Morgunblaðið - 04.09.2015, Síða 16
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2015
BLÖNDUÓS
Á FERÐ UM
ÍSLAND
OG NÁGRENNI
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Á bænum Hólabaki í Húnavatns-
hreppi eru framleidd púðaver undir
vörumerkinu Lagður. Eru það hjón-
in Elín Aradóttir og Ingvar Björns-
son sem standa að baki fyrirtækinu,
en fyrstu vörurnar fóru á markað
árið 2011.
„Þetta byrjaði allt sem áhuga-
mál mitt þegar við hjónin vorum
búsett á Akureyri. Á þeim tíma
sinnti ég einnig öðrum störfum, en
fljótlega kom hins vegar í ljós að
ákveðinn markaðsgrundvöllur var
fyrir hendi og þá leiddi eitt af
öðru,“ segir Elín í samtali við Morg-
unblaðið og bætir við að skömmu
síðar hafi þau ákveðið að flytjast
búferlum og setjast að í Húnavatns-
sýslu. Hefur Elín nú frá upphafi árs
2014 sinnt rekstri fyrirtækisins í
fullu starfi ásamt undirverktökum
og aðstoðarfólki.
„Við höfum frá því að við flutt-
um að Hólabaki notið mikils stuðn-
ings nágranna okkar í héraðinu,
bæði hvað varðar framleiðsluna
sjálfa og einnig hafa héraðsbúar
verið duglegir við að versla við okk-
ur. Þetta er okkur gríðarlega mikils
virði,“ segir Elín.
Kjarni starfseminnar er sem
fyrr segir framleiðsla á vönduðum
púðaverum, en Elín segir fyrirtækið
nú hins vegar einnig vera að prófa
sig áfram með aðrar vörur, s.s.
svuntur og viskustykki.
„Þær vörur eru þó enn sem
komið er eingöngu fáanlegar beint
frá mér, en púðaverin seljum við
fyrst og fremst í gegnum heildsölu,“
segir hún og bætir við að hægt sé
að nálgast púðaverin í um 50 versl-
unum hér á landi. „Við höfum einn-
ig stigið okkar fyrstu skref í út-
flutningi, sem er mjög spennandi,“
segir Elín og heldur áfram: „Í fyrra
seldum við um 8.000 púðaver og nú
stefnir allt í sambærilega sölu í ár.
Eins erum við að skoða spennandi
tækifæri sem snúa að sérfram-
leiðslu minjagripa fyrir fyrirtæki í
náttúrutengdri ferðaþjónustu, bæði
hér heima og erlendis.“
Vinsæl meðal ferðamanna
Púðaverin frá Lagði eru saum-
uð úr 100% bómullarefni og á þeim
er prentuð mynd á framhlið, en var-
an er, að sögn Elínar, afhent í sér-
stökum gjafapakkningum.
„Við leggjum mikið upp úr um-
búðunum. Á þeim má finna texta á
íslensku og ensku um náttúru
landsins og það myndefni sem prýð-
ir hvert og eitt ver,“ segir Elín.
„Þetta virðist höfða ágætlega til
ferðamanna enda um að ræða
skemmtilegan og vandaðan minja-
grip um heimsókn þeirra hingað.“
Þingeyskur töffari
Elín segir hönnun púðaveranna
fyrst og fremst byggjast á beinni
skírskotun til náttúru norðurslóða.
Er meðal annars hægt að kaupa ver
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Hjón Elín Aradóttir og Ingvar Björnsson eru stolt af fyrirtæki sínu sem fyrst byrjaði sem áhugamál hennar.
Ævintýrið hófst með
þingeyskum hrúti
Púðaverin frá Lagði eru vinsælir og flottir minjagripir
„Í júlí fagnaði ég tíu ára afmæli
mínu hér á Blönduósi,“ segir Róbert
Daníel Jónsson áhugaljósmyndari, en
hann er uppalinn í Bolungarvík.
Róbert Daníel hefur um langt skeið
haft mikinn áhuga á útiveru, veiði og
ljósmyndun, en svæðið í námunda við
bæinn segir hann paradís líkast. „Hér
eru fjölbreyttar gönguleiðir og
spennandi veiðisvæði enda eru bæði
vötn og ár mjög öflug hér í kring.“
Spurður hvort hann eigi sér ein-
hvern uppáhalds veiðistað svarar Ró-
bert Daníel: „Ég er ekki endilega í
magnveiðinni, en það er einn staður
við bæinn Grund í Svínadal,“ segir
hann. „Þegar búið er að ganga um
500 metra upp í fjallshlíðina er kom-
ið að tveimur vötnum,“ segir Róbert
Daníel og vísar þar til Grundartjarna.
„Ég kem nú nær aldrei með mikið
magn af fiski þaðan, en þar eru oft
mjög fallegar bleikjur og er þetta
minn uppáhalds staður.“ khj@mbl.is
Ljósmynd/Róbert Daníel Jónsson
Veiði Róbert Daníel Jónsson með væna bleikju á sínum uppáhalds veiðistað.
Náttúra og veiðisvæði í ná-
grenni Blönduóss paradís líkast
Í vetur er von á allt að 3.200 krökk-
um í skólabúðirnar að Reykjum í
Hrútafirði. Þeir fyrstu komu síðustu
vikuna í ágúst, en svo er hver vika
fullbókuð alveg fram í júní. Starfið í
búðunum er ætlað nemendum 7.
bekkjar en alls koma krakkar í vetur
úr 95 skólum víða um landið. „Vest-
fjarðakrakkar og nemendur Oddeyr-
arskóla á Akureyri og Vogaskóla
komu fyrst, en svo rúllar þetta af
stað,“ segir Karl B. Örvarsson for-
stöðumaður á Reykjum.
Alls 25 ár eru síðan starfsemi búð-
anna hófst og því er starfsemin öll
með nokkuð föstu sniði. Leik og
fræðslu er blandað saman. Farið er í
leiki, útiveru, byggðasafnið að Reykj-
um skoðað auk þess sem krakkarnir
bregða sér að Bjargi í Miðfirði. Skoða
þar búskap á hefðbundnum íslensk-
um sveitabæ auk heldur sem stiklað
er á stóru í Grettlu, en sem kunnugt
er var Grettir Ásmundarson frá Bjargi
og er oft við bæinn kenndur.
Nemendurnir koma að Reykjum á
mánudegi og eru til föstudags. Lögð
er mikil áhersla á virkni og að allir
blandi sér í leikinni. Enginn fær að
skorast úr leik. „Stundum koma hing-
að krakkar sem eru utanveltu í sínum
skóla. En sé vel haldið utan um þau
og þeim veitt jákvæð athygli og góð-
ur stuðningur eru þau fljót að taka
við sér. Rísa jafnvel upp sem sterkir
einstaklingar sem blómstra og slíkt
er mjög ánægjulegt,“ segir Karl sem
rekur búðirnar með konu sinni, Hall-
dóru Árnadóttur.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skólabúðir Karl B. Örvarsson hefur
lengi staðið að þeirri starfsemi.
Þúsundir krakka koma í vetur
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Pepsi Max rokselst á Skagaströnd.
Vigdís Elva Þorgeirsdóttir sem
stýrir í verslun Úrvals – Samkaupa
í byggðarlaginu kann engar skýr-
ingar á þessu né heldur af hverju
bananar séu svo vinsælir meðal
þorpsbúa. Þessu kalli svarar hún
þó að sjálfsögðu og pantanir sem
hún sendir birgjum eru oft ríflegar.
„Ég tek Pepsi Max í tveggja lítra
flöskum og hef í sumar selt um 200
lítra á viku. Þetta er ábyggilega
nærri Íslandsmeti, miðað við íbúa-
fjölda,“ segir Vigdís Elva.
Ástin dró mig hingað
Það var í júlí árið 2006 sem
Vigdís tók við Samkaupsbúðinni á
Skagaströnd, þangað sem hún
flutti fjórum árum fyrr. „Ég er frá
Blönduósi en ástin dró mig hingað.
Hér á ég mína fjölskyldu, karl og
fjóra krakka. Samheldni er áber-
andi meðal þorpsbúa, sem standa
saman í gegnum þykkt og þunnt og
aðstoða hvern annan ef þess þarf,“
segir Vigdís Elva og heldur áfram:
„Þegar ég var ólétt að yngsta
barninu mínu komu margir til mín í
búðina þegar ég var komin á steyp-
irinn og sögðu í góðu lagi að hafa
samband þyrfti ég aðstoð. Oft var
þetta góða fólk mér með öllu
ótengt og á endanum var ég komin
með á blað langan lista af þeim sem
vildu hjálpa. Slíkt var ómetanlegt.“
Kaupa kost hjá Vigdís
Matvöruverslun í litlu kaup-
túni úti á landi er á sinn hátt altæk
stofnun. Allt það nauðsynlegasta
þarf að vera til. Ef þar vantar uppá
er fljótlegt að bregðast við, annað
hvort með því að hafa samband við
Samkaupsbúðina á Blönduósi eða
fá sendingu að sunnan.
„Við fáum mjólkina daglega
og nýtt brauð flesta daga. Mest af
því kemur úr Myllunni en skammt-
ur frá Kristjánsbakaríi á Akureyri
berst tvisvar í viku,“ segir Vigdís
Búðin er brautarstöð
Sér Skagstrendingum fyrir nauð-
synjum Pepsi Max óvenju vinsælt
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Úrval „Allt það nauðsynlegasta þarf að vera til,“ segir Vigdís Elva Þor-
geirsdóttir sem hefur stýrt daglegum rekstri verslunarinnar til fjölda ára.