Morgunblaðið - 04.09.2015, Síða 21

Morgunblaðið - 04.09.2015, Síða 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2015 Ljóst er að stjórnarskipti verða í Færeyjum eftir að stjórn landsins missti meirihluta sinn í kosningun- um á þriðjudag. Jafnaðarflokkurinn er sigurvegari kosninganna og er lík- legt að leiðtogi þeirra, Aksel V. Jo- hannesen, muni leiða næstu stjórn. Þriggja flokka stjórn Sam- bandsflokksins, Fólkaflokksins og miðflokksins var með meirihluta fyr- ir kosningarnar, 18 sæti af 33 á lög- þinginu. Sambandsflokkurinn og Fólkaflokkurinn misstu tvö sæti hvor og hafa flokkarnir þrír því 14 sæti nú. Stjórnarandstaðan er því komin með 19 þingsæti, sem skiptast milli fjögurra flokka. Jafnaðarflokk- urinn fékk átta sæti í kosningunum á þriðjudag, Þjóðveldisflokkurinn sjö og Framsókn og Nýtt Sjálvstýri tvö sæti hvor. Líklegast er talið að þess- ir fjórir flokkar muni mynda næstu stjórn. Kaj Leo Holm Johannesen, lög- maður Færeyja, boðaði til kosning- anna eftir að hann var staðinn að því að veita þinginu rangar upplýsingar um undirbúning neðansjávarganga, sem bora átti milli Þórshafnar og Austureyjar. Kvótakerfi stokkað upp? Gestur Hovgaard, félagsfræðing- ur við Færeyjaháskóla, segir orsaka úrslitanna í kosningunum einkum að leita í breytingum, sem gerðar voru á skattkerfinu. Stjórnin mætti andstöðu þegar hún kom á flötum skatti, einkum vegna þess að skattalækkanirnar þóttu einkum koma hinum tekju- hæstu til góða. Þá var gagnrýnt að skattalækkanirnar voru fjármagnað- ar með fyrirframskattlagningu líf- eyris. Einnig var deilt um stefnuna í sjávarútvegsmálum. Jacob Ves- tergaard, sem farið hefur með sjáv- arútvegsmál, hefur verið vændur um að úthluta kvótum til fárra útgerð- armanna án þess að forsendur lægju fyrir. Sérstaklega hefur verið fundið að því að kvótarnir hafi farið til er- lendra útgerða, einkum hollenskra og íslenskra, en einnig danskra. Sala sjávarafurða er um 98% af út- flutningstekjum Færeyja og hefur stjórnarandstaðan haldið því fram að auka ætti hlut ríkissjóðs í þeim tekjum. kbl@mbl.is Stjórnarskipti í vændum í Færeyjum Morgunblaðið/Árni Sæberg Stjórnarskipti Smábátar í höfninni í Þórshöfn. Úthlutun kvóta var hitamál í kosningunum í Færeyjum þar sem stjórnin missti meirihluta sinn.  Tekist var á um flatan skatt og sjávarútvegsstefnu Brynja B. Halldórsdóttir brynja@mbl.is Að minnsta kosti fjórtán manns drukknuðu þegar yfirfullur viðar- bátur sökk við strendur vesturhluta Malasíu í gær. Veður mun hafa verið slæmt á svæðinu. Talið er að 70 manns hafi verið um borð í bátnum, eftir því sem kemur fram í fréttum LA Times um málið. Áður var talið að 100 manns hefðu verið um borð í bátnum. Staðfest hefur verið að 13 konur og einn maður hafi látist og 19 manns hefur verið bjargað. Annarra farþega er nú leitað. Robert Teh Geok Chuan, yfirmað- ur björgunarsveita á svæðinu, sagði í samtali við fréttastofu Reuters að tala látinna myndi mjög líklega hækka, þar sem þegar væru margar klukkustundir liðnar frá því að bát- urinn sökk. Talið er að farþegarnir hafi verið verkamenn á leið heim til Tanjung Balai í Indónesíu. Atburðurinn er alls ekki eins- dæmi. Í Malasíu starfa allt að tvær milljónir indónesískra verkamanna ólöglega, oft við landbúnað og ýmsan iðnað. Þeir ferðast oft og tíðum í illa útbúnum bátum á milli landanna tveggja í gegnum hið þrönga Malacca-sund. Í frétt The Guardian um málið kemur fram að margir þeirra hafi komist til Malasíu með því að greiða smyglurum fyrir farið. Þar kemur einnig fram að sjald- gæft sé að fólk reyni að komast yfir hafið svona síðla árs, enda eru veður válynd og vindar sterkir úti á sjó á þessum árstíma. Drukknuðu við strendur Malasíu AFP Manntjón Björgunarteymi heldur á einum hinna látnu.  Að minnsta kosti 14 Indónesar látnir Otto Pérez Mol- ina sagði af sér sem forseti Gvatemala seint á miðvikudag, örfáum klukku- stundum eftir að gefin var út handtökuskipun á hendur honum vegna ásakana um spillingu og fjársvik. Hann neitaði öllum sök- um í sjónvarpi í síðustu viku og nú er óvíst hvar hann er niður kom- inn. Talsmaður forsetans, Jorge Ort- ega, staðfesti í gær að Molina væri hættur sem forseti. Samkvæmt landslögum tekur varaforsetinn Alejandro Maldonado Aguirre við sem forseti og gegnir því starfi út kjörtímabilið, eða fram í janúar á næsta ári. Fyrrverandi varaforseti lands- ins, Roxana Baldetti, situr nú þeg- ar í fangelsi vegna sambærilegra ásakana. Hún neitar einnig sök. GVATEMALA Forsetinn hættur Otto Pérez Molina 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár Hæ sæti, hvað ert þú að borða? – fyrir dýrin þín Bragðgott, hollt og næringarríkt Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022 AMH – Akranesi – sími 431-2019 | www.dyrabaer.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.