Morgunblaðið - 04.09.2015, Síða 17
Í Húnaþingi vestra, Húnavatnshreppi, Blönduósbæ,
Skagabyggð og sveitarfélaginu Skagaströnd búa rúm-
lega 3.000 manns, en samanlögð stærð sveitarfélaganna
er um 7.560 ferkílómetrar. Á þessu svæði má finna fjöl-
breytta atvinnuvegi, s.s. landbúnað og sjávarútveg.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2015
með mynd af hestum, lóu, álft og
sel, en aðspurð segir hún lundana
hins vegar tróna á toppnum hvað
sölutölur varðar.
„Þetta er svolítið mismunandi
eftir verslunum, en í þeim sem ein-
beita sér fyrst og fremst að ferða-
mönnum er lundinn vinsæll. En í
gegnum tíðina hefur hrúturinn ver-
ið mjög söluhár,“ segir Elín og
heldur áfram: „Upphaflega hug-
myndin var sú að gera nokkur
hrútapúðaver og gefa ættingjum í
jólagjöf. Hrúturinn nefndist Lagður
og var hann í eigu foreldra minna
sem búa á Hrísum í Reykjadal í
Suður-Þingeyjarsýslu. Eins og sést
á svipnum á honum var hrúturinn
mikill töffari enda grunnurinn að
okkar vörumerki.“
Leggja mikla áherslu á
íslenskt handbragð
Þegar kemur að aðföngum seg-
ir Elín fyrirtækið leggja áherslu á
að nýta þjónustu frá innlendum að-
ilum. Þannig er til að mynda allur
saumaskapur á höndum starfsfólks
íslenskra saumastofa, þ.e. tveggja í
Austur-Húnavatnssýslu og einnar á
Akureyri.
„Við reynum eftir fremsta
megni að framleiða okkar vörur á
Íslandi – af því erum við mjög
stolt,“ segir hún, en auk sauma-
vinnu fer öll framleiðsla á umbúð-
um, pökkun, lagerhald og dreifing
fram hér á landi. „Margir sam-
keppnisaðilar okkar merkja vörur
sínar „Icelandic design“ en fram-
leiðslan fer síðan fram að miklu
leyti erlendis,“ segir Elín.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Íslenskt Púðaverin vinsælu fást með ýmsum myndum, en þingeyski hrúturinn Lagður þykir vinsæll meðal fólks.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Flottur Ingvar tók sig vel út með svuntuna þegar ljósmyndara bar að garði.
„Vegurinn fyrir Skaga er hrylli-
legur. Úr honum hefur bæði
runnið og rokið svo aðeins undir-
lagið er eftir,“ segir Skafti Vign-
isson á Höfnum á Skaga. Hann er
26 ára og sinnir þar búskap með
foreldrum sínum, þeim Vigni
Sveinssyni og Helgu Björgu Ingi-
marsdóttur, sem þar settu sig nið-
ur fyrir tíu árum. Þau eru með um
500 fjár, en einnig er ágæt búbót
af æðardún og rekavið, sem skol-
ar hingað frá Síberíu en þó ekki í
sama mæli og áður var.
„Ég vil skapa mína framtíð hér,
sem er vel mögulegt. Ég er nýbú-
inn með bændaskólanám á
Hvanneyri og vil vera hér, í sveit
óspilltrar náttúru. Sumir sjá hér
aðeins grjót og auðn, sem vissu-
lega eru hér til. En gleymum samt
ekki gróðri og virkilega fallegri
náttúru á svæði sem á í mér hvert
bein,“ segir Skafti, sem ekur um
sléttuna á öflugum pallbíll af
gerðinni Chevrolet Silverado.
Þetta er amerískur eðalvagn;
repúblikanabíll eins og þá mætti
kalla – nema hvað Skaginn er
ekki Texas þótt einhverjir myndu
sjálfsagt vilja skipta.
sbs@mbl.is
Repúblikanabíllinn er þarfaþing í Höfnum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Feðgar Vignir Sveinsson og Skafti Vignisson eru saman í búskap.
Grjót, auðn og
gróður á Skaga
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Chevrolet Traustur bíll sem skil-
ar sínu vel í sveitinni.
Elva og bætir við að Skagstrend-
ingar séu býsna tryggir sinni versl-
un. Í 500 manna kauptúni sé marga
munna að metta. Yfir sumartímann
sé svo drjúg búbót af viðskiptum
smábátasjómanna sem gera úr frá
Skagaströnd og taka þá kost í
versluninni hjá Vigdísi.
Skagaströnd er í flestu tilliti
hefðbundinn íslenskur landsbyggð-
arstaður, þar sem þjónusta og sjó-
sókn eru undirstaða. Talsvert er
síðan hefðbundin fiskvinnsla í
þorpinu lagðist af, en nokkrir bátar
eru þó gerðir út frá staðnum enda
er stutt á fengsæl mið. Margir
starfa hjá sveitarfélaginu, á starfs-
stöð Vinnumálastofnanar, þar sem
atvinnuleysisbætur eru reiknaðar
út og afgreiddar, vinna um 20
manns og starfsemi líftæknifyrir-
tækisins Bio Pol er í sókn. Þá er
alltaf nokkur hópur fólks að störf-
um í Nesi – listamiðstöð og sinnir
þar kúnstverki sínu. Og fólk af öll-
um þessum stöðum og fleiri til
koma í búðina sem á sinn hátt er
brautarstöð bæjarins. Að því marki
eru Vigdís Elva og hennar fólk í
búðinni í lykilhlutverki í samfélagi
sínu og þykir standa plikt sína með
prýði.
Skagaströnd Er á flestan hátt
dæmigerður landsbyggðarstaður.