Morgunblaðið - 04.09.2015, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.09.2015, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2015 STUTTAR FRÉTTIR Seðlabankinn vill ekki staðfesta hvenær bankinn hyggst svara und- anþágubeiðni slitastjórnar Glitnis vegna tillagna kröfuhafa slitabúsins um stöðugleikaframlag í tengslum við losun fjármagnshafta. Í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins segir Seðlabankinn að undanþágubeiðn- inni verði svarað um leið og nauðsyn- legri greiningarvinnu lýkur. Bank- inn kveðst þá munu hafa óformleg samskipti við slitastjórn Glitnis í að- dragandanum. Eins og fram kom í Viðskipta- Mogganum í gær er sá tími orðinn mjög knappur sem slitastjórn Glitnis hefur til þess að fá nauðasamning samþykktan af kröfuhöfum og stað- festan af dómstólum. Átta vikur eru nú liðnar frá því að slitastjórnin lagði inn beiðni til Seðlabankans um til- teknar undanþágur frá gjaldeyris- höftum. Þær eru taldar forsendan fyrir því að nauðasamningur fáist samþykktur. Náist ekki að ganga frá samningnum fyrir áramót fellur stöðugleikaskattur á slitabúið sem gæti valdið því að endurheimtur kröfuhafanna yrðu allt að 174 millj- örðum króna minni að mati slita- stjórnar. Engin ákvörðun um birtingu Í svari Seðlabankans kemur fram að mat á áhrifum nauðasamnings Glitnis á efnahagslegan og fjármála- legan stöðugleika er enn í vinnslu í bankanum. Samtímis leggur bank- inn mat á tillögur sem hafa borist frá slitastjórnum annarra banka og eiga samskipti sér stað vegna þeirra við slitastjórnirnar. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort stöðugleikamatið verði gert opinbert og verður tekin ákvörðun um það eftir að undirbún- ingsvinnu er lokið, segir í svari Seðlabanka Íslands. Morgunblaðið/Ómar SÍ Unnið er að stöðugleikamati. Enn unnið að stöðugleikamati  Seðlabankinn í óformlegum sam- skiptum við slitabú ● Einn nefndarmanna peningastefnu- nefndar greiddi atkvæði gegn tillögu seðlabankastjóra um 0,5 prósentustiga hækkun stýrivaxta á síðasta vaxta- ákvörðunarfundi um miðjan ágúst og kaus í þess stað að vextirnir myndu hækka meira, eða um 0,75 prósentur. Þetta kemur fram í fundargerð pen- ingastefnunefndar sem nú hefur verið birt. Nefndarmenn eru fimm og greiddu hinir fjórir með tillögu seðlabanka- stjóra. Helstu rök nefndarinnar fyrir að taka minna skref nú voru þau að tölu- verð óvissa væri um hversu mikið fyrir- tækjum tækist að hagræða á móti kostnaðaraukanum og að alþjóðleg verðbólguþróun vægi í auknum mæli gegn innlendum verðbólguþrýstingi. Einn nefndarmanna vildi hækka vexti meira Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á                                     !  "# "!$ !$" !" " % ! # "!# &'()* (+(     ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 # $!" $ " !!! !# $ %$ #%$ ""# %  %    !$% !"!  %  # "" # $% bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar Enn einn dagur í Paradís Bez t á lambið ● Alls 86% launþega, sem samsvarar 134.200 manns, voru aðilar að stéttar- félagi á síðasta ári samkvæmt vinnu- markaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Rannsóknin sýnir að þátttaka í stéttar- félögum er hlutfallslega meiri meðal kvenna en karla þar sem 91% kvenna voru aðilar að stéttarfélögum í sam- anburði við 82% karla. 86% í stéttarfélagi Þá ku kergja sjóðanna einnig bein- ast að því að forsvarsmenn þeirra fengu kynningu á kaupréttaráætlun- inni og því hvað í henni felst mjög skömmu áður en hún var kynnt form- lega. Telja þeir að lítill tími eða eng- inn hafi gefist til að ræða eðli áætl- unarinnar eða að gera athugasemdir við hana. Sjóðirnir sex Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins eru það Almenni lífeyrissjóð- urinn, Festa, Gildi, Lífsverk, Söfnun- arsjóður lífeyrisréttinda og Stafir sem telja nauðsynlegt að gera breyt- ingar á fyrirliggjandi kaupréttaráætl- un. Samanlagður eignarhlutur þess- ara sjóða nemur 15,19% í Símanum. Gildi er með stærsta einstaka eign- arhlutinn, 6,19%, þar á eftir kemur Almenni lífeyrissjóðurinn með 2,74%, Lífsverk með 2,63%, Sameinaði líf- eyrissjóðurinn 2,23%, Festa á 2,16% og Stafir reka svo lestina með 1,71%. Tveir stærstu ekki með Tveir lífeyrissjóðir eiga stærri hlut í Símanum en fyrrnefndir sjóðir. Það eru Lífeyrissjóður verslunarmanna sem á 13,23% og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins sem á 10,93%. Samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins hafa forsvarsmenn Lífeyrissjóðs verslunarmanna lýst sig fylgjandi kaupréttaráætluninni en forsvars- menn Lífeyrissjóðs starfsmanna rík- isins hafa ekki gefið upp afstöðu sína til hennar. Ákvörðun í höndum hluthafa Orri Hauksson, forstjóri Símans, segir í samtali við Morgunblaðið að ákvörðun um það hvort kaupréttar- áætlunin verði að veruleika sé alfarið í höndum hluthafa fyrirtækisins. „Þetta mál er í höndum hluthafa. Stjórnendur fyrirtækisins myndu hins vegar fagna því ef áætlunin næði fram að ganga. Við teljum hana bæði hófsama leið og skynsamlega til að tvinna saman langtímahagsmuni starfsmanna og fyrirtækisins,“ segir Orri. Sex lífeyrissjóðir ósáttir við kaupréttaráætlun  Telja kauprétti starfsmanna Símans of ívilnandi á kostnað eigenda fyrirtækisins Morgunblaðið/Árni Sæberg Viðskipti Arion banki hefur selt 5% hlut í Símanum og hyggst selja stærri hlut í opnu útboði með haustinu. BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Sex lífeyrissjóðir gera alvarlegar athugasemdir við kaupréttaráætlun sem stjórn Símans hyggst leggja fyrir hluthafafund í fyrirtækinu sem hald- inn verður þriðjudaginn 8. september næstkomandi. Athugasemdirnar lúta að nokkrum þáttum áætlunarinnar en alvarlegasta gagnrýnin snýr að þeirri ákvörðun að allir starfsmenn muni geta keypt 600.000 krónur á ári í fimm ár á því gengi sem forstjóri fyrirtækisins, ásamt nokkrum með- fjárfestum, keypti 5% hlut í fyrirtæk- inu af Arion banka á í liðinni viku. Kaupverð hlutarins nam um 1.330 milljónum króna sem jafngildir 2,5 krónum á hlut. Samkvæmt áreiðanlegum heimild- um Morgunblaðsins telja lífeyrissjóð- irnir óeðlilegt að gengið sé fastsett með þeim hætti sem lagt er til, fimm ár fram í tímann, en taki ekki breyt- ingum til samræmis við þróun mark- aðsverðs fyrirtækisins á því tímabili sem kauprétturinn stendur. Telja að- ilar innan sjóðanna að áætlunin kunni að leiða til þess að starfsfólki fyrir- tækisins verði afhentir hlutir í fyrir- tækinu undir markaðsverði og með því skerðist eignir hluthafa í félaginu, sem margir eru lífeyrissjóðir. Kaup- réttaráætlunin gerir ráð fyrir því að heildarkaupvirði starfsmannanna á árunum fimm geti numið réttum tveimur milljörðum króna. Miðað við fjölda hluta í félaginu í dag gæti heild- areign starfsmannanna 680 sem rétt eiga á kaupréttinum því numið 7,7% af heildarhlutafé fyrirtækisins við lok samningstímans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.