Morgunblaðið - 10.08.2015, Blaðsíða 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 2015
þeir í Ontario sem er vinabær og var
tekið afar vel á móti þeim. Þar voru
allskonar viðburðir og skemmtileg-
heit en síðan færði hópurinn sig til
Los Angeles þar sem setning leik-
anna fór fram 25. júlí. Merkilegast
fannst Óla að vera úti í Bandaríkj-
unum og taka þátt í stórviðburðinum
sem leikarnir eru, og að kynnast öllu
þessu fólki, bæði erlendum kepp-
endum og þeim sem voru í íslenska
hópnum.
Vann sér eldri mann í sjómann
þegar hann var 12 ára
Ár er síðan Óli var valinn til að
taka þátt í leikunum og hann hefur
æft stíft síðan. Hann æfir hjá Suðra á
Selfossi, en þeir eru fáir sem eru í
lyftingum hér í hans fötlunarflokki.
Óli segist fyrst og fremst hafa byrjað
að æfa lyftingar af einskærum áhuga
og að þessi íþrótt eigi vel við hann.
Mikil hefð er fyrir íþróttaiðkun í fjöl-
skyldu Óla, svo hann heldur heiðr-
inum og hefðinni á lofti. Afi hans, Þór-
ir Sigurðsson, var íþróttakennari og
langafi hans var enginn annar en Sig-
urður Greipsson glímukóngur. Hann
játar það sposkur á svip að honum
kippi í kynið. Auk þess eru þeir líkir,
Óli og Sigurður, eins og sjá má á
myndinni hér til hliðar af Sigurði
glímukappa ungum að árum. Óli er að
Heimkoma Stoltur með brons, og enn stoltari mamma, Ágústa Þórisdóttir.Einbeiting og kraftur Hér tekur Óli hnébeygju á leikunum, en hann lenti í fjórða sæti í þeirri grein, tók 105 kg.
Í Ólympíuhringnum Óli ásamt Vigni
Unnsteinssyni lyftingakappa og
Hlyni Áskelssyni þjálfara.
eðlisfari sterkur og kom það snemma
í ljós, rétt eins og hjá langafa hans.
Dæmi þar um er að þegar Óli var 12
ára þá vann hann sér miklu eldri
mann í sjómann.
Hann segist fyrir löngu vera
kominn fram úr mömmu sinni sem
hefur æft í líkamsræktinni, og að
hann sé orðinn sterkari en hún og fari
létt með að lyfta henni sjálfri. Óli er
sposkur á svip þegar hann upplýsir
um þetta. Móðir Óla, Ágústa Þór-
isdóttir, segir þetta hárrétt og bætir
við að hún sé afar stolt af syninum.
„Þó við leitum langt aftur í tím-
ann, þá hefur enginn í okkar ætt náð
því að keppa á slíkum stórleikum sem
Special Olympics eru, hvað þá að
koma heim með verðlaun úr slíkri
för,“ segir hún ánægð og bætir við að
þegar íslenski hópurinn kom heim og
flugvélin lenti í Keflavík þá fengu þau
flottar móttökur og heiðursvatnsboga
var sprautað yfir vélina.
Óli ætlar að halda ótrauður
áfram að æfa lyftingar enda mikil
hvatning sem felst í því að koma heim
með tvo verðlaunapeninga.
„Nú er bara að bæta sig, æfa af
kappi og gera enn betur,“ segir þessi
ungi hrausti maður sem á framtíðina
fyrir sér og mamma bætir við að hann
geti tekið þátt á mótum hér heima til
að halda sér við efnið, bæði á Íslands-
móti og Hængsmóti.
Ljósmynd/Héraðsskjalasafn Árnesinga
„Vatnið mýkir vöðva og liði og hjálpar
okkur að auka sveigjanleika okkar á
mildan hátt,“ segir á vefsvæðinu
www.wateryoga.info
Þann 13. ágúst næstkomandi verð-
ur opinn kynningartími í jóga í vatni
og kostar litlar 500 kr. inn. Til stend-
ur að hefja jógakennaranám í vatni
þann 4. september í Heilsustofnun-
inni í Hveragerði.
„Ég var hvött til að hafa kynningar-
tíma áður en það yrði, til að veita
betri innsýn inn í þennan friðsæla,
umvefjandi, milda og ljúfa heim,“
segir Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir,
jógakennari og jógískur ráðgjafi, á
vefsvæði viðburðarins.
Langar þig að prófa jóga í vatni?
Umvefjandi og
ljúfur heimur
Ljósmynd/Timothée Lambrecq
Að rölta um Viðey er alltaf góð
skemmtun og þá sérstaklega þegar
gengið er undir leiðsögn og umræðu-
efnið er matur og matarmenning.
Sagnfræðingarnir Sólveig Ólafs-
dóttir og Guðrún Hallgrímsdóttir rifja
upp landkosti eyjunnar og varpa ljósi
á margbreytilega búskaparhætti
jafnt á uppgangs- og niðurlægingar-
tímum, að því er segir í tilkynningu
um viðburðinn annað kvöld. Spáð
verður meðal annars í lifnaðarhætti
fyrstu ábúenda og eldamennsku inn-
an klausturveggja og sagt frá
ræktunartilraunum Skúla fógeta og
veislum þeirra Ólafs Stephensen
stiftamtmanns. Gangan hefst klukk-
an 19.30 við Viðeyjarstofu og er siglt
heim klukkan 21.
Gengið með sagnfræðingum um Viðey annað kvöld
Skyggnst í
matarkistuna
Morgunblaðið/Kristinn
Langafi Óla er glímukóngurinn Sigurður Greipsson
í Haukadal í Biskupstungum. Hann vakti snemma á
sér athygli sem íþróttamaður, mikill glímukappi og
æskulýðsfrömuður. Sigurður var byrjaður að glíma
10 ára gamall en þeir sem unnu að byggingu kon-
ungshúsanna á Geysi og við brúargerð á Tungu-
fljóti höfðu glímuæfingar á kvöldin eftir
vinnu. Sigurður tók þátt í æfingunum og
glímdi við fullvaxna menn. Stundum voru
samkomur við Geysi og þá var glímt. Sig-
urður keppti fyrst opinberlega í glímu 13
ár gamall og stóð hann sig svo vel að hinir
eldri og reyndari glímumenn áttu fullt í
fangi með að verjast brögðum hans og
fimi. Var honum þar strax spáð miklum
glímuframa.
Árið 1922 fór Sigurður fyrst fram í glímukeppni um Grettisbeltið, sigr-
aði þar og fékk sæmdarheitið Glímukóngur Íslands. Grettisbeltið vann
Sigurður aftur 1923 og var nafn hans á hvers manns vörum. Aftur vann
Sigurður Íslandsglímuna 1924, 1925 og 1926 og bar höfuð og herðar yfir
aðra glímumenn landsins. Sigurður keppti einnig í frjálsíþróttum og var
þátttakandi á árunum 1921-1923 á Allsherjarmóti ÍSÍ við góðan orðstír.
Sigurður stofnaði Íþróttarskólann í Haukadal árið 1927 sem hann rak
ásamt eiginkonu sinni Sigrúnu Bjarnadóttur samfellt í fjörutíu og þrjú ár.
(Af vefsíðunni www.hotelgeysir.is)
LANGAFINN SIGURÐUR GREIPSSON GLÍMUKÓNGUR
Íþróttaáhuginn í blóðinu
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383
Hjarta úr hvítagulli
25 punkta demantur
99.000,-
Gullhálsmen
Handsmíðað 14K, 2 iscon
26.000,-
Demantssnúra
30 punkta demantur, 14K
157.000,-
Demantssnúra
9 punkta demantur, 14K
57.000,-
Gullhringur
Handsmíðaður 14K, 2 iscon
45.700,-
Morgungjafir í miklu úrvali