Morgunblaðið - 04.09.2015, Side 20

Morgunblaðið - 04.09.2015, Side 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2015 SVIÐSLJÓS Brynja B. Halldórsdóttir brynja@mbl.is Til orðasennu kom í gær á milli leið- toga ESB-ríkja vegna flóttamanna- straumsins til Evrópu. Viktor Orban, forseti Ungverja- lands, fundaði með Martin Schultz, forseta Evrópuþingsins, og Donald Tusk, forsetaráðs ESB, í Brussel til að ræða hvernig leysa mætti að- steðjandi vanda vegna mikils fjölda flóttamanna sem reyna að komast til Þýskalands í gegnum Ungverjaland. Nokkur þúsund manns hafa nú beð- ið dögum saman á járnbrautarstöðv- um í Ungverjalandi eftir að fá að komast til Þýskalands. Skýrist þessi gífurlegi fjöldi að einhverju leyti af því, að Þjóðverjar ákváðu nýlega að beita svokölluðu fullveldisákvæði Dyflinnar-sam- komulagsins, sem heimilar þeim að taka við öllum flóttamönnum frá Sýrlandi sem óska eftir hæli í land- inu, í stað þess að senda þá til þess þess Evrópuríkis sem þeir komu til fyrst, eins og Dyflinnar-samkomu- lagið kveður á um. Ákvæðið felur þannig í sér heim- ild ríkja til þess að taka við flótta- mönnum umfram skyldu. Þessi stefna hefur bæði verið lofsömuð og gagnrýnd. Viktor Orban tilheyrir hópi gagn- rýnenda. Sagði hann á fundinum í gær að flóttamannavandi Evrópu væri „þýskt vandamál“ en ekki evr- ópskt þar sem farandfólk á leið til Evrópu kysi að fara til Þýskalands. „Enginn vill dvelja í Ungverjalandi, þannig að við eigum ekki í vand- kvæðum með þá sem vilja dvelja þar.“ Á fundinum var einnig haft eftir Orban að Evrópubúar væru óttaslegnir þar sem leiðtogar Evr- ópuríkjanna réðu ekki við ástandið. Þá sagði hann Ungverjaland aðeins vera að fullnægja lagaskyldu sinni samkvæmt Dyflinnar-samkomulag- inu með því að hleypa engum flótta- mönnum til Vestur-Evrópu án þess að skrá þá inn í landið. Schultz sagði orð Orbans „áhrifa- rík en röng“ og þess vegna þyrfti „sanngjarna og jafna dreifingu“ flóttamanna um Evrópu. Tusk tók undir orð Schults og sagði að ESB- ríki þyrftu að taka við 100.000 flótta- mönnum hið minnsta og skipta þeim fjölda niður á sanngjarnan hátt. Siðferðilega rétt og lögmætt Angela Merkel var stödd í Sviss þennan dag en hún svaraði Orban engu að síður. Sagði hún Þjóðverja aðeins gera hið siðferðilega og lög- mæta í stöðunni, „ekkert meira og ekkert minna“en það. Hún andmælti einnig orðum Or- bans þess efnis að innflytjenda- stefna Þýskalands væri ekki nægi- lega hörð. Þá hvatti hún Ungverja til að fara eftir Genfar-sáttmálanum um flóttamenn. „Öll ESB-ríki þurfa að fara eftir honum, ekki aðeins Þýskaland. Þetta er vandamál sem varðar okkur öll,“ sagði Merkel. Francois Hollande, forseti Frakk- lands, sagði eftir símafund með Merkel í gær að til stæði að Frakk- land og Þýskaland kæmu með sam- eiginlegar tillögur um hvernig ætti að taka við flóttamönnum og dreifa þeim jafnt yfir Evrópu. Í yfirlýsingu sagði Hollande: „ESB verður að bregðast við á ákveðinn hátt og í samræmi við gildi sambandsins. Þessir menn og konur, ásamt fjöl- skyldum sínum, flýja stríð og of- sóknir. Þau þurfa alþjóðlega vernd.“ „Mamma Merkel“ dáð Áðurnefnd ákvörðun þýskra yfir- valda um að taka við öllum sýr- lenskum flóttamönnum sem koma til Þýskalands, hefur gert Angelu Merkel að ímynd móðurlegrar um- hyggju. Á samfélagsmiðlinum Face- book eru til síður undir nöfnunum „Mamma Merkel, móðir úthrak- anna“, þar sem finna má myndir af Merkel með slagorðunum „Við elsk- um þig“, eða „Samúðarfulla móðir“. The Guardian birti í gær viðtal við unga móður í flóttamannabúðum í Hannover í Þýskalandi sem skírði barnið sitt Angelu Merkel, í þakk- lætisskyni við kanslarann. Þá er í sömu frétt haft eftir tveimur ungum Sýrlendingum að Merkel sé „móðir Sýrlendinga“, að hún sé „bjargvætt- ur sýrlenskra barna frá víti stríðs og öfgaafla“ og að allir Sýrlending- ar dýrki Merkel og hugrekki henn- ar. Þýskaland fyrirheitna landið Fjölmiðillinn Deutsche Welle, eða DW, birti í gær fjölda viðtala við flóttafólk á leið til Þýskalands. Í greininni lýsa viðmælendur Þýska- landi sem fyrirheitna landinu, þar sem fyrirmyndar heilbrigðisþjón- usta er gjaldfrjáls, flóttafólk fær framfærslu og húsnæði auk þess sem næga atvinnu sé að fá. Vísar fólk í sögur sem það hefur heyrt í heimalandinu og á leið sinni til Evr- ópu. Þá er lítill sem enginn áhugi meðal fólksins á því að búa í Aust- urríki eða Ungverjalandi. AFP Keleti Nokkur hundruð manns komu inn á Keleti-járnbrautarstöðina í Búdapest í Ungverjalandi í gær, eftir tveggja daga lokun. Leiðtogar ESB ósamstiga  „Þýskt vandamál,“ segir forseti Ungverjalands  Angela Merkel sögð „móðir Sýrlendinga“  Þjóðverjar taka við öllum Sýrlendingum sem koma til landsins Vinsæl Merkel nýtur hylli á netinu. Forseti Kína, Xi Jinping, tilkynnti í höfuðborginni Beijing í gær að kín- verskum hermönnum yrði fækkað um 300.000 en tvær milljónir her- manna eru nú í kínverska hernum. Þessi breyting á, eftir því sem kem- ur fram í frétt Washington Post um málið, að stuðla að frekari sjó- og lofthernaði, á kostnað landhernaðar. Tilkynningin kom fram á hersýn- ingu 12.000 hermanna á Tianan- men-torgi í tilefni af því að 70 ár eru liðin frá lokum fyrri heims- styrjaldarinnar. „Þrátt fyrir liðna atburði mun Kína aldrei sækjast eftir forystu, mun aldrei sækjast eftir útþenslu og mun aldrei íþyngja öðrum með þeim hörmungum sem Kína hefur gengið í gegnum í fortíðinni,“ sagði Xi Jinping meðal annars í ræðu sinni í gær. KÍNA Hermönnum fækkað um 300.000 AFP Xi Jinping, forseti Kína, í ræðupúlti. 1800 ára gömul steinkista, sem fannst á vinnusvæði, var afhjúpuð í Jerúsalem í gær. Minjavernd landsins segir hana eina þá „mik- ilvægustu og fallegustu“ sem fundist hafi í Ísrael. Kistan er úr kalksteini, vegur tvö tonn og á lokinu er útskorin mynd af manni í tóga, auk myndar af höfði Med- úsu. Fornleifafræðingurinn Gaby Mazor segir kistuna frá 3. öld e. Kr. og að auðug rómversk fjöl- skylda hafi líklega átt hana. brynja@mbl.is ÍSRAEL 1800 ára steinkista AFP Fengur Kistan er frá 3. öld e. Kr. Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.