Morgunblaðið - 10.08.2015, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 10.08.2015, Blaðsíða 27
MENNING 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 2015 lega dautt? Ef svo er þá drápum við það sjálf. En með því að skrifa um það sem í gangi er núna, vinna það sjálfur þá alla vega er hægt að segja eitthvað um heiminn í kringum mann. Það er hægt að reyna að hafa rödd og hafa áhrif á alla vega þessa þrjá sem nenna að koma og sjá sýn- ingarnar manns.“ Þá er Tryggvi sannfærður um að enginn verði ríkur á leikhúsi á Ís- landi og því sé eins gott að hafa gam- an af því og hafa ástríðu fyrir starf- inu. „Ef þú hefur ekki ástríðuna fyrir leikhúsinu og ert ekki að njóta þess að setja upp sýningar er allt eins hægt að finna sér níu til fimm vinnu sem í alla staði er þægilegri, fjölskylduvænni og á heildina litið gáfulegri. En þar sem maður á annað borð fæddist með þá bölvun að þurfa að tjá sig í gegnum eitt- hvað sem manni finnst fallegt þá er eins gott að fylgja þeirri sannfær- ingu.“ Stofnanavætt Þjóðleikhús Spurður hvort opinberu leikhúsin séu ekki að standa sína plikt fyrir listamenn og skáld og þá sér- staklega leikhús þjóðarinnar – Þjóð- leikhúsið – í ljósi þess að Tryggvi kýs að setja upp sýningar á eigin vegum, segir hann það vera eldfima spurningu. „Ég myndi auðvitað segja já og amen ef ég fengi tækifæri í stofn- analeikhúsunum. Það er jú ákveðin gleði fólgin í því að fá greitt fyrir vinnu sína og geta borgað öðrum listamönnum fyrir sína frábæru vinnu. En það er ekki gefins. Þetta eru tvö og hálft stofnanaleikhús sem geta ráðið mann í vinnu, og svo sjálf- stæða senan þar sem blóðið er kreist úr steininum. Leikhúsið er svo lítill vinnustaður að ef einhver gagnrýnir toppana opinberlega þá er sá hinn sami að útiloka það að fá greitt fyrir vinnu sína. Það er ekki eðlilegt vinnuumhverfi fyrir listamann og ég held að þetta sé stærsta vandamál leikhússins í dag. Við erum allt of hrædd við að gagnrýna og hafa hátt. Það virðist til dæmis enginn hafa sett spurningarmerki við það, alla vega opinberlega, að mennta- málaráherra hafi valið nýjan list- rænan stjórnanda yfir Þjóðleikhúsið sem áður var framkvæmdastjóri þess og skilaði því starfi með tug- ef ekki hundraða milljóna tapi. Hann hefur heldur ekki leikstýrt eða leikið svo neinu nemi lengi, mér vitandi. Ráðning hans splundraði þjóðleik- húsráði en það er bara eins og öllum sé sama. Fólki var heitt í hamsi á kaffistofunum og á barnum, en op- inberlega ríkti æpandi þögn,“ segir Tryggvi og bendir á að einnig megi færa rök fyrir því að leikhúsið sé á góðum stað. „Kannski er þetta bara róm- antískt röfl hjá mér. Það má alveg færa rök fyrir því að leikhúsið á Ís- landi sé á afskaplega góðum stað. Margir tugir þúsunda kaupa miða og áskriftarkort á ári hverju og þrátt fyrir stöðugan niðurskurð þá framleiðum við enn stórar sýningar. En það sem svíður er að ég veit að við getum gert svo miklu betur. Við erum einfaldlega allt of rög.“ Þá vísar Tryggvi til þess sem Ari Matthíasson, nýráðinn þjóðleik- hússtjóri, sagði fyrir nokkrum árum á norrænu leiklistarmálþingi að nær öll handrit sem Þjóðleikhúsið fengi væru rusl. „Það getur einfaldlega ekki verið og lýsir mjög brengluðu sjónarmiði eins valdamesta manns íslenskrar leikhússenu. Svo eru þau innlendu stykki sem þó þykja nógu góð til að rata á sviðið nær ávallt beinar leik- gerðir, eða realískt fjölskyldudrama eftir sömu gömlu formúlunni þar sem rétt fæst nægt fjármagn fyrir fjóra leikara á litla sviðinu. Á meðan er öllu til tjaldað í afdankaða gamla breska söngleiki, eða 50 ára gömul amerísk verk. Hvar er tengingin við raunveruleikann? Og hver er gredd- an í því? Og það hefur ekkert með aldur að gera, bara ástríðu og hug- rekki.“ Ópera á Players í Kópavogi Eitt af verkum Tryggva sem núna er í vinnslu og á örugglega eftir að vekja töluverða athygli er lágmenn- ingaróperan Björninn eftir Willam Walton. Af öllum stöðum sem hægt er að setja upp óperu kemur skemmtistaðurinn Players kannski síst til greina. Af hverju ekki að vinna verkið í Hörpu og fá Sinfón- íuhljómsveit Íslands til að spila? „Ef Sinfó vill koma og spila með okkur þá yrði það sem blautur draumur. Ég elska Hörpu og Sin- fóníuhljómsveitina, en ég held að það sé líklegra að Íslenska óperan ráði Gylfa Ægis til að leikstýra en mig,“ segir Tryggvi. „Það hentar mér ágætlega að vera á Players, eins mikið og ég skammast mín fyrir að viðurkenna það þá finnst mér hefðbundin ópera vera guðdómlega leiðinleg. Ég segi þetta hér og á á hættu að verða fyrir óendanlegri andúð söngvaranna minna. En hún er það. Sérstaklega á Íslandi þar sem formið virðist vera staðnað. Þetta hljómar kannski hrokafullt, en ég leyfi mér að kasta þessu fram því ég tek það skýrt fram er að ég veit ekkert um óperur,“ segir hann hlæj- andi. „Ég veit bara hvað mig langar að sjá á sviði, og hvernig ég vil að talað sé til mín. Þess vegna vildi ég og allur hópurinn minn taka óp- eruna langt út fyrir þægindaramm- ann og setja skýr formerki þess efn- is að þetta er ekki hefðbundin ópera þar sem það tekur fólk í íburð- armiklum kjólum 15 mínútur af aríu að deyja í rauðu ljósi.“ Að æfa Björninn hefur verið ótrú- lega skemmtilegt að sögn Tryggva sem segir að hann og hópurinn leyfi sér að vera barnslega einlæg miðað við hversu heimskulegur söguþráð- urinn er. Og það má lesa það milli línanna að Tryggvi vill fyrst og fremst hafa gaman af uppsetning- unni og hefur húmor fyrir sjálfum sér og verkinu. „Tónlistin er stórkostleg, en það er óhætt að segja að söguþráðurinn sé það ekki. En okkur hefur tekist að snúa rússneska herragarðinum upp í hóruhús á stríðstíma og lauma þarna inn hesti í latex-búningi og þar fram eftir götunum. Það er svo skemmtilegt að fá þennan kontrast í verkið, fegurð tónlistarinnar á móti groddaskap sviðsetningarinnar.“ Þá er markmiðið í anda Tryggva, þ.e. að gera eitthvað subbulega skemmtilegt. „Miðað við hversu gaman við höfum af þessu þá held ég að þau sem leggja á sig ferðalagið hingað í efri byggðir í Kórahverfið að njóta þessara rúmlega klukku- tíma löngu óperu eigi eftir að fara glöð heim.“ Fjöldi verka framundan Tryggvi situr ekki auðum höndum og það er nóg að gera hjá honum. Hann segist þó fyrst og fremst vera að einbeita sér að verkinu Björninn sem stendur en önnur verk séu vissulega á verkaskránni. „Það eru fjögur, eða jafnvel fimm önnur verk á döfinni. Næsta verk hjá mér er með Sóma þjóðar sem ber titilinn „Láttu eins og ég sé ekki hérna,“ en það er Hannes Óli Ágústsson sem leiðir það. Þar fæ ég að njóta þess að vera ekki kallinn í brúnni heldur sá sem stendur á svið- inu og gerir sig berskjaldaðan fyrir áhorfendum. Samfara því leikstýri ég Stúdentaleikhúsinu sem er eitt skemmtilegasta leikfélag landsins. Svo vonandi næ ég að frumflytja nýtt hljóðverk eftir mig með Sóma þjóðar sem verður einskonar bíla- útvarpsleikrit. Næsta vor glími ég svo í fyrsta sinn við hefðbundinn texta sem ekki er eftir sjálfan mig. Þá mun ég setja upp Galdra-Loft í Tjarnarbíói og er strax farinn að hlakka til að fást við hvernig í ósköpunum ég eigi að fara að því að gera þessu öndvegisriti íslenskrar leikritunar skil svo sómi sé að.“ Í millitíðinni verður settur upp annar hluti þríleiksins um geimfar- ana Vilhjálm og Ísak en fyrsta sýn- ingin hét MP5. „Ég og Hilmir Jensson höfum unnið að þessu saman og hug- myndin fæddist í hreinni frústrasjón yfir broddleysi og seinagangi leik- hússins. Við gáfum okkur 30 daga til að fjalla um eitthvað sem okkur sveið verst undan. Eitthvað sem var í gangi þá og þegar í samfélaginu. Á þessum 30 dögum ætluðum við að finna viðfangsefnið, semja handrit, æfa, gera leikmynd og lýsingu og frumsýna. Einhvern veginn tókst það og við enduðum á sviðinu í sci-fi- sýningu íklæddir hvítum spandex- göllum. Hilmir, heljarmennið sem hann er, leit út fyrir að geta í alvör- unni verið geimfari, á meðan ég leit út eins og bráðnandi íspinni.“ Og viðfangsefnið var auðvitað stóra byssumálið. „Já, við tækluðum byssumálið sem var einhver mesti farsi síðasta árs, og þessa árs í raun líka og var öllum sem að komu til minnkunar. Uppselt var á allar sýn- ingar og við fengum fínustu dóma, en svo þurfti Hilmir að fara að dansa við Billy Elliot. En nú er kom- ið að framhaldinu, Könnunarleið- angur til Koi, en vinnuaðferðinni samkvæmt þá veit ég ekkert meira um málið á þessu stigi. En það verð- ur geimskip. Ég lofa því.“ Morgunblaðið/Styrmir Kári » Ópera finnst mérvera guðdómlega leiðinleg. Ég segi þetta hér og á á hættu að verða fyrir óendanlegri andúð söngvaranna minna. En hún er það. Sérstaklega á Íslandi. Tryggvi Fer sínar eigin leiðir í list- sköpun sinni. Björninn Lágmenningarópera þar sem Tryggvi trúir því að áhorfendur fari glaðir heim að sýningu lokinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.