Morgunblaðið - 04.09.2015, Side 1

Morgunblaðið - 04.09.2015, Side 1
FORELDRAR OG BARN EIGA SAMAN GÆÐASTUND ANNA SKRAPPAR HRÚTURINN LAGÐUR GAF TÓNINN ÓÞRJÓTANDI MÖGULEIKAR, 10 ELÍN OG INGVAR 16-1724 SÍÐUR UM UPPELDI Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Aðsókn í köfun í Silfru á Þingvöllum nálgast öryggismörk, að mati Ólafs Arnar Haraldssonar þjóðgarðsvarðar. Aðsóknin hefur vaxið stöðugt síðustu ár og reiknar hann með að fjöldi gesta fari yfir 20 þúsund í ár. Fyrir fimm árum komu um fimm þúsund manns til að kafa og snorkla. „Með þessa þróun í huga er að koma að mörkum við Silfru á margvíslegan hátt,“ segir Ólafur Örn. „Hvað öryggis- þáttinn varðar getur aukin aðsókn leitt til aukinnar hættu og við nálgumst ör- yggismörk.“ Hann segir að náttúran í gjánni og bökkum hennar sé viðkvæm og þar þurfi að fara með gát svo gjáin skaðist ekki og mosi og annar gróður á bökkunum troðist upp. Frá sjónarhóli neytandans sé það hluti af upplifuninni og ánægjunni að vera ekki í mannmergð í gjánni og þarna sé ekki hægt að fjölga endalaust. Þá þurfi að bæta aðstöðu á landi fyrir þennan mikla og vaxandi fjölda. Ólafur Örn ber fyrirtækjum, sem skipuleggja köfun í Silfru, vel söguna, en þau eru nú átta talsins. Hann segir hins vegar að nokkuð sé um ein- staklinga sem kafi þar án leyfis og af lítilli fyrirhyggju. Silfra nálg- ast örygg- ismörk  Búist við 20 þúsund manns í köfun í ár M Örtröð á annatímum… »6 Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu er einu stigi frá því að tryggja sér sæti í loka- keppni stórmóts í fyrsta skipti eftir frækinn sigur á bronsliði síðasta heimsmeistara- móts, Hollandi, í Amsterdam í gærkvöldi. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu, 1:0, og Ísland sigraði því Holland í báðum leikjum liðanna í keppninni. Miklar líkur eru á að sætið í lokakeppninni í Frakklandi 2016 verði í höfn nk. sunnu- dag. Ef Tyrkland og Holland gera jafntefli síðdegis þann dag fer Ísland á EM, sama hvernig viðureign Kasakstan og Íslands um kvöldið á Laugardalsvellinum endar. Gríðarlegur fögnuður braust út hvar sem Íslendingar komu saman til að sjá leikinn. Í Amsterdam voru um 4.000 manns á vellinum. »4 og Íþróttir Gylfi tryggði Íslandi sigurinn í Amsterdam Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Íslenska karlalandsliðið er aðeins einu stigi frá sæti á EM í Frakklandi á næsta ári Morgunblaðið/Árni Sæberg BURT ÚR BÆNUM MEÐ HÓPINN FRÁBÆR FERÐATILBOÐ TIL ALLRA ÁFANGASTAÐA OKKAR INNANLANDS OG LÍKA TIL FÆREYJA Nánari upplýsingar á hopadeild@flugfelag.is eða í síma 570 3075 Stofnað 1913  207. tölublað  103. árgangur  F Ö S T U D A G U R 4. S E P T E M B E R 2 0 1 5 Sex lífeyrissjóðir, sem samanlagt eiga rúm 15% af hlutafé Símans, hafa lýst andstöðu við kaupréttaráætlun sem stjórn fyrirtækisins hefur ákveðið að leggja fyrir hluthafafund í næstu viku. Telja þeir að með áætluninni sé starfs- mönnum fyrirtækisins ívilnað á kostnað hluthafa í fyrirtækinu. Áætlunin gerir ráð fyrir því að starfsmennirnir geti keypt allt að 7,7% hlut í fyrirtækinu yf- ir fimm ára tímabil, á sama gengi og Arion banki ákvað að selja hópi fjár- festa 5% hlut í Símanum á í síðustu viku. Bankinn mun bjóða enn stærri hlut til sölu í opnu útboði fyrir lok þessa árs. » 18 Andstaða við kauprétt starfsmanna Símans

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.