nýta það.
Kristinn segir aðspurður að það sé
engin hindrun fyrir því að húsið
verði tekið niður en áður en það
verði gert þurfi að ganga frá nokkr-
um formsatriðum.
„Ástæðan fyrir því er að við gerð-
um samning við skiptastjóra á sínum
tíma en hann taldi að hann myndi
ekki finna kaupanda nema að það
yrði leyfður flutningur á húsinu,“
segir Kristinn.
Í Rifi stendur annað verksmiðju-
húsnæði, sem einnig átti að hýsa
átöppunarverksmiðju, autt. Að sögn
Kristins er húsið 1.100 fermetrar að
stærð en hann veit ekki hvaða áform
eru með það hús.
Fín not fyrir húsið í bænum
Sigurður Ingi Halldórsson, lög-
maður og skiptastjóri Iceland Gla-
cier Products ehf., segir að eina eign
búsins hafi verið verksmiðjuhúsið í
Rifi, sem nú sé búið að selja. Skipta-
ferlið hafi því að mestu snúist um
sölu hússins og býst hann því við að
það styttist í skiptalok.
Brynjar Þorkelsson, sem er í for-
svari fyrir Móabyggð, segir að hing-
að til hafi enginn verið tilbúinn að
nota húsið í Rifi og engin ástæða hafi
verið til þess að láta svona fínt hús
standa ónotað.
„Það eru fín not fyrir það hér í
bænum,“ segir hann en húsið verð-
ur ekki tekið niður fyrr en búið er
að ganga frá bæði frágangi í Rifi og
eins frá staðsetningu þess í bæn-
um.
Brynjar segir að líklegast sé að
húsið verði reist í heilu lagi, það eigi
þó enn eftir að skýrast og vel geti
farið svo að einingar hússins verði
notaðar á fleiri en einum stað.
Bæjarstjóri Snæfellsbæjar segir drauminn um vatnsátöppun í sveitarfélaginu ekki vera úti þrátt fyrir
að rífa eigi niður húsnæði vatnsverksmiðju í bænum Ýmsir aðilar hafa sýnt átöppun í Rifi áhuga
Niðurrif svífur yfir vötnum í Rifi
Vatnsátöppun Félagið Mófugl sem hefur fest kaup á húsnæðinu í Rifi hyggst rífa það niður og flytja einingarnar.
Átöppun á vatni í Rifi
» Félagið Iceland Glacier Pro-
ducts var stórhuga árið 2007
og ætlaði félagið að flytja vatn-
ið til Bandaríkjanna.
» Erfiðleikar komu upp í
rekstrinum og auglýsti þrotabú
ICP húsnæðið til sölu árið
2012.
» Nýr eigandi, Móabyggð, ætl-
ar að rífa húsnæðið niður og
reisa það í heilu lagi í Reykjavík
eða nýta einingar hússins öðru
vísi.
Kristinn Jónasson
Garðar Svavarsson, deildarstjóri
uppsjávarsviðs hjá HB Granda, seg-
ir að sala á makríl til Rússlands hafi
verið með venjubundnum hætti nú
fyrstu vikuna í ágúst. Þar á bæjum
séu menn ekki að láta mögulegar
aðgerðir rússneskra yfirvalda hafa
áhrif á starfseminu. Hermann Stef-
ánsson, framkvæmdastjóri Ice-
landic Pelagic dótturfélags Skinn-
eyjar-Þinganes, segir að þrátt fyrir
að ekki hafi verið selt út til Rúss-
lands í síðustu viku, hafi sala verið
góð í júli og fyrirtækið finni fyrir
auknum áhuga viðskiptamanna
sinna og vilja til þess að kaupa eins
mikið og hægt sé sem fyrst ef til
viðskiptabanns kæmi.
Mest eftirspurn eftir Makríl frá
Rússlandi hefur iðullega verið í
ágúst og september, hver dagur
getur því skipt sköpum ef til við-
skiptabanns kemur. isak@mbl.is
Rússar
vilja kaupa
sem fyrst
Venjubundin sala
fyrstu vikuna í ágúst
Makríll Makríllinn hefur selst vel.
„Góður forstjóri og góður stjórnandi
í dag miðlar upplýsingum til starfs-
manna. Hluti af nútímastjórnun er
að upplýsa fólk,“ segir Gylfi Dal-
mann Aðalsteinsson, dósent við við-
skiptafræðideild Háskóla Íslands,
um bréf Rannveigar Rist, forstjóra
álversins í Straumsvík sem sent var
öllum starfsmönnum álversins nú á
föstudaginn. „Út frá stjórnun og
samskiptum, finnst mér eðlilegt að
stjórnendur upplýsi starfsmenn um
stöðuna, hvort sem það er gert á
upplýsingafundum eða bréfleiðis,“
segir Gylfi Dalmann. Bréf Rannveig-
ar hefst á því að minnast annars
bréfs sem hún skrifaði en það var
þess efnis að ISAL ætlaði sér að
greiða ein og hálf mánaðarlaun til
starfsmanna í kjölfar hrunsins í nóv-
ember 2008 en menn hafa m.a. sagt
það ósmekklegt en Gylfi er ekki sam-
mála því. „Ef horft er á málið út frá
stjórnun, má líta á þetta sem svo að
rekstur fyrirtækisins snúist um sam-
eiginlega hagsmuni, bæði starfs-
manna og eigenda. Þegar illa gengur
hjá starfsfólki, líkt og í hruninu, þá
kom fyrirtækið og hafði hönd í bagga
með fólkinu. Nú segir forstjórinn að
illa gangi í rekstri fyrirtækisins og
eiga þá starfsmenn ekki líka að sýna
eitthvað á móti?“ segir Gylfi Dal-
mann.
Magnús M. Norðdahl, lögfræðing-
ur hjá ASÍ, segir bréfasendingar
sem þessar óvenjulegar. Samninga-
nefndir kunni að tjá sig í fjölmiðlum
eða atvinnurekendur en hann kann-
ist t.d. ekki við að stéttarfélög hafi
skrifað hluthöfum bréf eða að for-
stjórar sendi öllum starfsmönnum
bréf sem þessi. isak@mbl.is
Bréfið hluti af
nútímastjórnun
Óvenjulegt, segir lögfræðingur ASÍ
Morgunblaðið/Þórður
Straumsvík Gylfi Dalmann segir
eðlilegt að upplýsa starfsmenn.
Magnús M.
Norðdahl
Gylfi Dalmann
Aðalsteinsson
„Menn bíða enn átekta og ekkert
farið í gang varðandi undirbúning
verkfalls,“ segir Árni Stefán Jóns-
son, formaður SFR, stéttarfélags í
almannaþjónustu, en kjaraviðræður
félagsins við ríkið eru hafnar á ný hjá
ríkissáttasemjara eftir sumarfrí.
SFR er í samfloti við Sjúkraliðafélag
Íslands (SLFÍ) og Landssamband
lögreglumanna (LL) í kjaraviðræð-
unum.
Næstu fundir verða á miðvikudag
og fimmtudag. „Þar verða tekin fyrir
ákveðin sérmál sem fram koma í
kröfugerðinni okkar sem ekki var
búið að ræða í botn,“ segir Árni en
launaliðurinn bíður þess að vera
ræddur þar til niðurstaða fæst í
gerðardóm BHM við ríkið, sem
væntanlegur er 15. ágúst.
„Ég hef engar tilfinningar í þessu
hér og nú. Við sjáum bara hvernig
þetta endar með dómana, gerðar-
dóm og hæstaréttardóminn, því það
verður að vera búið að fá eitthvert
fast land undir fæturna áður en
stóru skrefin verða tekin.“
laufey@mbl.is
Kjaraviðræður
hafnar á ný hjá
SFR, SLFÍ og LL
Verkfallsundirbúningur ekki hafinn
Mál BHM gegn ríkinu verður flutt í Hæstarétti í dag og hefst klukkan
níu. Þar verður fjallað um niðurstöðu héraðsdóms í málinu sem
hafnaði kröfu BHM um að félagsmönnum þess sé heimilt að efna til
verkfalls og að ákvörðun gerðardóms ráði ekki kjörum þeirra.
BHM metur það svo að engin slík vá hafi verið fyrir dyrum í verk-
föllunum að réttlætti svo víðtæka íhlutun í stjórnarskrárvarin rétt-
indi sem lagasetningin er. „Úrlausn héraðsdóms um að heimila
ótímabundna sviptingu samningsfrelsis og verkfallsréttar fjölda
stéttarfélaga sem ekki einu sinni voru í verkfalli stenst að mati BHM
ekki stjórnskipulega meðalhófsreglu,“ segir í tilkynningu frá banda-
laginu.
Mál BHM í Hæstarétti
NIÐURSTAÐA HÉRAÐSDÓMS TIL SKOÐUNAR