Morgunblaðið - 10.08.2015, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 2015
Gler, gluggar, glerslípun & speglagerð frá 1922
Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími: 565 0000 | Fax: 555 3332 | glerborg@glerborg.is | www.glerborg.is
Sjálfvirk rennibraut inn á heimili
SVIÐSLJÓS
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Fjórum árum eftir að Anders Be-
hring Breivik skaut 69 manns til
bana í Útey, söfnuðust þar saman
þúsund ungmenni um helgina í
fyrstu sumarbúðunum sem haldnar
hafa verið í eynni síðan fjöldamorð-
in áttu sér stað.
Fyrst og fremst voru það tán-
ingar sem létu lífið í árás öfga-
mannsins hinn 22. júlí árið 2011,
þegar hann elti uppi þátttakendur í
sumarbúðum ungliðahreyfingar
Verkamannaflokksins, sem haldnar
voru árlega þessari litlu eyju
skammt frá Osló.
Staðföst og ákveðin í að endur-
heimta yfirráð sín á svæðinu komu
ungmenni flokksins, ásamt nokkr-
um eftirlifendum árásarinnar, aftur
saman á föstudag og héldu þar búð-
ir fram til gærdagsins. Var and-
rúmsloftið afslappað þegar formað-
ur ungliðahreyfingarinnar, Mani
Hussaini, ávarpaði viðstadda: „Það
er gott að vera komin aftur heim.“
Frábært að vakna í Útey
Framkvæmdastjóri Atlantshafs-
bandalagsins, Jens Stoltenberg,
sem var forsætisráðherra Noregs
þegar árásirnar áttu sér stað, tók
þátt í sumarbúðunum um helgina.
„Það er frábært að vakna í Útey og
að vera umkringdur svona virku
ungu fólki,“ sagði í tísti Stolten-
bergs á vefnum Twitter.
Margir táninganna komu til eyj-
unnar á fimmtudag og settu upp
tjöld sín nærri mötuneytishúsinu,
en kúlnaför má ennþá sjá á veggj-
um þess. En kúlnaför eru ekki einu
merkin um það sem átti sér stað
þennan sólfagra júlídag fyrir fjórum
árum. Vopnaðir lögregluverðir
fylgdust grannt með framgangi
sumarbúðanna og tveir lögreglubát-
ar sigldu umhverfis eyna á meðan
búðirnar stóðu yfir.
Hussaini segir í tali við frétta-
veitu AFP að Útey sé samkomu-
staður fyrir unga aðgerðasinna, eins
konar stjórnmálasmiðja, þar sem
finna megi „menningu, íþróttir, vin-
skap, og síðast en ekki síst, ást“.
Myrti ungliðana kerfisbundið
Hélt hann svo áfram: „Útey er
einnig vettvangur dekksta dags í
sögu Noregs á friðartímum. Hún
verður því alltaf staður til að minn-
ast þeirra sem við misstum þennan
dag, en endurheimt Úteyjar fyrir
sumarbúðirnar snýst um að láta
ekki hina myrku sögu skyggja á
ljósið.“
Skotæði Breiviks varði í rúman
klukkutíma, þar sem hann myrti
kerfisbundið tugi ungliða Verka-
mannaflokksins, stærsta flokks
Noregs, en flokknum kenndi hann
um aukna fjölmenningarstefnu í
landinu. Föst á hinni smáu 12 hekt-
ara eyju, höfðu mörg ungmennin
enga leið til að flýja morðingjann
nema út í ískalt vatnið umhverfis
eyna.
Töluverðar endurbætur hafa ver-
ið gerðar í eynni í aðdraganda sum-
arbúðanna. Nýjar byggingar hafa
risið við hlið þeirra gömlu, sem hafa
einnig verið gerðar upp.
Þá hefur stór og mikill stálhring-
ur verið smíðaður í skógi eyjarinn-
ar, sem minnismerki um þá sem lét-
ust. Á hann eru letruð nöfn 60 af
þeim 69 sem voru myrt í árásinni.
En til marks um að sár einhverra
aðstandenda eru enn langt frá því
að vera gróin, vildu níu fjölskyldur
ekki að nafn fallins ástvinar þeirra
væri þar á meðal.
Endurheimtu Útey
Snýst um að láta ekki hina myrku sögu skyggja á ljósið, segir formaður ungliða-
hreyfingar Verkamannaflokksins Kúlnaför má ennþá finna á veggjum bygginga
AFP
Æskan Um þúsund manns voru samankomin í sumarbúðunum í Útey um helgina. Ekki eru þó öll sár gróin á meðal aðstandenda þeirra sem féllu í árásinni.
Bandarísk yfir-
völd hafa flutt
sex herþotur af
gerðinni F-16
til Tyrklands,
þar sem þær
eiga að aðstoða
í aðgerðum
gegn Íslamska
ríkinu.
Koma þot-
urnar til viðbótar við þau mann-
lausu vélfygli sem Bandaríkin hafa
notast við til að ráðast gegn sam-
tökum íslamistanna í Sýrlandi.
Tyrkland, sem er meðlimur í Atl-
antshafsbandalaginu líkt og Banda-
ríkin, hefur undanfarið aukið að-
gerðir gegn íslamistum eftir
sprengjuárásina í Suruc í lok júlí,
þar sem þrjátíu létu lífið.
Samkvæmt heimildum frétta-
veitu AFP er búist við að þrjátíu
bandarískar herflugvélar til við-
bótar muni koma til Tyrklands á
komandi dögum.
Bandarískar herþot-
ur koma til aðstoðar
TYRKLAND
Ísraelsk lög-
regluyfirvöld
handtóku í gær
nokkra ein-
staklinga sem
grunaðir eru
um að hafa átt
þátt í að kasta
eldsprengjum í
heimili Palest-
ínumanna, en
tveir létust í árásinni.
Koma handtökurnar í kjölfar
ákalls almennings um aðgerðir eft-
ir að íkveikjan, sem átti sér stað
hinn 31. júlí, leiddi af sér dauðsföll
hins 18 mánaða gamla Ali Saad Da-
wabsha og föður hans, Saad.
Barnið lést samdægurs en fað-
irinn lést á laugardag og var borinn
til grafar af þúsundum manna, sem
margir hverjir kölluðu á sama tíma
eftir hefnd.
Þá köstuðu einhverjir steinum í
ísraelsku lögregluna sem svaraði
með því að beita táragasi gegn
mannfjöldanum.
Handteknir og grun-
aðir um íkveikjuna
VESTURBAKKINN
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Íbúar og yfirvöld japönsku borgar-
innar Nagasaki minntust þess í gær
að 70 ár voru liðin frá því að Banda-
ríkjamenn slepptu kjarnorku-
sprengju á borgina.
Fulltrúi eftirlifenda sprengju-
árásarinnar ávarpaði viðstadda, þar
á meðal Shinzo Abe, forsætisráð-
herra Japans. Sagði hann að nýtt
frumvarp ríkisstjórnar Abe færi
gegn óskum eftirlifendanna og að
það myndi „leiða til stríðs“.
Hin svokölluðu öryggislög, sem
Abe segir nauðsynleg til að auka við-
bragðsmöguleika Japans gagnvart
vaxandi ógnum í heimshlutanum,
hafa mætt harðri gagnrýni almenn-
ings. Verði lögin samþykkt munu
þau slaka á kröfum stjórnarskrár-
innar sem leyfir her landsins aðeins
að vígbúast ef til árásar kemur.
Borgarstjóri Nagasaki, Tomi-
hisa Taue, ávarpaði einnig þá sem
voru saman komnir í borginni. Sagði
hann að „útbreiddur óróleiki“ væri
gagnvart lögunum, sem þegar hafa
hlotið samþykki neðri deildar þings-
ins og eru nú á borði efri deildar-
innar. „Ég hvet ríkisstjórnina til að
hlusta á þessar raddir varúðar.“
Þessi tilfinning endurómaði í
skilaboðum frá framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon,
þar sem hann hvatti til útrýmingar
kjarnorkuvopna.
„Af öllu hjarta tek ég undir
ákall ykkar til heimsins: Aldrei aftur
Nagasaki. Aldrei aftur Hiroshima.“
Forsætisráðherrann Abe sagði í
stuttri ræðu að Japan, sem eina
landið sem hefði þurft að þola kjarn-
orkuárásir, myndi leitast við að
gegna forystuhlutverki í að losa
heiminn við slík ógnarvopn.
Minntust árás-
ar á Nagasaki
Vöruðu við nýju stjórnarfrumvarpi
AFP
Minning Friðarstyttan í Nagasaki.