Morgunblaðið - 04.09.2015, Blaðsíða 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2015
á fallegum, notalegum stað á
5. hæð Perlunnar.
ERFIDRYKKJA
Perlan • Sími 562 0200 • Fax 562 0207 • perlan@perlan.is
Pantanir
í síma
562 0200
MOSFELLSBAKARÍ
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
Brauð dagsins alla föstudaga
Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.
Í 15 daga hef ég ver-
ið inniliggjandi sjúk-
lingur á Landspítala
Háskólasjúkrahúsi v/
Hringbraut. Þegar
veikindin fara aðeins
að brá af manni er
nógur tími til að hug-
leiða og einhvern veg-
inn gerðist það með
mig að ég fór að hug-
leiða það sem var mest
í umræðunni á hverjum degi og
reyndi sjálfur að mynda mér skoð-
anir á því sem sagt var. Ég hef aldr-
ei skrifað pólitíska grein áður og
ekki skipt mér af þeim efnum, ég tel
mig frekar vera hægri mann en hitt,
og langar því að reyna að skipta
grein minni niður í flokka, ef það má
kalla það svo.
Verkföll í heilbrigðisstéttum
Sl. vetur hefur allt logað í verk-
föllum hjá heilbrigðisstéttum,
læknar, hjúkrunarfræðingar,
geislafræðingar og hvað nú allt
þetta heitir. Af hverju er ekki hægt
að greiða þessu fólki mannsæmandi
laun og vera með eitt stéttarfélag?
Að fylgjast með starfsfólki Land-
spítalans, hvernig það leggur sig allt
fram við störf sín, er aðdáunarvert.
Það er ekki nóg með að það hjúkri
manni á sinn allra besta hátt, heldur
einnig sýnir það kærleika og mikla
fórnfýsi, talar hlýlega til manns og
víkur ekki frá manni þegar veik-
indin eru sem mest. Alveg sama á
hvaða vakt fólk var, þau voru á þön-
um milli stofa. Við ættum að
skammast okkar og greiða þessu
fólki hæstu laun sem greidd eru. Nú
vil ég ekki endilega tala bara um
heilbrigðisþjónustna á Landspítala,
sem er til fyrirmyndar, heldur einn-
ig landsbyggðarinnar. Þar er líka
veikt fólk en svo til engir læknar eða
hjúkrunarfræðingar, hvað þá ljós-
mæður. Í minni heimabyggð, Vest-
mannaeyjum, er ágætis sjúkrahús,
en það verður að flytja allt mjög
veikt fólk flugleiðis til Reykjavíkur
vegna þess að í Eyjum er enginn
sérfræðingur eða aðstæður til vera
með mjög veikt fólk. Konur geta
ekki einu sinni fætt börn sín á
sjúkrahúsinu, þar sem ekki eru
læknar eða ljósmæður til staðar. Og
sjúkraflugvél er staðsett á Húsavík.
Sjúkraflugvél er þrjár klst. að fljúga
frá Húsavík til Vestmannaeyja og
20-30 mínútur til Reykjavíkur. Ef ég
tek sjálfan mig sem dæmi þá er ég
hjartasjúklingur og krabbameins-
sjúklingur. Hefði ég verið staddur
heima í Vestmannaeyjum 6. ágúst
sl. væri ég ekki hér lengur, en eitt-
hvað varð til þess að ég dreif mig á
höfuðborgarsvæðið.
Í lok máls míns um
heilbrigðismál vil ég
segja þetta: Það er
100% nýting á starfs-
fólki heilbrigðisstofn-
ana á Íslandi og við
eigum að skammast
okkar fyrir að geta
ekki skaffað þessu
dásamlega fólki al-
mennileg laun og að-
stöðu til starfa sinna.
Ég dáist að íslensku
heilbrigðisstarfsfólki, en alltaf er
það eitthvað sem eyðileggur. Dagur
B. Eggertsson og fylgdarlið vill
Reykjavíkurflugvöll burt þó svo að
meirihluti þjóðarinnar segi nei. Ég
held að Dagur og hans fylgdarlið
þurfi að fara að læra eitthvað um
rekstur en Reykjavík er rekin með
bullandi tapi, ef Orkuveituhagnaður
er dreginn frá. Dagur B. Eggerts-
son og hans fylgdarlið eru bara fjöl-
miðlasjúkir kjaftaskar sem halda að
hægt sé að reka Reykjavík á kaffi-
húsum í 101, vita ekkert um stjórn-
un fyrirtækja, því, jú, Reykjavíkur-
borg er bara venjulegt lítið
fyrirtæki. Við þurfum líka að átta
okkur á að við höfum ekki sjúkra-
hús til að taka við mikið fleiri sjúk-
lingum.
Kjaradeila BHM
Ekki ætla ég að fara út í kjara-
deilur BHM, en ekki fannst mér það
viturlegt sem kom frá sumum
félagsmönnum BHM í hita leiksins
á sínum tíma. Jú, það er til fullt af
fólki sem getur lært á bókina, en
það er líka til fullt af sprenglærðu
fólki sem bara alls ekkert gagn er í.
Ég hef sjálfur verið í rekstri alla
mína tíð og mér er ógmögulegt að
skilja hvernig meta á menntun til
launa. Sennilega yrði að sitja yfir
hverjum starfsmanni og meta nýt-
ingu hans. Hitt er svo annað mál og
það er mín skoðun er sú að prestar
og þeir sem gegna sálgæslu og boð-
un kristinnar trúar eigi að hafa góð
laun. Er það ekki hneyksli að fyrr-
verandi ráðherra og núverandi for-
maður BHM, Þórunn Sveinbjarn-
ardóttir, skuli ganga fram með
offorsi vegna lagasetningar á verk-
fall BHM. Sjálf nýbúin að setja lög
á flugvélstjóra.
Hvert erum
við að fara í heil-
brigðismálum?
Eftir Friðrik I.
Óskarsson
Friðrik Ingi Óskarsson
» Að fylgjast með
starfsfólki Landspít-
alans, hvernig það legg-
ur sig allt fram við störf
sín, er aðdáunarvert.
Höfundur er fv. framkvæmdastjóri
og eldri borgari.
Rekstrarvandi A-
hluta borgarsjóðs er
ekki einhver tímabund-
in óheppni, vegna þess
að ekki náðist að selja
nógu margar lóðir. Eða
vegna þess að síðasti
vetur hafi verið óvenju
snjóþungur, líkt og í
öðrum betur reknum
sveitarfélögum. Heldur
er vandinn langvarandi
kostnaðarvandi.
Þrátt fyrir að í Reykjavík hafi út-
svarið verið í hæstu hæðum frá árinu
2010, hagvöxtur og almennt efna-
hagsástand verið á uppleið hefur A-
hluti borgarsjóðs, að einu ári undan-
skildu, verið rekinn með tapi síðan
2010. Þetta eina ár sem staða sjóðsins
var hífð upp fyrir núllið, var það gert
með eignatilfærslum og öðrum bók-
haldsbrellum.
Nú er svo komið að ekki verður
brugðist við vandanum á annan hátt,
en að lækka rekstrarkostnað borgar-
innar verulega, eða um 10%. Afsak-
anir, um að eitthvað
annað en fjármálastjórn
borgarinnar hafi brugð-
ist, duga ekki lengur og
eru beinlínis skaðlegar.
Við blasir að fækka
verði stöðugildum hjá
borginni um 500. Án
þess þó að þjónustan
skerðist um það sem því
nemur.
Reyndar var ekki
hægt að fara með þjón-
ustuna neðar en á botn-
inn þar sem hún er sam-
kvæmt síðustu
þjónustukönnun Gallup.
Verði ekkert að gert og verði fjár-
málum borgarinnar áfram stýrt af
sömu lausung og verið hefur undan-
farin fimm ár, þá mun eigið fé borg-
arinnar verða uppurið eftir 15 ár.
Það ætti því að vera orðið hverjum
manni ljóst, nema kannski meðhlaup-
urum núverandi meirihlutaflokka í
borgarstjórn og meirihlutanum sjálf-
um, að núverandi meirihluti Samfylk-
ingar, Bjartrar framtíðar, Vinstri
grænna og Pírata er gersamlega úti á
þekju í fjármálum borgarinnar. Það
sem er kannski enn verra, er það að
núverandi meirihluti hefur enga
burði til þess að taka á málunum af
myndugleika. Enda er þar valinn
maður í hverju rúmi í því að bruðla
með annarra manna peninga.
Stærsti vandinn er þó kannski sá,
að borgarstjóri þráir sviðsljósið,
meira en allt annað. Enda þar allt svo
bjart og fagurt. En forðast dagsljósið,
sem er þó eins og sakir standa æði
drungalegt, eins og heitan eldinn.
Enda þar ekkert að finna nema upp-
söfnuð leiðindi, en þó lífsnauðsynleg,
til þess að stýra málum hér í borginni
á þann hátt að ekki hljótist af stór-
felldur skaði.
Allskonar fyrir aumingja
fyrir annarra manna peninga
Eftir Kristin Karl
Brynjarsson » Við blasir að fækka
verði stöðugildum
hjá borginni um 500. Án
þess þó að þjónustan
skerðist um það sem því
nemur.
Kristinn Karl
Brynjarsson
Höfundur er annar varaformaður
Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins.