Morgunblaðið - 04.09.2015, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 247. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696
1. EM blasir við íslenska liðinu
2. Bestu kynlífsatriði …
3. Upplifði aldrei líf án stríðs
4. Einhver veit hver myrti konurnar
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Galleríið Kling & Bang kveður sýn-
ingarsal sinn að Hverfisgötu 42 á
morgun, laugardag, kl. 17 með pomp
og prakt og mun DJ Rassi Prump
þeyta skífum í kveðjuteitinni. Kling &
Bang hefur verið þar til húsa í sjö og
hálft ár og er nú orðið húsnæðis-
laust. Á myndinni sjást nokkrir að-
standenda Kling & Bang.
Kling & Bang kveður
Hverfisgötu 42
Kammersveit
Reykjavíkur hefur
42. starfsár sitt
með tónleikum í
Langholtskirkju
11. september kl.
20 og verða þeir
helgaðir verkum
Arvo Pärt sem
verður áttræður
þann dag. Kammersveitin mun leika
Fratres, eitt þekktasta verk Pärts
sem er til í ótal útgáfum fyrir ólíka
hljóðfæraskipan. Einleikarar verða
Frank Aarnink slagverksleikari og
Una Sveinbjarnardóttir fiðluleikari.
Starfsárið hefst með
afmælistónleikum
Þungarokkssveitin HAM mun halda
tónleika í Gamla Bíói föstudaginn 2.
október ásamt gestum. Húsið verður
opnað kl. 20 og klukkustund síðar
stígur gestahljómsveit á
svið og verður til-
kynnt síðar hver sú
hljómsveit er. HAM
er ein vinsælasta
rokksveit landsins
og er nokkuð langt
um liðið frá því
hún hélt síðast tón-
leika í Reykjavík.
HAM í Gamla bíói
Á laugardag Suðvestan 8-15 m/s og súld eða rigning N- og V-
lands, en bjartviðri SA-til. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á A-landi.
Á sunnudag Sunnan 8-13 m/s, skýjað og súld með köflum V-til, en
hægari vindur og léttskýjað á A-verðu landinu. Hiti breytist lítið.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fremur hæg vestlæg eða breytileg átt. Léttir
víða til, en skýjað á V-landi og sums staðar súld SA-lands.
VEÐUR
,,Þessi sigur fer með okkur
langleiðina til Frakklands
en við ætlum okkur að
sjálfsögðu að taka þrjú
stig á sunnudaginn því við
viljum vinna riðilinn,“
sagði Gylfi Þór Sigurðsson
við Morgunblaðið eftir
leikinn gegn Hollendingum
í gærkvöld en hann skoraði
sigurmarkið úr vítaspyrnu
eftir að Birkir Bjarnason
var felldur í vítateig Hol-
lands. »1
Við viljum
vinna riðilinn
„Vinnusemin, dugnaðurinn, eljusemin
og óbilandi sjálfstraust voru það sem vó
þyngst í sigrinum glæsilega og með hon-
um héldu strákarnir okkar áfram að
brjóta blað í sögu íslenskrar knatt-
spyrnu. Fyrsti útisigurinn á Hollend-
ingum er nú í höfn og 3. september 2015
verður skráður merkisdagur í sögu fót-
boltans á Íslandi,“ skrifar Guðmundur
Hilmarsson frá Amsterdam. » 2
Merkisdagur skráður
í sögu fótboltans
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Á sýningunni Afrekskonur, sem
opnuð var í Ráðhúsi Reykjavíkur í
gær, eru afrek íslenskra kvenna,
bæði í hversdagslífi og á opinberum
vettvangi, dregin fram í dagsljósið á
fjölbreyttan hátt.
Sýningin er sett upp í tilefni af 100
ára afmæli kosningaréttar kvenna
og er, að sögn Sóleyjar Tómas-
dóttur, borgarfulltrúa VG og forseta
borgarstjórnar, sameiginlegt afrek
allra kvenna sem sæti eiga í borgar-
stjórn Reykjavíkur. „Þessi tillaga
var samþykkt á hátíðarfundi í
borgarstjórn 31. mars sem eingöngu
konur sátu. Konurnar í borgarstjórn
eiga þessa sýningu í sameiningu.“
Afrek endurskilgreind
Afrek er, samkvæmt skilgrein-
ingu íslenskrar orðabókar, frægðar-
verk eða dáð. Sóley segir að með
sýningarheitinu Afrekskonur sé ver-
ið að hvetja til endurskilgreiningar á
hugtakinu. „Mörg afrek eru í hvers-
dagsleikanum og ég held að flest
okkar hafi yfirunnið áskoranir sem
geta talist til afreka. Í gegnum tíðina
hafa framlagi kvenna til samfélags-
ins ekki verið gerð sömu skil og
karla. Þessi sýning, og aðrar sem
hafa verið opnaðar í ár, vekja athygli
á því mikla framlagi kvenna sem hef-
ur ekki farið hátt, en þarf að sýna og
kynna. Við viljum ekki síst draga
fram einstaklinga sem eru ekki
hoknir af medalíubyrði, heldur hafa
verið að gera hluti sem fáir eða engir
vita af,“ segir Sóley.
Þörf á kvennasýningum
Væri ekki nær að efla hlut kvenna
á sýningum og söfnum, heldur en að
halda sérstakar kvennasýningar?
„Konum þyrfti að vera gert miklu
hærra undir höfði á almennum sýn-
ingum og í fjölmiðlaumfjöllun sam-
tímans og við ættum ekki að þurfa
að vera með svona mikið kvenna-
eitthvað 100 árum eftir að íslenskar
konur fengu kosningarétt. Ég held
að formæður okkar hafi vonast til að
við yrðum núna komin lengra en
þetta. En staðan er þessi og á meðan
konur eru ekki meira sýnilegar en
raun ber vitni, þá þurfum við á sér-
stökum kvennasýningum að halda.
Vonandi verður samfélagið orðið
vanara framlagi kvenna og femin-
ískum áherslum eftir þetta ár. Ef
ekki, þá fögnum við 101 árs afmæl-
inu með pomp og prakt.“
Sýningin verður opin út sept-
ember. Markmiðið er að hún verði
lifandi og muni taka breytingum á
sýningartímanum og að í ráðhúsinu
verði uppákomur og viðburðir í
tengslum við hana. Hægt verður að
senda inn sögur af afrekum kvenna
á vefsíðuna afrekskonur.is allan tím-
ann.
Afrekin í hversdagsleikanum
Sameiginlegt
afrek kvennanna
í borgarstjórn
Morgunblaðið/Eggert
Notalegt Gestir létu fara vel um sig í mjúku sófunum á opnun sýningarinnar í Ráðhúsinu í gær.
Í pontu Sóley Tómasdóttir segir mörg afrek vera í hversdagsleikanum.
Íslenska karlalandsliðið í körfuknatt-
leik er komið til Berlínar og mætir
þar Þýskalandi og Ítalíu í fyrstu
tveimur leikjum sínum í lokakeppni
Evrópumótsins um helgina. Finnur
Freyr Stefánsson aðstoðarlandsliðs-
þjálfari sagði við Morgunblaðið eftir
æfingu í Berlín í gær
að allir væru leik-
færir fyrir
fyrsta leikinn
og mikill hugur
væri í íslensku
leikmönn-
unum. »4
Stóra stundin rennur
upp í Berlín á morgun