Morgunblaðið - 10.08.2015, Síða 17
17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 2015
Sumarsæla Kýrnar á Mýrum sem myndaðar voru úr lofti létu sér fátt um finnast og héldu flestar áfram að bíta gras eða hvíla sig, þó litu örfáar upp til himins í undrun.
RAX
Óli Björn Kárason‚
varaþingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, hefur
tekið að sér að skýra
og eftir atvikum verja
stefnu flokks síns í
heilbrigðismálum. Það
er krefjandi viðfangs-
efni og greinilega ekki
alltaf auðvelt. Í nýj-
ustu grein sinni beinir
Óli Björn, sem oftar,
orðum til mín og hreyfir hann
nokkrum atriðum sem verðskulda
málefnalega umræðu.
Í greininni þarf að venju að kom-
ast í gegnum allmiklar pólitískar
umbúðir til að eygja hin mál-
efnalegu rök höfundar. Hin illa „vel-
ferðarstjórn“, sem stýrði landinu á
síðasta kjörtímabili, er hrakyrt og
rækilega undirstrikað hve mikið
hefði verið skorið niður í heilbrigð-
ismálum í ráðherratíð minni. Ekki
deili ég um þetta og hef ég sjálfur
margoft farið í gegnum tölfræði rík-
isútgjaldanna í kjölfar efnahags-
hrunsins. Satt best að segja veit ég
ekki til hvaða lesenda varaþingmað-
urinn er að reyna að höfða því ekk-
ert af þessu er nýtt og kemur um-
ræðuefni okkar um skipulag
heilbrigðisþjónustunnar ekki við, að
öðru leyti en því að hinn mikli nið-
urskurður eftirhrunsáranna reynd-
ist heilbrigðiskerfinu erfiður og dýr-
keyptur og eru þó engan veginn öll
kurl komin til grafar.
Þegar veikleikar
skapa tækifæri
Ef til vill er varasamasta arfleifð
þessa tíma veikleikinn sem er að
finna víða í kerfinu vegna nið-
urskurðar og aðhalds. Við slíkar að-
stæður sjá boðendur einkalausna
„tækifæri“ í stöðunni eins og Sigríð-
ur Á Andersen, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, hefur opið og kinn-
roðalaust bent á. Hún á lof skilið
fyrir að standa keik fyrir málstað
sínum að þessu leyti í stað þess að
setja hann í feluliti eins og þeim
hættir til að gera sem eru meðvit-
aðir um hve umdeilt það er í þjóð-
félaginu að innleiða
markaðslögmál í heil-
brigðiskerfinu.
Í þessari nýjustu
grein sinni vísar Óli
Björn sigri hrósandi á
línurit sem sýnir að
framlag til sjúkrahús-
anna hefur verið að
aukast eftir því sem
fjær dregur hruninu.
Það er vel og væri
vissulega óskandi að
við gætum sameinast
um það, hvar í flokki
sem við stöndum, að veita meira
fjármagn til heilbrigðiskerfisins en
nú er gert.
Það sem deilt er um
Reyndar skil ég það svo að
ágreiningurinn snúist ekki um það
markmið heldur hitt hvernig fjár-
munirnir verði best nýttir og á
hvaða forsendum kerfið eigi að
þjóna samfélaginu; þeim sem þurfa
að leita til heilbrigðisþjónustunnar
og síðan hvað komi þeim best sem
borga brúsann. Þá skiptir og grund-
vallarmáli í hvaða vasa peningarnir
renna. Fyrirvarar mismunandi
skoðanafylkinga um framlög til heil-
brigðismála, ráðast af þessu.
Þannig er ég þess til dæmis ekki
fýsandi að borga mína skattpeninga
til þess að „fjárfestar á velferð-
arsviði“ eins og þeir eru kallaðir,
geti makað krókinn. Þetta finnst
markaðssinnum hins vegar ekki að
þurfi að vera frágangssök enda trúa
þeir því að kerfið verði afkastameira
og stytti biðraðir. Ég efast stórlega
um að sú yrði raunin en legg áherslu
á að allt þetta þurfum við að ræða
málefnalega ef við viljum veita þess-
ari umræðu inn í gjöfulan farveg.
Dugar skammt að fullyrða
Þá verða Óli Björn og félagar líka
að taka sig á því fullyrðingar um að
allt verði betra fyrir tilstilli mark-
aðslausna duga skammt. Þannig
þyrfti Óli Björn að skilgreina með
raunverulegum reynsludæmum og
með hliðsjón af veruleikanum hver
innistæða er að baki þeim bakföllum
sem hann tekur yfir meintu skiln-
ingsleysi andstæðinga sinna: „Hér
skal játað að mér er það óskiljanlegt
af hverju Ögmundur Jónasson og
skoðanabræður hans berjast gegn
því að nýta kosti einkarekstrar í
heilbrigðisþjónustu. Engu virðist
skipta þótt takmarkaðir fjármunir
ríkissjóðs geti nýst betur og að
þjónustan við landsmenn eflist, líkt
og dæmin sanna. Andstaðan við
einkaframtakið á sér svo djúpar
rætur í huga Ögmundar að engu
skiptir þótt allir séu betur settir en
áður; landsmenn (sjúklingar) sem fá
betri þjónustu, heilbrigðisstarfsfólk
sem fær möguleika til að verða eigin
herrar og eignast fjölbreyttari tæki-
færi til vinnu og ríkissjóður (skatt-
greiðendur) sem fær meira fyrir þá
fjármuni sem lagðir eru í heilbrigð-
ismál.“
Fjármagn fylgi sjúklingi
Áður en vikið er að einhverjum
þessara fullyrðinga – aðrar kalla á
ítarlegri umfjöllum svo sem um
meint frelsi og sjálfræði almennra
starfsmanna á einkareknum heil-
brigðisstofnunum, því ekki verða
þar allir sjálfs sín herrar! – þá vil ég
fara nokkrum orðum um grundvall-
aratriði sem Óli Björn hreyfir við og
varðar leiðir til að tryggja mark-
vissa ráðstöfun fjármuna í heilbrigð-
iskerfinu. Það tengist svo aftur
framgangreindri framsetningu um
ágæti einkarekinnar heilbrigð-
isþjónustu.
Samandregið þá telur Óli Björn
affarasælast að láta fjármagn fylgja
sjúklingi. Hann telur að þar með
væri stuðlað að því að peningar
rynnu þangað sem þeirra er helst
þörf og væri auk þess afkastahvetj-
andi fyrirkomulag. Stofnanir legðu
sig betur fram um að veita tiltekna
þjónustu til að ná í fjármagn og allir
högnuðust fyrir vikið. Þetta kann að
vera rétt svo langt sem það nær.
Þeir sem stjórna
framboði stýra för
En þarna er líka til staðar hættan
á að einstakar stofnanir fari að stýra
áherslum í þróun heilbrigðiskerf-
isins. Og með tilkomu fjárfesta sem
hefðu auga fyrir því hvernig hrað-
virkast væri að mala gullið, yrði
framboð á þjónustu samkvæmt slík-
um útreikningum.
Ef fjármunir væru ótakmarkaðir
kynni þetta að ganga, en það eru
þeir ekki! Þess vegna er þörf á að
byggja framþróun kerfisins á yf-
irvegaðri heildarsýn. Svipuð um-
ræða kom upp í kjölfar stofnunar
einkaháskóla sem lögum samkvæmt
höfðu sjálfkrafa tilkall ofan í buddur
okkar skattgreiðenda að því til-
skildu að þeir uppfylltu tiltekin skil-
yrði. Auðvitað var velgengni þeirra
háð eftirspurn námsmanna og var
hún því ákveðinn varnagli. Sá nagli
hélt hins vegar ekki þegar stefnu-
mótun var annars vegar um þróun
menntakerfisins og ráðstöfun á tak-
mörkuðum fjármunum.
Eiga læknar að keppa
á grundvelli verðlags?
Herða mætti á eftirspurnarþætt-
inum með því að tengja hann fjár-
hag notenda. Þegar örendi skatt-
greiðenda þryti ættu sjúklingar
þess kost að greiða úr eigin vasa.
Slíkt yrði hins vegar fráhvarf frá
þeirri meginhugsun sem við höfum
byggt á, nefnilega þeirri að ef
læknar á annað borð eru þátttak-
endur í almenna sjúkratrygg-
ingakerfinu þá skuli þeir vera það
alla leið og ekki heimilt að smyrja
ofan á greiðslur frá sjúklingum um-
fram það sem gert er ráð fyrir í nið-
urnjörvuðum samningum við hið op-
inbera.
Á Alþingi hefur sú hugsun ítrekað
komið fram að heimila skuli læknum
að keppast um sjúklinga á sam-
keppnismarkaði, bjóða upp á til-
tekna þjónustu á tilteknu verði sem
þá tæki mið af framboði og eft-
irspurn. Mér leikur forvitni á að vita
hvort Sjálfstæðisflokkurinn vilji
heimila slíkt eins og sumir þing-
menn hafa talað fyrir á Alþingi.
Talsmenn flokksins á borð við Óla
Björn Kárason hafa ekki talað skýrt
að þessu leyti. Þörf er á því að þeir
geri það svo við vitum nákvæmlega
hvert förinni er heitið.
Kostnaðarsöm yfirbygging
Gríðarlega mikilvægt era ð taka
þessa umræðu nú áður en fjárfestar
taka til sín stefnumótunarvaldið.
Mikilvægt er að gefa sér góðan tíma
til að brjóta til mergjar reynslu ann-
arra þjóða. Hvað það varðar að fjár-
magn fylgi sjúklingi, þá mun það til
dæmis vera reynsla margra ná-
grannaþjóða eða svæða innan
þeirra, að slík kerfi krefjist mikillar
yfirbyggingar ef þessi leið á að
ganga upp. Þá má ætla að sú yf-
irbygging, sem greiðandinn yrði að
koma upp, væri hlutfallslega stærri
þar sem einingar eru litlar, eins og
hjá okkur hér á landi.
Útboð heilsugæslunnar
Útboð á heilsuþjónustu er annað
form sem rætt hefur verið og prakt-
íserað – að bjóða út þjónustu til
heilsugæslu- og þjónustustöðva.
Sannfærandi er að ná megi hag-
stæðum kjörum á upphafsstigi slíks
ferlis en mér er það ráðgáta hvernig
þetta gæti tryggt hag skattgreið-
enda þegar horft er til langs tíma.
Þegar búið er að koma þjónustunni í
hendur stórra eininga á ég erfitt
með að sjá að aftur verði snúið og
efnt til raunverulegs útboðs, einfald-
lega vegna þess að aðrar einingar
eru ólíklegar til að verða settar á
laggirnar til þess að keppa við fyrri
samningshafa.
Útboð á tilteknum læknisverkum
hafa einnig verið rædd. Þar kann
eitt að gilda um þéttbýli og annað
um dreifbýli. Það væri fráleitt að
rústa góðri þjónustu úti á landi í
anda útboðs, og halda svo að hún sé
tilbúin að taka við aftur ef útboðs-
takinn af einhverjum ástæðum
gengur úr skaftinu.
Aftur hér þarf að tala skýrar.
Eftir Ögmund
Jónasson » Gríðarlega mikil-
vægt er að taka
þessa umræðu nú áður
en fjárfestar taka til sín
stefnumótunarvaldið.
Mikilvægt er að gefa sér
góðan tíma til að brjóta
til mergjar reynslu ann-
arra þjóða.
Ögmundur Jónasson
Höfundur er fyrrverandi heilbrigðis-
ráðherra.
Sjálfstæðisflokkurinn tali skýrar
um einkavæðingaráform sín