Þjóðmál - 01.03.2007, Side 44

Þjóðmál - 01.03.2007, Side 44
42 Þjóðmál VOR 2007 af. hagnaði. bankanna. stórlega. lækkað .. Enn. fremur. er. athyglisvert,. að. Straumur- Burðarás,. sem. lánar. ekki. til. einstaklinga,. hefur.hagnast.einna.mest.bankanna . Það.var.eitt.stærsta.framlag.Adams.Smiths. til. aukins. skilnings. á. eðli. og. lögmálum. atvinnulífsins.að.benda.á,.að.eins.gróði.þarf. ekki. að.vera. annars. stap ..Bankarnir.græða. vissulega,.en.það.merkir.ekki.nauðsynlega,.að. innlendir.viðskiptavinir.þeirra,.þar.á.meðal. heimilin,. tapi .. Þorvaldur. lætur. hins. vegar. líta.svo.út.sem.viðskiptavinirnir.tapi ..Hann. breytir. lækkun.vaxtamunar. inn-.og.útlána. í.hækkun.hans.með.því.að.velja.tölur,.sem. hafa. lítið. sem.ekkert.upplýsingagildi ..Hitt. er.annað.mál,.að.vaxtamunur.milli.Íslands. og. annarra. landa. er. verulegur,.og. ástæðan. til. þess. er,. að. Seðlabankinn. krefst. hárra. stýrivaxta. í. því. skyni. að. halda. verðbólgu. niðri,. takmarka. eyðslu. og. örva. sparnað .. Þess.vegna.eru.vextir.jafnt.á.innlánum.sem. útlánum.hærri.en.annars.staðar .. Sú.hugmynd,.að.eins.gróði.hljóti.að.vera. annars. stap,. gengur. aftur. í. eftirfarandi. fullyrðingu. Þorvalds. Gylfasonar:. „Landsbankinn. og. Búnaðarbankinn. voru. seldir.einkavinum.á.undirverði .“.Hugsunin. virðist. vera. þessi:. Þar. eð. bankarnir. hafa. hækkað.mjög.í.verði.vegna.stórgróða.síðustu. ára,. hlýtur. almenningur. að. hafa. orðið. af. þeirri. verðhækkun .. Þetta. er. auðvitað. ekki. rétt:. Gróði. bankanna. hefði. ekki. myndast,. hefðu. þeir. verið. áfram. í. eigu. ríkisins .. En. Þorvaldur. segir. einnig:. „Undirverðið. mátti. m .a .. ráða. af. því,. að. Landsbankinn. og. Búnaðarbankinn. voru. settir. á. markað. báðir. í. einu. til. að. þrýsta. verðinu. niður,. enda. hækkaði. verðið. á. bréfum. í. báðum. bönkum.eftir. söluna .“30.Af.því. tilefni. skal. rifjað.stuttlega.upp,.hvernig.bankarnir.tveir. voru. seldir .. Fyrst. var. hluti. þeirra. seldur. almenningi. og. starfsfólki. á. tiltölulega. lágu. verði. árin. 1998-1999,. en. í. frjálsum. viðskiptum. með. hlutabréf. myndaðist. síðan. verð. á. þeim .. Þá. var. reynt. haustið. 2001. að. vekja. áhuga. erlendra. kaupenda. á. ráðandi. hlutum. í. bönkunum,. ekki. síst. þar.sem.talið.var,.að.það.væri.til.þess.fallið. að. minnka. getsakir. um. söluna. hérlendis .. Undirtektir. voru. dauflegar .. Minna. má. á,. að. hið. sama. gerðist,. þegar. reynt. var. um. sama.leyti.að.selja.Símann,.og.varð.að.fresta. sölu. ráðandi.hlutar. í. fyrirtækinu .. „Stærstu. einkavæðingaráform. sögunnar. hafa. beðið. alvarlegt. skipbrot,“. sagði. Jóhanna. Sigurðardóttir. á. Alþingi. 6 .. mars. 2002. og. krafðist. að. venju. rannsóknar. málsins .31. Samdráttur. var. í. íslensku. atvinnulífi. árið. 2002,.eins.og.sjá.má.á.10 ..mynd .32.Horfur. voru. ekki. vænlegar .. En. um. sumarið. tókst. þrátt.fyrir.það.að.selja.20%.Landsbankans. í. almennu. útboði .. Þá. barst. einnig. óvænt. ósk.um.viðræður.um.kaup.á. ráðandi.hlut. í. bankanum. frá. Björgólfi. Guðmundssyni,. syni. hans,. Björgólfi. Thor. Björgólfssyni,. og. viðskiptafélaga. þeirra. feðga,. Magnúsi. Þorsteinssyni .. Björgólfur. hafði. misst. allar. eigur.sínar.í.svonefndu.Hafskipsmáli.sextán. árum. áður,. en. komið. undir. sig. fótunum. aftur.í.Rússlandi,.þar.sem.hann.hafði.ásamt. syni.sínum.og.Magnúsi.rekið.bjórverksmiðju. frá. 1998 .. Hollenski. bruggarinn. Heineken. keypti. í. febrúarbyrjun. 2002. fyrirtækið. af. þeim. félögum. við. geipiverði,. 41. milljarði. króna .. Eftir. að. ósk. þeirra. Björgólfs. Guð- mundssonar. um. viðræður. barst,. var. ákveðið.að.auglýsa.Landsbankann.og.Bún- aðarbankann.til.sölu ..Þrír.aðilar,.sem.full- nægðu. settum. skilyrðum,. lýstu. áhuga. á. að.kaupa.ráðandi.hlut.í.Landsbankanum .. Að. áeggjan. hins. kunna. fjármálafyrirtækis. HSBC.(Hong.Kong.and.Shanghai.Banking. Corporation).var.gengið. til. samninga.við. Björgólf. og. félaga,. enda. þóttu. þeir. sýna. best.fram.á.greiðslugetu.sína ..Keyptu.þeir. 45,8%.bankans. í. árslok.2002. á. röska.12. milljarða.króna ..Það.var.12%.hærra.gengi. 1-2007.indd 42 3/9/07 2:43:46 PM

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.