Morgunblaðið - 10.08.2015, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
ÍSLENSKIR SÓFAR
SNIÐNIR AÐ ÞÍNUM ÞÖRFUM
MÁL OG ÁKLÆÐI AÐ EIGIN VALI
Með nýrri AquaClean tækni
er nú hægt að hreinsa nánast
alla bletti aðeins með vatni!
Erfiðir blettir eins og eftir tómatsósu, léttvín, kaffi, te, meira að
segja kúlupenna, nást á auðveldan hátt úr áklæðinu.
Áklæði
Basel
Torino
Roma
Yfirborðshiti er 20 til 40 gráður
Ný gervitunglamynd sýnir hita
hraunsins við gosstöðvar Holuhrauns
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Enn leynist hiti í hrauninu við gos-
stöðvarnar í Holuhrauni en í gær
birti Jarðvísindastofnun Háskóla Ís-
lands LANDSAT 8 gervitungla-
mynd frá USGS og NASA. Myndin
birtist á Facebook-síðu stofnunar-
innar og á myndinni má sjá fyrrver-
andi hraunár og hita hraunsins.
Ármann Höskuldsson, eldfjalla-
fræðingur hjá Jarðvísindastofnun
HÍ, segir að hraunið sé allt að 15 til
20 metra þykkt. Það kólni mjög
hægt þar sem það er þykkast og
mun það taka hraunið 10 til 15 ár að
kólna niður í hundrað gráður í
kjarna hraunsins. „Það eru sprung-
ur á hrauninu þar sem menn verða
varir við þennan hita. Hraunið er
kalt á yfirborðinu og maður getur
gengið á því þó svo að það komi frá
því ylur,“ segir Ármann en yf-
irborðshiti hraunsins er á milli 20 og
40 gráður.
Ekki langt að sækja í hita
Ármann segir að ekki þurfi að
sækja langt í meiri hita, en hitastig
einn til tvo metra inni í hrauninu er á
bilinu sjö til átta hundruð gráður.
„Lækkar með varmaleiðni og
varmaleiðni bergsins er svo lág,“
segir Ármann.
Ekki hefur áður birst samskonar
mynd af hrauninu og segir Ármann
að hún gefi vísindamönnum ýmsar
vísbendingar sem komi að gagni
fljótlega þegar farið verður í mæl-
ingar á hrauninu.
„Við ætlum að mæla hraunið í bak
og fyrir. Við erum að bíða eftir flug-
vél frá breska flughernum,“ segir
Ármann en meðal þess sem vís-
indamenn vita nú er þykkt hrauns-
ins. Stefnt er að því að fara í mæl-
ingar á hrauninu í lok þessarar viku
eða í byrjun þeirrar næstu en
bresku flugvélarinnar hefur nú verið
beðið í þrjár vikur.
Gervitunglamyndin sem Jarðvís-
indastofnun HÍ birti er tvenns konar
hitamæling og myndin því samsett.
Annars vegar sýnir hún rennsli
hraunsins og má sjá það með því að
skoða ljósu svæði myndarinnar.
Hins vegar sýnir myndin með rauða
litnum hita hraunsins.
LANDSAT 8 gervitunglamynd frá USGS og NASA
Holuhraun Sjá má hvernig hraunið rann og hitastig þess í dag á gervi-
tunglamynd sem Jarðvísindastofnun HÍ birti á Facebook-síðu sinni.
„Formaðurinn getur ekki skorast
undan ábyrgð en ég lýsi ekki yfir van-
trausti á hann eða stuðningi við
Heiðu á þessu stigi og vona að okkur
takist að hugsa þetta á ferskan hátt
og lenda ekki í hefðbundnum for-
mannsslag eins og maður sér í öðrum
flokkum,“ segir Brynhildur Péturs-
dóttir, þingmaður Bjartrar framtíð-
ar, spurð um viðbrögð sín við um-
mælum Heiðu Kristínar Helgadótt-
ur, varaþingmanns og fyrrverandi
stjórnarformanns flokksins, í út-
varpsþættinum Vikulok á Rás 1 síð-
astliðinn laugardag.
Þar sagðist Heiða vera reiðubúin
að taka við formennsku innan Bjartar
framtíðar af Guðmundi Steingríms-
syni alþingismanni væri vilji fyrir því
á meðal flokksmanna. „Hún hefur
þessa skoðun, segir hana og við verð-
um að vera fólk sem getur tekið þá
umræðu,“ bætir Brynhildur við.
Guðmundur Steingrímsson, for-
maður Bjartrar framtíðar, vildi ekki
tjá sig um ummæli Heiðu þegar í
hann náðist í gærdag, eða óánægju
annarra flokksmanna með for-
mennsku hans. Þingflokksformaður
flokksins, Róbert Marshall, lét ekki
ná í sig í gær.
Fylgistapi getur fylgt ótti
Páll Valur Björnsson, þingmaður
flokksins, segir ummæli Heiðu hafa
komið sér í opna skjöldu og ekki sé
óeðlilegt að Guðmundur taki sér tíma
til umhugsunar. „Ég átti alls ekki von
á þessu, en það segir sig sjálft að þeg-
ar flokkur tapar fylgi í hverri skoð-
anakönnuninni á fætur annarri að
það fer eitthvað af stað, einhver ótti
kannski, og hlutirnir fara að gerjast,“
segir hann. Betra hefði þó verið ef
Heiða hefði rætt málið innan flokks-
ins í stað þess að fara fram svo op-
inberlega.
„Ég veit ekki hvort það er heilla-
vænlegt að skipta um formann,“ en
hann sé þó opinn fyrir öllu sem komi
flokknum og samfélaginu vel. Það sé
hans skoðun að formaðurinn eigi að
vera meira út á við, skýra stefnuna og
tala. laufey@mbl.is
„Formaðurinn getur ekki
skorast undan ábyrgð“
Heiða Kristín tilbúin að taka við formennsku í flokknum
Nokkrir ófeimnir lundar sátu fyrir hjá ferðamönnum í góða veðrinu við
Látrabjarg um helgina en háhyrningar létu einnig sjá sig skammt undan
landi. Markús Örn Antonsson, fyrrverandi útvarpsstjóri, tók myndina en
hann segir að þrátt fyrir bágborið ástand vegarins við sunnanverðan Pat-
reksfjörð að Látrabjargi hafi fjöldi ferðafólks komið í bílum, stórum og
smáum af ýmsum gerðum, á svæðið við Bjargtanga, vestasta odda landsins.
„Þar spókuðu lundarnir sig á bjargbrúninni og gáfu kost á myndatöku sem
fjölmargir nýttu sér. Skammt undan landi voru háhyrningar á ferð og niðri
í flæðarmálinu nutu nokkrir selir veðurblíðunnar. Allt þetta sjónarspil
vakti að vonum mikla hrifningu ferðalanganna,“ segir Markús Örn.
Lundar spóka sig í góða veðrinu við Látrabjarg
Ljósmynd/ Markús Örn Antonsson.
Þjófar stálu töluverðum fjármunum
í Húnabúð á Blönduósi á laugardag.
Bæði var stolið peningum úr búð-
arkassa verslunarinnar sem og
peningaveski verslunareigandans.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Blönduósi voru þjófarnir
að minnsta kosti tveir.
Lögregla biður fólk um að vera á
varðbergi gagnvart þjófunum sem
beita þeirri aðferð að annar villir
um fyrir einstaklingum á meðan
hinn laumast og stelur. Eins virðist
sem þeir leggi ekki bílum sínum við
búðirnar.
Lögregla veit hvernig þjófarnir
líta út en þeir eru af erlendu bergi
brotnir samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu.
Rændu úr búðar-
kassa og veski
Björgunarsveit-
irnar Jökull og
Hérað á Austur-
landi voru kall-
aðar út um há-
degisbil í gær
vegna manns
sem hafði slasast
við Hengifoss á
Fljótsdalshéraði.
Óttast var að
maðurinn væri
fótbrotinn. Björgunarmennirnir
fóru á staðinn, hlúðu að manninum
og var hann borinn niður í björg-
unarsveitarbíl niður á þjóðveg þar
sem sjúkrabíll ók honum á sjúkra-
hús til frekari skoðunar.
Maður slasaðist á
fæti við Hengifoss
Björgunarsveitir
sóttu manninn.