Morgunblaðið - 04.09.2015, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2015
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Anna Sigríður Eyjólfs-dóttir er skrappari af lífiog sál. Þótt orðiðskrappari minni á rapp-
ara eða poppara nær samlíkingin
tæpast lengra. Íslenska orðabókin
segir að rappari flytji rapp og
poppari sé sá sem fæst við popp-
tónlist. Skrappara er ekki að finna
í þeirri góðu bók og iðju þeirra því
í engu getið. Samt eru a.m.k. átta
konur skráðar skrapparar í síma-
skránni. Anna Sigríður er ein
þeirra; hún er kona sem fæst við
skrapp. Um það bil annan hvern
dag, upplýsir hún. Svo hefur hún
líka kynnt og kennt skrapp, síðast
á Handverkskaffi í Gerðubergi í
vikunni.
Innt eftir hvað felist í að
skrappa vísar hún í enska orðið
scrap, scrapbook og scrapbooking.
Úrklippualbúm sumsé. Málin eru
farin að skýrast. Grunnskólakenn-
arinn Anna Sigríður kýs þó frekar
að tala um skrapp sem er stutt og
laggott og hljómar íslenskt. Not-
um það eftirleiðis.
Allt á eina bókina lært
„Mér finnst ekki vera til neitt
almennilegt orð yfir þetta á ís-
lensku,“ segir hún og lýsir fyr-
irbærinu í stuttu máli: „Skrapp er
einskonar minningabók, myndaal-
búm og föndurbók, allt í einni bók.
Margir sem hafa gaman af að
föndra búa til skrappbækur til að
varðveita fjölskyldusögu eða minn-
ingar um sérstaka atburði í lífi
sínu. Sumir byrja til dæmis að
skrappa eftir að þeir gifta sig og
búa til skrappbók til minningar
um brúðkaupið. Aðrir þegar þeir
eignast sitt fyrsta barn og svo
mætti áfram telja. Annars þarf
ekki að vera önnur ástæða fyrir að
skrappa en sú að hafa af því
ánægju. Þeir sem skrappa á hverj-
um degi nota skrappbókina eins
og dagbók. Til að búa til fallega
bók eða blaðsíðu má notast við alls
konar smáhluti; borða, hárlokka,
ljósmyndir, teikningar, ljóð, úr-
klippur, skrautpappír, blúndur,
perlur, glimmer, þurrkuð blóm og
einfaldlega hvaðeina sem fellur að
smekk skrapparans og vekur hjá
honum hugrenningatengsl um til-
tekinn atburð.“
Anna Sigríður kveðst alla tíð
hafa verið mikil föndurkona og
vita fátt notalegra en að sitja
Kennarinn sem er
skrappari í símaskránni
Skrapp er einskonar minningabók, myndaalbúm og föndurbók, allt í einni bók.
Föndrið eða listformið var lítt þekkt hér á landi fyrir aldamótin. Anna Sigríður
Eyjólfsdóttir, sem hefur skrappað í áratug, segir möguleikana óþrjótandi.
Systur Steinunn Lóa og Helga Soffía eru óðum að komast upp á lagið.
Vikudagbók Atburðir vikunnar færðir til bókar, hver dagur hefur sitt hólf.
Í Svíþjóð Heimsókn Önnu Sigríðar til systur sinnar í Svíþjóð skjalfest.
Á sýningunni Heilsu-expó sem haldin
verður í Hörpunni sunnudaginn 6.
september frá kl. 12 til 20 geta gestir
og gangandi kynnt sér margt sem lýt-
ur að heilsufari og hollustu. Sýningin
samanstendur af átta básum, sem
hver hefur sitt nafn: næring, hreyf-
ing, loft, vatn, sólskin, hvíld, sjálf-
stjórn og von. Starfsmenn sýningar-
innar veita þjónustu og ráð.
Að sýningunni standa hjónin Vig-
dís Linda Jack og Adrian Lopez með
aðstoð Aðventkirkjunnar, og hafa þau
fengið fagfólk úr heilbrigðisstétt í lið
með sér.
Gestum sýningarinnar er boðið
upp á ýmsar mælingar til að kanna
heilsufar sitt, t.d. blóðsykursmæl-
ingu, blóðþrýstingsmælingu, blóð-
fitumælingu, lungnaþol og BMI- mæl-
ingu, þeim að kostnaðarlausu. Að því
búnu geta þeir látið reikna út raun-
aldur sinn miðað við niðurstöðurnar.
Þátttakendur geta fengið kennslu í
einföldum leikfimisæfingum og ekki
ætti að væsa um þá því þeim stendur
herðanudd til boða í hvíldarbásum.
Markmiðið er að vekja fólk til um-
hugsunar um heilsu sína og veita því
verkfæri og upplýsingar til að bæta
hana. Eftir sýninguna í Hörpu á
sunnudaginn er í bígerð að setja
hana upp í Ráðhúsinu í október og
Loftsalnum í Hafnarfirði í nóvember.
Heilsu-expó í Hörpunni
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Góð heilsa er gulli betri Dagleg hreyfing ætti að vera fastur liður í tilverunni.
Mælingar til að kanna heilsufarið
Barnið mitt tók upp á því umdaginn að fullorðnast heil-an helling og byrja á „al-vöru“ leikskóla. Núna er
þetta harður heimur meðal stóru
krakkanna og klósetta sem maður
þarf að læra að pissa í alveg sjálfur.
Þetta ferli er náttúrulega alveg gíf-
urlega erfitt, sérstaklega fyrir aum-
ingja foreldrana sem sjá fyrir sér
einkasoninn, demantinn sinn og sól-
ina í lífinu, lenda í einelti. Að rauð-
hært hrekkjusvín með krullur og
frekjuskarð hrindi honum. Allir for-
eldrar sem senda börn á leikskóla
þurfa að fara í aðlögun í þrjá daga.
Það er náttúrlega til þess að róa for-
eldrana og aðlaga þá nýjum að-
stæðum. Þetta eru svo viðkvæm
grey. Það var nú alveg lúmskt
gaman að líða eins og tröllkalli
í nokkra daga. Sitja í litlum
stól við lítið borð og leika við
barnið sitt í þrjá daga. En
svo lýkur aðlöguninni og
hyldýpið blasir við.
Barnið manns, eitt og
yfirgefið í heilan dag,
með stóru krökkunum.
Engin mamma, enginn
pabbi. Þó er það nú
ágætis huggun að leik-
skólinn sem um ræðir er
alveg frábær og ég
treysti starfsfólkinu
fullkomlega. Fyrstu
dagana reyndi gullið
mitt allt til að láta
mömmu sína fá smá
samviskubit. Grenjaði eins og ljón í
fataklefanum og ég hljóp út með
kökkinn í hálsinum. Sá fyrir mér að
eftir 20 ár yrði ég boðuð í Dr. Phil til
þess að ræða vanræksluna á barninu
mínu þegar ég dirfðist að senda hann
á leikskóla. Ég laumaðist síðan til
þess að kíkja inn um gluggann og þar
sat hann, litli kúgarinn
minn, hrókur alls fagn-
aðar að gæða sér á súr-
mjólk. Þetta var allt
leikur. Hann sneri á mig.
Nú er litla dúllan mín bú-
in að vera á leikskólanum
„einn og yfirgefinn“ í
tvær vikur og stendur sig
eins og hetja. Mér líður
eins og hann hafi fengið
Nóbelsverðlaun og unnið
HM í fótbolta þegar hann
gengur inn á deildina með
bros á vör. Aldrei jafn
stolt. Núna veit ég hvernig
mömmu Halldórs Laxness
leið.
»Sá fyrir mér að eftir 20ár yrði ég boðuð í Dr.
Phil til þess að ræða van-
ræksluna á barninu mínu
þegar ég dirfðist að senda
hann á leikskóla.
HeimurAuðar
Auður Albertsdóttir
audura@mbl.is
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
TEC TRAVEL KING 510TKM KOJUHÚS
nýskr. 07/2005,Verð 2.550.000.
Skiptir á góðum bíl!
Raðnr.286288
HONDA CR-V
nýskr. 07/2006, ekinn 147 Þ.km, bensín,
sjálfskiptur. TILBOÐSVERÐ 1.590.000.
Raðnr.286280
M.BENZ ML 63 AMG
nýskr. 05/2008, ekinn 97 Þ.km, 503 hö,
sjálfskiptur. TILBOÐSVERÐ 6.990.000.
Raðnr.254023
BMW X5 3.0D E70
nýskr. 06/2009, ekinn 161 Þ.km, diesel,
sjálfskiptur, leður o.fl. Gott verð 5.390.000.
Raðnr.253973
TOYOTA PROACE LANGUR GX
nýskr. 06/2013, ekinn 43 Þ.km, diesel,
sjálfskiptur, innréttaður. Tilboðsverð 4.490.000.
Raðnr.285410
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is