Morgunblaðið - 10.08.2015, Side 9

Morgunblaðið - 10.08.2015, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 2015 Helgi H. Jónsson, fyrrverandi vara- fréttastjóri Ríkis- sjónvarpsins, lést hinn 8. ágúst síðast- liðinn, 72 ára að aldri. Helgi fæddist í Reykjavík hinn 14. maí 1943 og var hann sonur Jóns Helgasonar, ritstjóra og rithöfundar, og Guðrúnar Margrétar Pétursdóttur hús- móður. Helgi var blaða- maður á dagblaðinu Tímanum á árunum 1973-1976 en að því loknu hóf hann störf sem fréttamaður á Ríkisútvarpinu sem var starfsvettvangur hans nær all- ar götur síðan. Helgi tók við starfi varafréttastjóra Rík- issjónvarpsins árið 1986 og starfaði einn- ig um tíma sem fréttastjóri. Enn- fremur starfaði hann að gerð margra út- varps- og sjónvarps- þátta. Hann lét af störf- um hjá Ríkis- útvarpinu árið 2007. Helgi var fráskil- inn en kvæntist tvisvar. Fyrri kona hans var Gyða Jó- hannsdóttir sálfræðingur. Seinni kona hans var Helga Jónsdóttir lögfræðingur. Börn Helga eru Jó- hann Árni, Jón Ari, Oddný, Sól- veig og Gunnlaugur. Andlát Helgi H. Jónsson Sólveig Anspach kvikmyndaleikstjóri lést hinn 7. ágúst síðastliðinn, 54 ára að aldri. Banamein hennar var krabba- mein. Sólveig hafði nýlokið tökum á nýjustu bíómynd sinni, Sundáhrifin (L’effet aquatique), á Íslandi og í Frakklandi þar sem hún bjó lengst af ævinnar. Sólveig fæddist í Vestmannaeyjum hinn 8. september 1960. Foreldrar Sólveigar voru Högna Sigurðar- dóttir arkitekt og Gerhardt Ans- pach. Átti Sólveig eina systur, Þórunni. Eftir dvöl í New York settist fjölskyldan að í París. Þar stundaði Sólveig nám við kvik- myndaskólann FEM- IS og útskrifaðist þaðan 1990. Fyrstu árin gerði hún heimildar- myndir og hélt því áfram alla sína tíð, en 1999 sendi hún frá sér sína fyrstu bíómynd, Haut les Couers! eða Hertu upp hugann! Myndin fjallaði um unga konu sem greinist með krabbamein en er jafnframt barnshafandi. Sólveig byggði myndina að nokkru á eigin reynslu. Sólveig lætur eftir sig dótturina Clöru. Sólveig Anspach SVIÐSLJÓS Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Viðtökurnar hafa verið með ólíkind- um góðar. Ekki síst vegna þess að verðið er svo hagstætt,“ segir Stein- ar Berg Ísleifsson, ferðaþjónustu- bóndi í Fossatúni í Borgarfirði, um timburtjöldin sem hafa komið í stað tjaldstæðisins sem áður var á svæð- inu. „Við köllum þetta Podda, út frá orðinu Camping pods, en margir kalla þetta hobbitahús því þeim finnst þetta hobbitalegt,“ segir hann. Tjaldstæðinu hefur verið lokað en Steinar hafði byggt það upp og rek- ið í tíu ár. „Það gekk ágætlega en við ákváðum að staldra við eftir síð- asta sumar og rýna í framtíðina,“ segir Steinar um rekstur tjaldstæð- isins. Niðurgreidd samkeppni Steinari þótti ekki réttlætanlegt að fjárfesta í frekari uppbyggingu og rekstri tjaldstæðisins í Fossa- túni þar sem samkeppnin við sveitarfélög jókst með hverju sumri. „Sveitarfélög höfðu aukið þjón- ustustig og reksturinn þar er nið- urgreiddur,“ segir Steinar en úr varð að hann festi kaup á fjórum timburtjöldum, sem hvert um sig er 11 fermetrar að stærð. „Þetta er ekki byggingarleyfis- skylt með öllum þeim flækjustigum og deiluskipulagi sem því fylgir. Þó að við höfum fest timburtjöldin þá eru þau færanleg, og þeim er stung- ið í samband,“ segir Steinar og bæt- ir við að þetta hafi leitt til þess að hann geti boðið upp á hagstæða gistingu. Nóttin kostar 7.500 krón- ur, óháð því hversu margir gestirnir eru. Tímabilið frá apríl til nóvember Steinar segir að fyrst um sinn hafi verið ákveðið að gistitímabilið í timburtjöldunum sé frá 1. apríl fram til 30. október og bætir við hann ætli að bíða og sjá hvernig veturinn fari með tjöldin. „Þetta gengur vel og það stendur til að bæta við. Það er ljóst að þessi þróun mun halda áfram hér í Fossa- túni,“ segir Steinar en húsin hafa verið auglýst á bókunarvefjum á borð við Airbnb og Booking.com. Steinar segir að ákveðið hefði ver- ið að fara rólega af stað með mark- aðssetninguna þannig að hægt væri að taka á móti einhverjum þeirra gesta sem hygðust sækja tjaldstæð- ið og vissu ekki að búið væri að loka því. „Það er slegist um þessi hús á hverju kvöldi,“ segir hann en til stendur að bæta við sex til átta hús- um fyrir næsta sumar. Íslendingarnir komu á óvart Steinar segir fjölda Íslendinga hafa komið sér skemmtilega á óvart. „Við sáum þetta fyrst og fremst sem valkost fyrir fólk sem er á bíla- leigubílum og gistir á hótelum og hostelum. En hingað koma Íslend- ingar á öllum aldri; hjón með börn og eldra fólk í leit að hagstæðri gist- ingu,“ segir Steinar. Þeir láta vel af þessu og finnst þetta sniðugur val- kostur í stað þess að „draga á eftir sér fimm milljóna króna græju,“ segir hann.  Ferðaþjónustubóndi í Fossatúni lokaði tjaldstæðinu vegna niðurgreiddrar samkeppni sveitarfélaga  Sex til átta tjöldum veður bætt við fyrir næsta sumar til að anna eftirspurninni sem hefur verið mikil Tjöldin víkja fyrir timburtjöldum Ferðaþjónusta Rekstri tjaldstæðisins í Fossatúni var hætt og fjárfest var í fjórum timburtjöldum í staðinn. Notaleg Húsin eru 11 fermetrar og þeim stungið í samband við rafmagn. YOUR TIME IS NOW. MAKE A STATEMENT WITH EVERY SECOND. Pontos Day/Date Sígild en engu að síður nútímaleg hönnun sem sýnir það allra nauðsynlegasta. Áreiðanlegt sjálfvindu úrverk sem sýnir vikudaga og dagsetningu. Einfalt og stílhreint úr sem sendir skýr skilaboð. jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 6 1 Kringlan Smáralind

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.