Morgunblaðið - 10.08.2015, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 2015
Leyndardómar garðanna í Laugar-
dalnum eru ekki öllum ljósir. Á því
verður ráðin bót annað kvöld, þriðju-
daginn 11. ágúst kl. 18, en efnt hefur
verið til Garðagöngu um Laugardal-
inn og næsta nágrenni.
Gangan er skipulögð í samstarfi
Garðyrkjufélags Íslands, Grasagarðs
Reykjavíkur, Borgargarða í Laugardal
og Íbúasamtaka Laugardals.
Frá Aðalinngangi Grasagarðsins
verður gengið í gegnum trjásafn
garðsins meðfram tjörnunum þar
sem gróskan er mikil á þessum árs-
tíma, segir í tilkynningu. Þaðan held-
ur hópurinn vestur að Þvottalaug-
unum í Laugardalnum þar sem
sumarblómabeðin eru til mikillar
prýði, ný runnabeð hafa verið skipu-
lögð og finna má fallegan nestisbekk
úr laugdælskri ösp. Þar stendur einn-
ig silfurreynir sem staðist hefur ýmis
áföll í gegnum árin.
Frá Þvottalaugunum liggur leið
áfram í vesturátt og fjölbreytt
gróðurfar dalsins er kynnt, bæði það
sem er ræktað og náttúrulegt.
Að endingu er förinni heitið upp í
Sigtún, þar sem göngunni lýkur í
kaffi í garðinum við Ásmundarsafn
sem hefur að geyma bæði einstakar
höggmyndir Ásmundar Sveinssonar
og merkileg tré.
Þátttaka er öllum ókeypis og er
mæting við aðalinngang Grasagarðs
klukkan sex síðdegis á morgun.
Ganga um garða, tré, blóm og höggmyndir
Morgunblaðið/Jim Smart
Gras Gangan hefst hjá Grasagarðinum, sem skartar sínu fegursta á sumrin,
heldur áfram inn í Laugardal og endar við Ásmundarsafn í kaffi og spjalli.
Garðaganga í Laugardalnum
Um þessar mundir eru margirað mæta til vinnu eftirsumarfrí. Fyrir marga eru
fyrstu dagarnir í vinnu eftir frí erf-
iðir, þrátt fyrir að hafa átt gott sum-
arfrí með fjölskyldunni, góðar sam-
verustundir, hlaðið batteríin og öðlast
ró í sinni.
Margir kannast við vinnuna sem
streituvaldandi þátt og fólk getur því
upplifað streitu undir lok sumarfrís-
ins aðeins við þá tilhugsun að fyrsta
vinnuvikan sé framundan. Við slíkar
aðstæður er nauðsynlegt að bregðast
við til þess að halda streitueinkennum
í lágmarki og ná tökum á ástandinu.
Streita er ástand sem getur varað í
skemmri eða lengri tíma. Streita til
skemmri tíma getur virkað hvetjandi
með þeim hætti að við leggjum harð-
ar að okkur og erum líklegri til að ná
settu marki. Sem dæmi um þetta má
nefna að sumir vinna vel undir
pressu, þá fyrst fara hjólin að snúast.
Langvarandi streita vinnur ekki
með okkur á sama hátt, heldur dreg-
ur úr frammistöðu okkar smám sam-
an og hefur neikvæð áhrif á velferð
okkar og heilsu. Einkenni streitu eru
margvísleg, m.a. höfuðverkur, svimi,
einbeitingarskortur, svefntruflanir,
skapsveiflur. Það er einstaklings-
bundið hve viðkvæm við erum fyrir
streitu og álagi en mikilvægt er að
fólk þekki líkama sinn vel og sé á
varðbergi gagnvart streitueinkenn-
um.
Til þess að koma í veg fyrir of mik-
ið álag og til að halda streituvaldandi
þáttum í lágmarki má gera ýmsar
ráðstafanir áður er komið er til vinnu
eftir sumarfrí. Gagnlegt er að nota
síðustu dagana í fríinu til þess að
koma rútínu á svefntíma og halda
föstum svefntíma sem hentar vel.
Regla á matartímum hjálpar líka til
sem og dagleg hreyfing. Allt er þetta
mikilvægt fyrir heilsuna og stuðlar að
góðu andlegu jafnvægi.
Þegar komið er til vinnu að sumar-
fríi loknu er gott gefa sér tíma til að
forgangsraða verkefnum sem bíða,
gera raunhæfar áætlanir – verk-
efnalistinn verður ekki unninn upp á
fyrstu vikunni eftir fríið. Afar mikil-
vægt er einblína á settan vinnutíma
og virða þann tímaramma, forðast yf-
irvinnu og óþarflega langa vinnu-
daga.
Nauðsynlegt er að taka sér hádeg-
ishlé, stuttur göngutúr í hádeginu
getur gefið okkur mikið, og aukið af-
köst og bætt einbeitingu. Að grípa
eitthvað fljótlegt í hádeginu og borða
við skrifborðið og svara nokkrum
tölvupóstum í leiðinni er ekki skyn-
samlegt, og slíkt er ekki líklegt til að
auka afköstin og bæta frammistöðu.
Gefum okkur tíma til að komast í
gang, hægt og rólega, án þess að allur
dagurinn frá morgni til kvölds sé full-
bókaður. Frítíminn á ekki að vera
þéttsetinn af skyldum og verkefnum
sem jafnvel sátu á hakanum í fríinu.
Ef við komum hlutunum ekki í verk í
fríinu, þá þola þeir að öllum líkindum
alveg smábið til viðbótar.
Tíminn er ekkert að hlaupa frá
okkur, við erum ekki með veröldina í
lúkunum eða alheiminn á herðunum.
Leyfum okkur að finna taktinn, þann-
ig að okkur líði sem best og höldum
jafnvægi. Þannig má ná tökum á
hversdagsleikanum og við njótum
okkar betur.
Hversdagsleiki
án streitu
Getty Images
Heilsupistill
Kristín Ósk Leifsdóttir
sálfræðingur
Heilsustöðin sálfræði- og ráðgjafarþjón-
usta, Skeifunni 11a, Rvk. www.heilsustodin.is
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þetta var fínt. Rosalega gam-an og mikill heiður,“ segirÓlafur Aron Einarsson semer nýkominn heim eftir
langt ferðalag, en hann var einn
þeirra íslensku keppenda sem voru á
alþjóðasumarleikum Special Olymp-
ics í Los Angeles í júlí síðastliðnum.
Alls fór fjörutíu og einn keppandi frá
Íslandi, en Special Olympics fer fram
fjórða hvert ár.
Óli hafði aldrei áður komið til
Los Angeles og þetta var í fyrsta sinn
sem hann tók þátt á svona stórum
íþróttaviðburði, en þarna voru sjö
þúsund keppendur alls staðar að úr
heiminum.
Óli er tuttugu og tveggja ára og
keppti í lyftingum á leikunum og kom
heim með tvo stóra brons-verðlauna-
peninga um hálsinn. Hann náði þriðja
sætinu í réttstöðu, tók þar 137, 5 kíló
og þriðja sæti í heildina í sínum
flokki, með samtals 300 kíló.
Óli keppti í réttstöðu, hnébeygju
og bekkpressu, og þeir voru þrír ís-
lensku keppendurnir í lyftingunum
en enginn þeirra var þó í sama
flokknum, því þetta var getuskipt.
Guðmundur Ásbjörnsson frá Selfossi
var elsti keppandinn í lyftingunum,
en hann er 59 ára. Vert er að taka
fram að Óli lenti í fjórða sæti í hné-
beygju og bekkpressu.
Óli er hógvær en segir það vissu-
lega hafa verið stóra stund að standa
á verðlaunapallinum.
„Ég gerði bara mitt besta, en var
samt ekkert svo hissa þegar ég lenti í
þriðja sætinu,“ segir hann og hlær.
Fyrst eftir að íslensku keppend-
urnir komu út til Los Angeles, gistu
Líkamsstyrkur og
íþróttaáhugi í blóðinu
Ólafur Aron Einarsson gerði sér lítið fyrir og komst í tvígang á verðlaunapall á
alþjóðasumarleikum Special Olympics í Los Angeles á dögunum. Hann keppti í
lyftingum, enda hreystimenni mikið, einstaklega sterkur og með mikinn íþrótta-
áhuga eins og hann á kyn til. Hann kom heim með brons fyrir réttstöðu og fyrir
heildina í sínum flokki. Óla fannst gaman að kynnast nýju fólki á leikunum.
Kátir lyftingakappar Þeir kepptu fyrir Íslands hönd, Óli, Guðmundur Ás-
björnsson og Vignir Unnsteinsson kampakátir úti í Los Angeles.
Stór stund Hér má sjá Óla sigurreifan á verðlaunapallinum í Los Angeles.
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta
yfir 90 ár