Morgunblaðið - 10.08.2015, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.08.2015, Blaðsíða 12
Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Það var alveg geggjað. Við vorum bæði alveg svakalega slök. Eftir hraðabreytingarnar sá ég að ég gæti orðið heimsmeistari og hugsað með mér, vá þá er eins gott að vanda sig á yfirferðinni,“ segir Kristín Lárus- dóttir hlæjandi nýkrýndur heims- meistari í tölti á Þokka frá Efstu- Grund á Heimsleikum íslenska hestsins í Herning í Danmörku þeg- ar hún lýsir því hvernig hafi verið að ríða úrslitin í tölti. Kristín gerði sér lítið fyrir og sigr- aði í töltkeppninni með yfirburðum. Hún lagði að velli enga aukvisa held- ur m.a. margfaldan heimsmeistara í tölti, Jóhann Skúlason, sem varð í fjórða sæti og Sigurbjörn Bárðarson sem vart þarf að kynna en hann end- aði í því fimmta. Kristín er búsett í Syðri-Fljótum við Kirkjubæjarklaustur og er einn- ig sauðfjárbóndi samhliða því að reka hrossaræktarbú og tamn- ingastöð. Það má segja að Kristín hafi farið fjallabaksleiðina inn í íslenska liði en hún var valin sem aukaknapi inn í liðið eftir að knapinn Sigurður Sig- urðarson gaf eftir sæti sitt sem hann hafði unnið sér inn. „Ég hafði aldrei spáð í það beint að fara á heims- meistaramót, svo lét ég vaða í vor og þetta er niðurstaðan,“ segir Kristín og vísar til úrtökunnar sem knapar þreyta til að komast inn í landsliði. Hún segist þó alltaf hafa vitað hversu mikill gæðingur Þokki er en hann hafi sýnt miklar framfarir síð- ustu ár. Hún lýsir honum sem sér- stökum karakter, og segir að hann hafi ekki alltaf verið auðveldur. „Hann er búinn að temjast svaka- lega mikið, sérstaklega í dag. Ég get orðið riðið með fána og alls kyns jóla- skraut,“ segir hún og hlær og vísar til verðlaunanna sem eru hengd bæði á hesta og knapa eftir úrslit. Þegar símtalinu var að ljúka til Danmerkur segir hún hlæjandi: „Er ekki gott fyrir Ísland að kona vinni eitt gull, ég er ekki viss um að það hafi gerst áður. Er ekki líka 100 ára kosningaafmæli kvenna í ár? Þetta er mikið karlasport hér heima þó að þetta sé öðruvísi í hinum löndunum.“ Þrjár konur voru í íslenska landslið- inu í ár, auk hennar þá kepptu tvær sem ungmenni á mótinu. Íslensku hestarnir sem fara úr landi mega ekki koma aftur heim til Íslands og eru þeir flestir nú þegar seldir. Þokki fer til Þýskalands eftir mótið og Kristín verður því að finna annan hest sem hún teflir fram eftir tvö ár í Hollandi þar sem næstu Heimsleikar verða haldnir. Kristín viðurkennir að það verði sárt að kveðja Þokka. Líklega má segja að svipaðar tilfinningar brjótist um í flestum öðrum íslenskum knöpum. Sprungu út á réttum tíma „Það var ánægjulegast að sjá hversu margir sprungu út á réttum tíma á meðan á mótinu stóð. Það var gríðarlega mikil fagmennska hjá liðinu og jákvæðni,“ segir Páll Bragi Hólmarsson, liðsstjóri ís- lenska liðsins. Hann er mjög ánægður með árangurinn á mótinu. Hann segir það hafi verið sér- staklega skemmtilegt að horfa á úr- slitin í tölti þar sem Íslendingar áttu þrjá fulltrúa. „Það var skemmtilegt að sjá í raun tvo Ís- landsmeistara keppa í úrslitum í tölti á svona móti en það gerist ekki svo oft,“ segir Páll og vísar til Kristínar og Sigurbjörns en á síðast Íslandsmóti voru þau bæði jöfn að stigum en Sigurbjörn vann þegar þeim var raðað eftir sætaröð. Spennandi skeiðkeppni Skeiðkeppnin var mjög spennandi en heimsmet féll í 250 metra skeiði. Það var Guðmundur Einarsson og Sproti frá Sjávarborg sem hlupu á 21,49 sekúndum í spretti með Teiti Árnasyni og Tuma. Guðmundur jafnaði heimsmetið í skeiði í þessum spretti en í sömu umferð hafði Sören Madsen og Hárekur frá Hákoti farið á sama tíma 21,49. Guðmundur varð heimsmeistari því hann hafði betri annan tíma. Tímabært að kona vinni gullverðlaun Ljósmynd/Óðinn Örn Jóhannsson Gull Glóðafeykir frá Halakoti og Daníel Jónsson sem var efsti stóðhesturinn í flokki 7 vetra og eldri með 8,74 í aðaleinkunn og 9,03 fyrir hæfileika. Ljósmynd/Óðinn Örn Jóhannsson Heimsmeistari Guðmundur Björgvinsson í fjórgangi á Hrímni frá Ósi.  Fagmennska og jákvætt lið Töltkeppni Heimsmeistar- inn Kristín Lárusdóttir og Þokki frá Efstu-Grund og Sigurbjörn og Jarl. 12 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 2015                                     Heimsleikar íslenska hestsins í Herning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.