Morgunblaðið - 10.08.2015, Qupperneq 23
Listamaðurinn Eiríkur hefur tekist
á við ýmsa stíla í myndlist sinni.
hélt þangað í félagi við Benedikt
Gunnarsson sem hann kynntist í
Handíðaskólanum.
Kennslan í Kaupmannahöfn var
að mörgu leyti gamaldags en þeir
félagar nýttu tímann vel, lásu mikið
og stunduðu myndlistarsýningar.
Einkum heilluðust þeir af straum-
um sem bárust frá París og voru
staðráðnir í að halda þangað þegar
námi lyki hjá Bøyesen. Haustið
1950 voru þeir báðir komnir til Par-
ísar, innritaðir í skóla og búnir að
leigja sér vinnustofu. París var dýr-
mætur skóli, þar mátti finna mörg
helstu verk listasögunnar en einnig
sjá sýningar á því nýjasta sem í
boði var.
Myndlistarferillinn
Eiríkur kom heim síðari hluta
árs 1951 og hófst þá í senn langur
og margbreytilegur ferill. Hann
hefur tekist á við ýmsa stíla innan
málverksins og liggja eftir hann
verk sem bera vitni um einstök tök
á jafn ólíkum viðfangsefnum og
strangflatarlist og tjáningarríku
abstraktmálverki. Undir lok síð-
ustu aldar varð hann einkum
þekktur fyrir málverk þar sem
maðurinn er gjarnan í forgrunni en
landið og mannanna verk mynda
magnþrungna umgjörð.
Fjöldi verka listamannsins er
varðveittur í Hafnarborg og stend-
ur safnið reglulega fyrir sýningum
á verkum hans. Í haust verður sýn-
ing á verkum sem hann hefur unnið
eftir 1982 jafnframt því sem út
kemur rit sem gerir öllum ferlinum
skil.
Fluga Morgunblaðsins var á sýn-
ingu Eiríks og má sjá myndir það-
an á bls. 29 í blaðinu í dag.
Fjölskylda
Kona Eiríks er Bryndís Sigurð-
ardóttir, f. 16.7. 1929, húsmóðir í
Hafnarfirði. Foreldrar hennar: Sig-
urður Jónsson, f. 9.4. 1905, d. 27.7.
1947, sjómaður í Hafnarfirði, og
k.h. Jóna Jónsdóttir, f. 19.10. 1905,
d. 17.2. 1959, húsmóðir.
Börn Eiríks og Bryndísar eru
Sóley, f. 14.6. 1957, d. 29.11. 1994,
myndlistarmaður. Dóttir hennar:
með Jóni Axel Björnssyni mynd-
listarmanni er Brynja Jónsdóttir, f.
1990; Smári, f. 11.4. 1961, tónlist-
armaður, bús. í Hafnarfirði. Kona
hans er Birna Lísa Jensdóttir, f.
27.7. 1964. Dóttir Smára með Heiðu
Hringsdóttur Jóhannesarsonar
myndlistarmanns er Tinna Smára-
dóttir, f. 1981. Dóttir Tinnu: Kol-
finna Andradóttir, f. 2007.
Hálfsystkini Eiríks, sammæðra:
Benjamína Ingibjörg Ástvalds-
dóttir, f. 5.5. 1927, húsmóðir; Sig-
rún Ástvaldsdóttir, f. 6.6. 1929, d.
6.7. 1970, húsmóðir; Sigurður
Gunnar Ástvaldsson, f. 11.9. 1930,
d. 13.7. 1984, sjómaður; Ingveldur
Gyða Ástvaldsdóttir, f. 7.9. 1931, d.
27.10. 1983, húsmóðir; Guðbjörg
Ástvaldsdóttir, f. 13.11. 1933, d.
15.10. 1999, húsmóðir; Garðar Ást-
valdsson, f. 22.9. 1936, d. 10.2. 2005,
rafvirki.
Foreldrar Eiríks: Finnbogi Rút-
ur Kolbeinsson, f. 9.11. 1893 í Un-
aðsdal í Snæfjallahreppi, d. 21.1.
1968, sjómaður, og Guðbjörg Sig-
ríður Benjamínsdóttir, f. 6.11. 1896
á Syðri-Gegnishólum í Gaulverja-
bæjarhreppi, Árn., d. 25.4. 1986,
húsmóðir. »Myndir úr afmæli | 29
Úr frændgarði Eiríks Smith
Eiríkur
Smith
Þorbjörg Jónsdóttir
húsfreyja á Ósabakka
Halldór Vigfússon
b. á Ósabakka á Skeiðum, Árn.
Ingibjörg Halldórsdóttir
húsfr. á Syðri-Gegnishólum
Benjamín Jónsson
b. á Syðri-Gegnishólum
Guðbjörg Sigríður Benjamínsdóttir
húsfreyja í Hafnarfirði
Sigríður Vigfúsdóttir
húsfr. á Syðri-Gegnishólum
í Flóa, Árn.
Jón Jónsson
sjóm. í Hafnahúsum í Grindavík
Elísabet Björnsdóttir
húsfreyja á Bæjum
Jón Jónsson
b. á Bæjum á Snæfjallaströnd
Sigurborg Jónsdóttir
húsfreyja í Unaðsdal
Kolbeinn Jakobsson
b. og hreppstj. í Unaðsdal á Snæfjallaströnd
Finnbogi Rútur Kolbeinsson
sjómaður og verkamaður,
síðast bús. í Rvík
Elísabet Þorleifsdóttir
húsfr. á Tirðilmýri og Berjadalsá
Jakob Kolbeinsson
b. á Tirðilmýri á Snæfjallaströnd,
N-Ís., síðar á Berjadalsá
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 2015
Merkir íslendingar
95 ára
Anna Margrét Kolbeins-
dóttir
90 ára
Jón Ingibergur Herjólfsson
85 ára
Katrín Árnadóttir
Sólveig Jónsdóttir
Sævaldur Runólfsson
80 ára
Gestur Þorsteinsson
Kristinn Jónas Steinsson
Magnús Kristinsson
Margrét B. Aðalsteinsdóttir
Sólveig Gunnarsdóttir
75 ára
Ásmundur Sigurðsson
Halldór Valgarður Karlsson
Jóhanna Garðarsdóttir
Sigurður Kristinn
Haraldsson
70 ára
Árdís Maggý Björnsdóttir
Bjarni Valgeirsson
Finnur Guðmundsson
Grétar G. Guðmundsson
Hazer Krasnici
Ingveldur Jóhannesdóttir
Njáll Ölver Sverrisson
Óskar Þorleifsson
Sigríður Stefánsdóttir
Ægir Sigurðsson
60 ára
Ásbjörn Hagalín
Steinarsson
Bjarni Bjarnason
Georg Magnússon
Guðrún K. Þorsteinsdóttir
Jenný Þóra Eyland
Margrét Gunnarsdóttir
Rósa Þórisdóttir
Sesselja Erna
Finnbogadóttir
Sigrún
Sigurðardóttir
Örn Marelsson
50 ára
Björn Svanur Víðisson
Elías Már Hallgrímsson
Guðrún Linda Helgadóttir
Jolanta Kochanowska
Karl Þráinsson
Kristjana Erlen
Jóhannsdóttir
Magnús Örn Einarsson
Ólafur Hjalti Erlingsson
Rósa Harðardóttir
Skjöldur Sigurjónsson
Sævar Sigurjón Þórsson
Þorsteinn Valur Ágústsson
40 ára
Agnar Benónýsson
Daníel Svavarsson
Dragana Mladenovic
30 ára
Adam Cegielko
Aldís Ósk Sævarsdóttir
Monika Branska
Nopparat Boonlit
Rose Ann Velasco Quijano
Runólfur Jóhann
Kristjánsson
Til hamingju með daginn
30 ára Guðmundur ólst
upp á Hallormsstað en
býr í Reykjavík og er flug-
maður hjá Air Atlanta.
Maki: Arna Óttarsdóttir, f.
1985, vinnur í markaðs-
deildinni í Bláa lóninu.
Systkini: Þóra Elísabet, f.
1982, og Gunnar Kristinn,
f. 1994.
Foreldrar: Jón Guð-
mundsson, f. 1954, tón-
listarkennari, og Kristín
Björk Gunnarsdóttir, f.
1955, grunnskólakennari.
Guðmundur
Ingvi Jónsson
30 ára Kjartan er frá
Stöðvarfirði, býr í Reykja-
vík og er forritari hjá CCP.
Maki: Lovísa Ólöf Guð-
mundsdóttir, f. 1986, verk-
efnastj. hjá Vottunarstof-
unni Tún.
Börn: Hrönn, f. 2011, og
Erna Jóhanna, f. 2014.
Foreldrar: Albert Ómar
Geirsson, f. 1950, þúsund-
þjalasmiður, og Sigríður
Katrín Júlíusdóttir, f. 1948,
hjúkrunarfr. og vefari, bús.
á Stöðvarfirði.
Kjartan Árni
Albertsson
30 ára Lísbet er Ísfirð-
ingur og er sjálfstætt
starfandi húsamálari.
Maki: Gunnar Jónsson, f.
1988, myndlistarmaður.
Börn: Sara Emily, f. 2003,
Hörður, f. 2005, Björt, f.
2012, og Fjóla, f. 2014.
Foreldrar: Hörður Ing-
ólfsson, f. 1958, fram-
kvæmdastjóri og flug-
maður, bús. á Akureyri,
og Ólöf Davíðsdóttir, f.
1956, myndlistarkona í
Brákarey í Borgarnesi.
Lísbet Harðard.
Ólafardóttir
Þorsteinn B. Gíslason hefur varið
doktorsritgerð sína við Háskólann í
Gautaborg. Ritgerðin ber heitið: Fram-
heilabilun hjá öldruðum, algengi,
áhættuþættir og dánartíðni.
Framheilabilun (frontotemporal de-
mentia) er hrörnunarsjúkdómur, sem
leggst á fremri hluta heilans, þ.e. á
ennis- og gagnaugablöð. Framheila-
bilun veldur ekki minnistapi eins og
flestir aðrir heilabilunarsjúkdómar,
heldur orsakar framheilabilun hæg-
fara hnignun á dómgreind, samkennd
og félagslegri færni. Á fyrstu stigum
sjúkdómsins getur verið vandasamt
að átta sig á því að um heilabilunar-
sjúkdóm sé að ræða. Það er einnig
nánast ógerlegt að greina sjúkdóminn
nema upplýsingar fáist frá aðstand-
endum. Fram til þessa hefur verið tal-
ið, að framheilabilun komi fyrst og
fremst fram hjá einstaklingum á aldr-
inum 40-65 ára, og að framheilabilun
sé mjög sjaldgæf eftir sjötugt. Þessi
doktorsritgerð byggist á rannsókn,
sem gerð var á úrtaki einstaklinga á
aldrinum 70-95 ára í Gautaborg, Sví-
þjóð. Markmið rannsóknarinnar var að
kanna algengi, áhættuþætti og dánar-
tíðni framheilabilunar í þessum
aldurshópi. Allir
þátttakendur fóru
í ýtarlega læknis-
skoðun og tekin
voru greiningar-
viðtöl við nána að-
standendur til að
greina framheila-
bilun og aðra sjúk-
dóma, sem valda
heilabilun (t.d. Alzheimers-sjúkdóm).
Í ljós kom, að framheilabilun meðal
aldaðra var algengari en áður var talið
(næstum 4% af öllum á aldrinum 80-
89 ára voru greindir með framheila-
bilun). Einnig komu fram eftirfarandi
áhættuþættir fyrir framheilabilun:
misnotkun áfengis, heilablóðföll, höf-
uðáverkar og vanstarfsemi skjaldkirt-
ils. Jafnframt voru einstaklingar með
framheilabilun oftar fráskildir en aðrir
þátttakendur. Framheilabilun reyndist
einnig stytta lífslíkur meir en aðrir
heilabilunarsjúkdómar, þar með talið
Alzheimers-sjúkdómur. Það er mikil-
vægt að vekja athygli á þessum sjúk-
dómi, því hann leggur þungar byrðar á
herðar aðstandenda og styttir líf um-
talsvert, jafnvel meira en aðrir heila-
bilunarsjúkdómar.
Þorsteinn B. Gíslason
Þorsteinn B. Gíslason fæddist árið 1963. Hann lauk námi í læknisfræði við Há-
skóla Íslands og stundaði framhaldsnám í geðlæknisfræði við Landspítala Há-
skólasjúkrahús og Sahlgrenska sjúkrahúsið í Gautaborg. Hann hefur á sl. árum
m.a. unnið við öldrunargeðdeild Sahlgrenska sjúkrahússins.
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhella 9 | 221 Hafnarfjörður | sími 564 6070
Fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
Kvarnatengi
fyrir zetur og
sakkaborð
Stærðir eru:
12 S, 15 S, 18 S, 20 S,
25 S og 12 B, 15 B,
18 B, 20 B, 25 B
70 kr. stk.
Nýt
t