Morgunblaðið - 10.08.2015, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 10.08.2015, Blaðsíða 13
Ljósmynd/Óðinn Örn Jóhannsson Ljósmynd/Óðinn Örn Jóhannsson Heimsmet Guðmundur og Teitur í sprettinum þar sem Guðmundur setti heimsmet í 250 metra skeiði á tímanum 21,49 sekúndum. FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 2015 2.495KR BRÖNS Í hádeginu laugardaga, sunnudaga og rauða daga frá 11:30 – 15:00 g e y s i r b i s t r o . i s Aðalstræti 2 517 4300 Heildarnotkun sýklalyfja í mönnum hefur minnkað lít- illega frá árinu 2012 en hjá börnum yngri en fimm ára hefur hún minnkað talsvert. Leiða má líkum að því að bólusetning hjá ungbörnum hér á landi gegn pneumó- kokkum hafi stuðlað að minnkandi notkun sýklalyfja hjá þessum hópi og einnig lækkandi sýklalyfjaónæmi hjá ákveðnum bakteríum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sóttvarnalæknis um sýklalyfjanotkun og sýklalyfjanæmi baktería í mönnum og dýrum á árinu 2014. Sambærileg skýrsla um sýklalyfjanotkun í mönnum var áður gefin út í nokkur ár þar á undan. Sýklalyfjanotkun í dýrum hefur einnig farið minnk- andi frá árunum 2010 og er hún ein sú minnsta hér á landi inna Evrópu. Tíðni kampýlóbaktersýkinga eykst Sýklalyfjaónæmi hefur almennt haldist nokkuð óbreytt hér á landi á undanförnum árum enda þótt það sé breytilegt eftir bakteríum. Salmonellusýkingar hjá mönum hafa verið nokkuð svipaðar að fjölda til og frá 2000 en tíðni kampýlóbaktersýkinga heldur aukist, segir í skýrslunni. Flestar þessara sýkinga má rekja til erlends smits og er sýklalyfjaónæmi algengara í þeim sýkingum. Sýklalyfjaónæmi iðrabaktería hjá mönum hefur þó al- mennt heldur aukist á undanförnum árum. Hvað E. coli bakteríur varðar hefur ónæmi fyrir hinum ýmsu sýkla- lyfjum haldist nokkuð óbreytt. Sýklalyfjanotkun er einn helsti áhættuþátturinn fyrir útbreiðslu ónæmra baktería og því er mikilvægt að stuðla að skynsamlegri notkun sýklalyfja. Mikill áróður hefur verið rekinn á undanförnum árum fyrir skynsamlegri og bættri notkun sýklalyfja hér- lendis. Átak í heilbrigðisumdæmum Suðurlands og Aust- urlands í bættri notkun sýklalyfja sýnir að notkunin hef- ur minnkað mikið. Segir sóttvarnalæknir að til standi að hefja átak í samvinnu við lækna á svæðum þar sem mest er ávísað af sýklalyfjum, eins og t.d. á höfuðborgarsvæð- inu. laufey@mbl.is Heildarnotkun sýklalyfja í mönnum fer minnkandi  Átak og áróður í bættri notkun sýklalyfja skilar árangri Morgunblaðið/Friðrik Lyf Skýrsla sóttvarnalæknis er um sýklalyfjanotkun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.