Morgunblaðið - 10.08.2015, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.08.2015, Blaðsíða 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 2015 E iríkur Smith Finn- bogason fæddist í Hafnarfirði 9, ágúst 1925. Hann ólst upp í Hafnarfirði hjá móður sinni og stjúpföður ásamt sex hálf- systkinum. Fyrstu árin bjó fjöl- skyldan í Straumi en var flutt inn til Hafnarfjarðar þegar Eiríkur hóf skólagöngu. Það duldist fáum að Eiríkur var góður teiknari og áhuginn leyndi sér ekki þar sem hann var síteikn- andi. Eiríkur talar um að hann hafi notið teikningarinnar þegar hann fór í Barnaskóla Hafnarfjarðar og að þar hafi verið litið á hann sem eins konar undrabarn í teikningu. Áhugi og stuðningur kennara og fjölskyldu voru hvatning til að halda áfram á myndlistarbrautinni þó hugmyndin um myndlistarnám væri fjarlæg í huga alþýðudrengs í Hafnarfirði. Hann fór snemma að vinna og stundaði ýmis verka- mannastörf enda fátt annað í boði fyrir fullfrískan ungan mann. Teiknikompan fylgdi honum ætíð og draumurinn um að læra mynd- list yfirgaf hann ekki. Með góðra manna hjálp komst Eiríkur í kvöld- skóla í Reykjavík haustið 1939. Kennarar hans þar voru myndlist- armennirnir Finnur Jónsson og Jóhann Briem. Eftir Bretavinnu og síldarævin- týr var kominn tími til að sækja um Handíða- og myndlistaskólann. Eiríkur hóf nám við skólann haust- ið 1946 og var aðalkennari hans Kurt Zier. Þó að teiknihæfileikar Eiríks hafi ætíð vakið athygli og verið honum til framdráttar kom hann nú í umhverfi þar sem um- ræðuefnin voru önnur, hann tók að sækja myndlistarsýningar og um- gangast listafólk. Kennsla í skól- anum var um margt hefðbundin en mikil gerjun var þó í íslensku lista- lífi. Honum sóttist námið í Handíðaskólanum vel en þurfti þó frá að hverfa í nokkra mánuði og leggjast inn á Vífilsstaði vegna berkla. Á sumrin fékk hann vinnuað- stöðu í barnaskólanum í Hafnar- firði og málaði þar af kappi. Sum- arið 1948 hélt hann sýningu í Sjálfstæðishúsinu í Hafnarfirði og sannaðist þá hve vel Hafnfirðingar stóðu að baki þessum unga og efni- lega listamanni því sýningin seldist nánast upp. Nú var tækifæri fyrir Eirík til að halda utan og læra meira. Hann fékk inni í skóla Rost- rup Bøyesen í Kaupmannahöfn. og Eiríkur Smith listmálari – 90 ára Morgunblaðið/Ómar Í Hafnarborg Fjöldi verka Eiríks er varðveittur í listasafninu í Hafnarfirði. Yfirgaf ekki drauminn um að læra myndlist Að vera þátttakandi í liðsheild, sýna útsjónarsemi og gefast aldr-ei upp fyrr en í fulla hnefana var eitt af mörgu sem ég lærði íhandboltanum. Þetta er reynsla sem ég bý að og hún kemur sér vel í núverandi starfi,“ segir Karl Þráinsson, forstjóri Íslenskra aðalverktaka, sem er fimmtugur í dag. Karl Þráinsson er verkfræðingur að mennt. Nam við HÍ og fór eftir það til Þýskalands í framhaldsnám hvar áhersla var lögð á fram- kvæmdafræði; það er stjórn stórra verkefna og slíks. Þessi menntun lagði drög að framhaldinu, en Karl hóf störf hjá Íslenskum aðal- verktökum árið 1995 og hefur starfað þar síðan. Hefur þar sinnt ýms- um verkefnum og tók við forstjórastarfinu árið 2013, en hafði árin þar áður verið í stjórnendahópi fyrirtækisins. Þekktastur er Karl þó fyrir þátttöku sína í handboltanum með Víkingi og landsliði Íslands, en á tíma hans þar unnu Víkingar Íslandsmeistaratitilinn alls fimm sinnum auk annarra verðlauna. „Áhugmálin er mörg og fjölskyldan er auðvitað í fyrsta sæti. Svo get ég líka nefnt útiveru og laxveiði. Svo erum við aðeins að leika okk- ur í golfi á Grafarholtsvellinum, þó að segja verði eins og er að for- gjöfin sveiflist bæði upp og niður,“ segir Karl sem er giftur Helgu Melkorku Óttarsdóttur hrl. sem er framkvæmdastjóri lögfræðistof- unnar Logos. Þau eiga fjögur börn, Maríu 24 ára, Óttar 18 ára, Birnu 16 ára og Þráin 7 ára. Eldri sonurinn býr í Hollandi og þar er fjöl- skyldan stödd þessa dagana. sbs@mbl.is Forgjöfin í golfinu sveiflast upp og niður Karl Þráinsson er fimmtugur í dag Fjölskylda Karl Þráinsson og Helga Melkorka með börnunum sínum. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Páll Halldórsson er fæddur íReykjavík 10. ágúst 1925.Foreldrar hans voru Halldór Pálsson verkfræðingur og Sigrún Árnadóttir. Páll ólst upp á Eskifirði hjá móður sinni og seinni manni hennar, Davíð Jóhannessyni, sím- stjóra og póstafgreiðslumanni. Páll lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1947. Árið 1949 fluttist hann til Kan- ada og var þar við nám og störf næstu árin. Hann lauk BA-prófi í hagfræði við University of Toronto, Kanada, árið 1957. Páll var framkvæmdastjóri Sjálf- stæðisflokksins á Austurlandi árin 1957-1960. Hann var skattstjóri Aust- urlandsumdæmis frá 1962-1979 og deildarstjóri í fjármálaráðuneytinu frá 1980-1995. Páll var virkur í íþróttastarfi í upp- hafi blómaskeiðs frjálsíþróttastarfs á Íslandi eftir stríð. Hann var í stjórn frjálsíþróttadeildar KR 1944-1948 og formaður 1947. Formaður íþrótta- félags stúdenta 1947-1948. Í stjórn frjálsíþróttaráðs Reykjavíkur 1946, 1956 og 1962, formaður 1956 og 1962. Páll var í frjálsíþróttaliði Íslands á Ólympíuleikunum í London árið 1948. Páll hefur gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum á vettvangi Sjálf- stæðisflokksins. Hann var ritstjóri Þórs, blaðs sjálfstæðismanna á Aust- urlandi 1958-60. Páll var formaður skólanefndar Egilsstaðaskóla frá 1968 til ársins 1978. Páll hefur lengi haft brennandi áhuga á sagnfræði, sérstaklega Ís- lendingasögum. Þær hefur hann rannsakað í ofan í kjölinn sl. áratugi og ferðast á söguslóðir hér heima og erlendis, fyrst undir handleiðslu Jóns Böðvarssonar og svo með öðrum félögum í Pálnatókafélaginu. Hinn 5. október 1957 gekk Páll að eiga Ragnheiði Sturlaugs Jónsdóttur. Börn þeirra eru Gunnar (1955), Sig- rún (1958) Halldór (1959), Ragnar (1961), Kristín (1964), Sturla (1966) og Ragnheiður (1976). Páll mun verja afmælisdeginum í faðmi fjölskyldunnar. Páll Halldórsson Níræður í dag þegar þú vilt kvarts stein á borðið Blettaábyrgð Viðhaldsfrítt yfirborð Slitsterkt Bakteríuvörn Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is By Cosentino

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.