Morgunblaðið - 10.08.2015, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.08.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 2015 Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288 Kamasa verkfæri – þessi sterku Styrmir Gunnarsson bendir áað umrótið, sem fylgt hefur nýrri tækni í fjölmiðlun, hafi einkum leitt til umræðna um stöðu dagblaða og hversu lengi pappírinn yrði vettvangur um- fjöllunar um málefni líðandi stundar:    Minna hefurhins vegar verið tekið eftir því að hið hefð- bundna sjónvarp, með tímasettum dagskrárliðum dag hvern á ekki síður í tilvistarkreppu og spurning hversu lengi það heldur velli. Ný aðferð við dreifingu myndefnis, sem Netflix er kannski skýrasta dæmið um getur verið að kippa fótunum undan rekstri hefðbund- ins sjónvarps og þá ekki sízt áskriftarsjónvarps.    Fyrir helgina sagði FinancialTimes frá því að á miðviku- dag hefði verðmæti stærstu sjón- varpsstöðva í Bandaríkjunum minnkað á markaði um 37 millj- arða dollara.    Þar er um að ræða Viacom,Century Fox, Disney og fleiri sambærileg fyrirtæki. Sl. föstu- dag hafi þessi alda náð til Evr- ópu, þegar verðmæti ITV og Pro- SiebenSat.1 hafi minnkað um 6%.    Það sem kom þessu verðfalli afstað voru léleg ársfjórðungs uppgjör, sem vöktu spurningar um hvort Netflix, YouTube o.fl. væru að breyta þessum markaði í grundvallaratriðum.    Einn greinandi sagði við Fin-ancial Times að spurningin væri einvörðungu sú hvort þetta gerðist hægt og bítandi eða með hruni sem leiddi af sér öng- þveiti.“ Styrmir Gunnarsson Stóra spurningin STAKSTEINAR Veður víða um heim 9.8., kl. 18.00 Reykjavík 12 skýjað Bolungarvík 7 rigning Akureyri 9 rigning Nuuk 10 skýjað Þórshöfn 10 skúrir Ósló 18 heiðskírt Kaupmannahöfn 20 heiðskírt Stokkhólmur 22 heiðskírt Helsinki 22 heiðskírt Lúxemborg 26 léttskýjað Brussel 22 léttskýjað Dublin 20 skýjað Glasgow 17 skýjað London 26 heiðskírt París 25 heiðskírt Amsterdam 23 heiðskírt Hamborg 23 heiðskírt Berlín 27 heiðskírt Vín 36 léttskýjað Moskva 27 heiðskírt Algarve 30 heiðskírt Madríd 32 heiðskírt Barcelona 27 léttskýjað Mallorca 28 léttskýjað Róm 32 léttskýjað Aþena 27 léttskýjað Winnipeg 22 skýjað Montreal 18 alskýjað New York 26 léttskýjað Chicago 23 alskýjað Orlando 31 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 10. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:04 22:04 ÍSAFJÖRÐUR 4:52 22:25 SIGLUFJÖRÐUR 4:34 22:09 DJÚPIVOGUR 4:29 21:38 Mikill meirihluti landsmanna telur búsetustað sinn góðan fyrir sam- kynhneigða, eða nær 86% þeirra sem taka afstöðu. Þetta kemur fram í Þjóðar- púlsi Gallup. Nær 2% þeirra sem taka afstöðu telja staðinn sem þeir búa á ekki góðan fyrir búsetu samkynhneigðra og tæplega 13% telja stað sinn hvorki góðan né slæman. Rúmlega 15% aðspurðra taka ekki afstöðu. Munur var á svörum landsmanna eftir aldri. Töldu þeir sem eru 60 ára eða eldri síst að staðurinn sem þeir búa á væri góður staður fyrir sam- kynhneigða. Þá töldu íbúar höfuð- borgarsvæðisins frekar en íbúar landsbyggðarinnar að þeir byggju á stað sem væri góður fyrir búsetu samkynhneigðra. Íbúar Suður- og Norðvestur- kjördæmis voru ólíklegastir til að telja sig búa á vænum stað fyrir samkynhneigt fólk, miðað við íbúa annarra kjördæma, samkvæmt því sem fram kemur í könnuninni. Ísland gott fyrir sam- kynhneigða  60 ára og eldri skera sig úr í viðhorfi Sigrún Þuríður Geirsdóttir varð á laugardagskvöld fyrsta íslenska konan til að synda ein yfir Ermar- sund. Sundið tók 23 klukkustundir og 30 mínútur en hún lagði af stað frá Dover á suðurströnd Englands um miðnætti á föstudagskvöld að ís- lenskum tíma. Sigrún var að vonum ánægð þegar mbl.is náði tali af henni í gær. „Ég hef það andlega fínt en líkamlega er ég alveg búin á því,“ sagði Sigrún en hún kom að landi á Gris Nez-höfða í Frakklandi á tólfta tímanum að kvöldi laugardagsins. Varð sjóveik á leiðinni yfir „Munnurinn allur saltur og ég get varla hreyft hendurnar, en það lagast,“ sagði Sigrún við mbl og bætti við að hún væri rosalega stolt og ánægð. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Sigrún tekst á við Ermarsundið en hún synti í fyrra boðsund yfir sundið ásamt fjórum öðrum konum. „Ég varð sjóveik eftir að hafa synt í fimm og hálfan tíma og ég borðaði rosalega lítið. Ég lifði á kóki, jelly babies og súkkulaði í sundi og sé mat í hillingum núna,“ sagði Sigrún. Eftir að hún kláraði sundið tók við þriggja tíma sigling frá Frakklandi aftur til Dover í Englandi. Hún sat yfir Facebook-kveðjum vina og vandamanna og grét yfir stuðn- ingnum þegar mbl ræddi við hana. Synti yfir Ermarsund ein síns liðs  Sigrún Þuríður Geirsdóttir er fyrst íslenskra kvenna til að synda ein yfir Ljósmynd/Ermarsund Sigrúnar Sund Sundið tók tæplega 24 tíma.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.