Morgunblaðið - 04.09.2015, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 04.09.2015, Qupperneq 11
Morgunblaðið/Eggert Gæðastundir Önnu Sigríði og dætrunum Steinunni Lóu og Helgu Soffía finnst gaman að föndra saman. heima hjá sér og skrappa eða hekla og prjóna á köldum og nöt- urlegum síðkvöldum. Henni kippir í kynið að því leytinu því móðir hennar, Svala Helga Eiríksdóttir, er einnig mikil föndur- og hann- yrðakona. „Mamma vakti athygli mína á skrappinu, sem hún rakst á þegar hún var að vafra á netinu í árs- byrjun 2005. Við höfðum alltaf föndrað mikið úr pappír, bjuggum til alls konar tækifæriskort, og þar sem skrappið byggist aðallega á pappírsföndri vorum við mjög spenntar að prófa. Mamma er löngu hætt en er ennþá að búa til kort, eins og ég reyndar líka.“ Áhuginn glæðist Á þessum tíma var skrapp nánast óþekkt hér á landi og fátt um þar til gerðan efnivið í verslunum. Öðru máli gegnir núna að sögn Önnu Sigríðar, því áhugasamir geti skráð sig inn á Fa- cebook-síðuna Skrapphópurinn til að vera vel með á nótunum um nýj- ungar og ýmislegt sem lýtur að fönd- urgerðinni sem og deilt fróðleik og upplýsingum með 224 áhugasöm- um skröppurum. Upp úr dúrnum kemur að sjálf er hún með facebo- ok-síðu, sem nefnist Skrapparinn. Vitaskuld. „Nú orðið hafa helstu fönd- urbúðir á boðstólum allt sem til þarf. Skrapp er tiltölulega ódýrt tómstundagaman og stofnkostn- aðurinn viðráðanlegur, enda borg- ar sig ekki að fara of geyst af stað. Undirstaðan er gormastíla- bók með þykkum blaðsíðum, lím og skæri. Bækurnar eru til í mörgum stærðum, algengastar eru 32 x 32 sm, en byrjendum finnst þær yfirleitt allt of stórar og því ráðlegg ég þeim að fá sér minni bók til að byrja með. “ Svo mikill er áhugi Önnu Sig- ríðar á skrappinu að hún bæði les sér til um skrapp á netinu og er í sambandi við bandaríska og kan- adíska skrappara á spjallsíðum. „Þótt skrappið sé gamalt listform sem á rætur að rekja til Viktor- íutímans á Englandi, er einna mest hefð fyrir því í Bandaríkj- unum og Kanada. Í gamla daga voru ljósmyndir að vísu ekki not- aðar í skrappbækurnar eins og núna, en að öðru leyti var hugs- unin að baki sú sama.“ Sjálf tekur Anna Sigríður ógrynni ljósmynda og límir í skrappbækurnar sínar. Þær eru orðnar býsna margar, einar átján sem hún er með uppi við, og all- margar í kössum í geymslu. „Dætrum mínum, Helgu Soffíu, 7 ára, og Steinunni Lóu, 5 ára finnst mjög gaman að skoða þessar bæk- ur og eru svolítið farnar að skrappa sjálfar. Eiginmaðurinn, Sigurður Bjarnason, er hins vegar ekkert í þessu með okkur, þótt hann kíki stundum á afrakstur vinnunnar,“ segir Anna Sigríður og bætir við að karlmenn virðist almennt ekki mikið fyrir „dúllerí“ af þessu tagi. „Dúllerí“ á tölvuöld Spurð hvort svona „dúllerí“ sé ekki svolítið úrelt nú þegar flestir taka stafrænar myndir og geyma minningarnar í tölvunum sínum, spyr hún á móti hversu margir komi heim til manns og skoði myndirnar í tölvunni. „Svo hrynur tölvan kannski og þar með eru myndirnar glataðar. Á tímum staf- rænna myndavéla finnst mér jafn- vel mikilvægara en áður að varð- veita myndir og minningar í fallegri umgjörð eins og skrapp- bækurnar geta verið.“ Hún segir möguleikana óþrjótandi og hvorki þurfi að vera góður teiknari né hafa fallega rit- hönd til að búa til fallegar bækur. Enda megi þá leita fanga í tölv- unni, sækja í hana alls konar myndir og prenta út orð og setn- ingar úr fallegu letri. Mitt rými Svona er skrapp- herbergið hennar Önnu Sig- ríðar. Skrappið er gamalt list- form sem á rætur að rekja til Viktoríutímans. Fín dama Mynd af Steinunni Lóu að drekka kaffi rataði í skrappbókina. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2015 Stephen Barslow ræktar um 2.000 ætar plöntur í garðinum sínum í Noregi og ber nafnbótina The Extreme Salad Man, eða öfgafulli salatmaðurinn, eftir að hafa slegið óformlegt heimsmet í fjölda jurtategunda í einni salatskál. Í salatinu, sem tók 20 tíma að útbúa, voru 538 jurtir. Að hans sögn smökkuðust engir tveir munnbitar eins. Barslow kveðst reglulega búa til „öfgasalat“ en nota þá bara 50 til 100 tegundir. Sumarhúsið og garðurinn og Töfrastaðir standa fyrir fyrirlestrum og námskeiði með Stephen Barslow á laugardaginn og mánudaginn, annars vegar í sal Garðyrkjufélags Íslands í Síðumúla kl. 13 til 17 þann 5. september og hins vegar í Hlíð- ardalsskóla í Ölfusi kl. 10 til 16 þann 7. september. Barslow, sem er með söfnunaráráttu fyrir plöntum og jafnframt plöntuæta, gaf í fyrra út bókina Around the World in 80 Plants. Til að fá nánari upplýsingar um námskeiðið í Reykjavík má senda fyrirspurn á netfangið audur@rit.s. Fyrir- spurnir um námskeiðið í Ölfusi skulu sendast á netfangið permamoli@gmail.com Stephen Barslow með fyrirlestra og námskeið Plöntuæta Stephen Bars- low gæðir sér á fögrum og litríkum blómum. Öfgafulli salatmaðurinn fjallar um ætar plöntur og segir sögur Í framhaldi af því að listamaðurinn Arna Valsdóttir flutti vídeó, söng og innsetningu á heimili sínu þegar víd- eólistahátíðin heim var opnuð á Akureyrarvöku 2015 í liðinni viku, fluttu listamennirnir Arnar Ómarsson og Freyja Reynisdóttir inn á heimili hennar. Í kvöld kl. 23 opna þau þar sýningu sína, loop, sem stendur til sunnudagsins 6. september. Sýningin er opin frá kl. 21 til 01 laguardag og sunnudag. loop er samansafn vídeóverka sem unnin eru á staðnum með heimilið sem viðfangsefni. Listamennirnir unnu út frá rýminu sjálfu og reynslu sinni sem gestir og einnig sem heim- ilisfólk. Ferlið og útkoman er til- raunakennd og fyrirvaralaus. Vídeólistahátíðin heim er að Vana- byggð 3, efri hæð, Akureyri. Fyrir- hugað er að hátíðin verði árlegur við- burður og er hugsunin að virkja sem flesta skjái í bænum í eina viku á ári og standa fyrir einskonar heimsend- ingu á vídeólist inn á heimili Akureyr- inga. A!Gjörningahátið er haldin sömu daga. Vídeólistahátíðin heim Listamennirnir Freyja Reynisdóttir og Arnar Ómarsson. Tilraunakennt og fyrirvara- laust ferli Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Jóhannes S.Kjarval Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna. mánudaginn 7. september og þriðjudaginn 8. september uppboðin hefjast kl. 18 Listmunauppboð í Gallerí Fold Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Forsýning alla helgina í Gallerí Fold föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–17, sunnudag kl. 12–17, mánudag kl. 10–17, þriðjudag kl. 10–17 (þau verk sem boðin eru upp á þriðjudag)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.