Morgunblaðið - 04.09.2015, Side 28

Morgunblaðið - 04.09.2015, Side 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2015 ✝ Sigurbjörg Sig-finnsdóttir fæddist á Norðfirði 5. október 1918. Hún lést á Hrafn- istu í Hafnarfirði 19. ágúst 2015. Foreldrar henn- ar voru hjónin Vil- borg Benedikts- dóttir frá Búðum á Fáskrúðsfirði, f. 3. mars 1882, d. 1. nóv. 1940, og Sigfinnur Sigurðs- son, útvegsbóndi frá Vattarnesi við Reyðarfjörð, f. 3. sept. 1879, d. 13. ágúst 1941. Systkini Sigurbjargar voru Bentína, f. 24. okt. 1899, d. 25. okt. 1920, Sigurður, f. 21. júlí 1903, d. 14. mars 1984, Jóhann Björgvin, f. 5. des. 1907, d. 18. apríl 1908, Jóhanna, f. 16. febr. bónda, f. 1945. Börn þeirra eru Einar Jóhann, f. 1963, d. 1963, Anna, f. 1966, Brynja, f. 1968, Elín, f. 1972, og Erlingur Grétar fóstursonur, f. 1982. 2) Vilborg Elma hjúkrunarfræðingur, bú- sett í Hafnarfirði, f. 29. sept. 1941, gift Gylfa Adolfssyni, skrifstofumanni, f. 1940. Dætur þeirra eru Helga, f. 1965, Sig- urbjörg, f. 1966, og Hildur, f. 1968. 3) Sigrún leikskólakenn- ari, búsett í Neskaupstað, f. 16. ágúst 1943, gift Guðmundi Har- aldssyni prentsmiðjustjóra, f. 1941. Börn þeirra eru Haraldur Grétar, f. 1965, d. 2007, Berg- lind, f. 1967, Bergrós, f. 1967, og Gerður, f. 1970. 4) Kristín myndlistarmaður, búsett í Kópavogi, f. 25. ágúst 1948, gift Ómari Kristinssyni, viðskipta- fræðingi, f. 1947. Börn þeirra eru Erna, f. 1972, og Geir, f. 1975. Afkomendur Sigurbjargar eru 55. Sigurbjörg verður jarðsungin frá Garðakirkju á Álftanesi í dag, 4. september 2015, og hefst athöfnin kl. 13. 1916, d. 19. mars 1993. Sigurbjörg gift- ist 5. ágúst 1938 Geir Vilbogasyni bryta, f. 18. okt. 1912 í Reykjavík, d. 16. maí 1995. For- eldrar hans voru Kristín Brynjólfs- dóttir, f. á Hjalla á Álftanesi 4. okt. 1875, d. 19. jan. 1944, og Vilbogi Pétursson, f. í Hólshúsum í Gaulverjabæj- arhreppi 13. sept. 1869, d. 2. okt. 1958. Geir og Sigurbjörg bjuggu lengst af í Reykjavík en síðustu árin í Hafnarfirði. Börn þeirra eru: 1) Grétar bóndi í Áshól, Ásahreppi, f. 31. okt. 1937, kvæntur Láru Kristjánsdóttur Sigurbjörg móðir mín er fædd frostaveturinn mikla 1918 og ólst upp á Norðfirði í föð- urhúsum. Mamma var yngst fimm systkina. Eins og algengt var á þessum árum fór ungt fólk suður eftir nám í leit að vinnu, 16 ára fór mamma til Reykjavíkur en kom við á Hesti í Borgarfirði og var þar sum- arlangt. Þaðan lá leiðin í vist til Ágústu og Thors Thors og lík- aði henni vistin vel. Minnstu munaði að hún færi með þeim til Ameríku en var þá búin að kynnast væntanlegum eigin- manni svo að ekki varð aftur snúið. Mamma og pabbi, Geir Vil- bogason, giftu sig árið 1938. Þau fóru í brúðkaupsferð til Kaupmannahafnar en pabbi var kokkur á m/s Kötlu. Hún átti eftir að sigla með honum síðar bæði til Afríku og Evrópu. Þau byrjuðu búskap á Þórs- götu hjá tengdaforeldrum mömmu, hún ung með lítil börn. Á þeim tíma veiktust for- eldrar hennar og komu suður til lækninga og kom þá í henn- ar hlut að sinna þeim. Hún missti þau með stuttu millibili. Frá Þórsgötu fluttu þau á Skúlagötuna, þá í Karfavog, Brávallagötu og síðar í þjón- ustuíbúð á Hjallabraut. Síðast flutti mamma á Hrafnistu í Hafnarfirði. Mamma var sjómannskona og pabbi í löngum siglingum. Það gekk mikið á þegar hann var væntanlegur í land. Heim- ilið var þrifið hátt og lágt og kjötsúpan elduð, uppáhald eig- inmannsins. Hún var kokkur góður. Þau höfðu yndi af að gera góða veislu þó að tilefnið væri ekki mikið. Það var gaman að hlusta á mömmu segja sögur frá heimahögum um álfa og drauga sem ljóslifandi væru. Hún söng líka fallega og hafði unun af. Hún unni náttúrunni og fór fjölskyldan í tjaldútilegur á sumrin. Ferðirnar austur í Hallormsstaðarskóg og á Norð- fjörð voru ófáar og þá til að heimsækja og rækta austfirska frændgarðinn og Hönnu systur hennar. Það var mjög kært á milli systranna og Sigurðar bróður hennar. Þau héldu útilegunum áfram alla tíð. Síðari árin fóru þau í styttri ferðir til Þingvalla og í Sleggjubeinadal við Kolvið- arhól og dvöldu þar oft í nokkra daga í einu. Mamma var bæði fínleg og viðkvæm kona en einnig mjög staðföst. Tímaskynið var ekki alveg í takt við normið þannig að það gat tekið á þolinmæði annarra. Hún hafði samt lag á að gera gott úr öllu. Mamma hélt góðum tengslum við börn- in, barnabörnin og vini sína með því að hringja til að spyrja frétta. Hún var mjög áhugasöm um hvað unga fólkið væri að gera og hvatti þau óspart. Hún var nátthrafn og átti það til að hringja seint og spjalla langt fram á nótt. Hún fylgdist vel með þjóðfélagsmálum og hlust- aði á eldhúsdagsumræður af áhuga. Hún var ekki mann- blendin en hún átti góða vini fram á síðasta dag. Síðustu árin á Hrafnistu var hún komin hálfa leið í annan heim og gat hún þá oft verið skemmtilega súrrealísk. Hún ferðaðist víða í rúminu sínu og sagði frá ýmsu skrítnu og skemmtilegu. Það er tómlegt að kveðja eftir öll árin saman en minningar um hlýja, skemmtilega og þakkláta mömmu lifir og hláturinn henn- ar hljómar enn. Fjölskyldan þakkar innilega öllu því góða starfsfólki Hrafn- istu sem annaðist móður okkar þau tíu ár sem hún dvaldi þar. Kristín Geirsdóttir. Amma Sissa er látin. Ynd- islega amma sem við elskum svo mikið. Nú er langri bið afa lokið. Hún er loksins komin til hans. Minningarnar um ömmu og afa hrannast upp. Stund- irnar sem við eyddum með þeim á Brávallagötunni voru ævintýri líkastar. Að ganga þröngan stigann upp í litlu notalegu íbúðina þeirra var ætíð spennandi því við vissum að þar beið okkar skemmtileg stund. Amma tók alltaf svo vel á móti okkur, óendanlega ljúf og faðmlagið hennar svo hlýtt. Hún var alltaf í góðu skapi og hélt uppi sínum mjúka aga. Við virtum reglurnar hennar, snertum t.d. aldrei styttuna fínu af snjótittlingnum í stofu- glugganum, heldur sátum í græna sófanum og horfðum á hann með aðdáun. Það var bannað að fara í eltingaleik í litlu íbúðinni. En amma var svo þolinmóð og natin við okkur. Hún var alltaf tilbúin að hlusta á okkur, dunda sér með okkur í leik, syngja og segja okkur æv- intýrasögur frá æskuárum sín- um á Norðfirði, t.d. hvernig hún lærði að synda í drullupolli og frá því þegar hún ásamt fleiri krökkum hitti álfkonuna uppi í fjalli. Amma Sissa var ákaflega fal- leg og fáguð og með dásam- legan húmor. Hún var alltaf svo vel til höfð og í fallegum fötum. Okkur fannst ofsalega spenn- andi að fylgjast með henni rúlla sígaretturnar sínar í vefjugræj- unni sinni þann stutta tíma sem hún reykti. Við fengum stund- um að vefja fyrir hana, það fannst okkur töff. Svo voru þær ófáar gistinæt- urnar. Ýmist gistum við ein og ein eða allar þrjár. Hlý ömmu- og afalyktin, tifið í veggklukk- unni, keppnin um að fá að sofa í bláa svefnsófanum inni í borð- stofu, með ævintýralegu vegg- teppinu á veggnum fyrir ofan. Við eyddum mörgum stundum á gólfinu með risastóru bókina sem innihélt gömul tímarit með teiknimyndasögum og alls kon- ar fróðleik. Fengum stundum að kíkja í kápuskápinn hennar ömmu með öllum slæðunum sem við fengum að nota þegar við lékum leikrit. Það var alltaf svo gott að kíkja til ömmu, sem var svo umhugað um að það færi vel um okkur og að við fengjum nú örugglega nóg að borða. Þegar við stunduðum framhaldsnám í Reykjavík tók hún á móti okk- ur hvort sem var í hádeginu eða á kvöldin með ilmandi kræsingum og bestar voru kó- tiletturnar í raspi sem hún steikti á rafmagnspönnunni sinni. Og hún sýndi því alltaf áhuga sem við vorum að gera og fylgdist afar vel með öllum barnabörnunum og síðar barna- barnabörnum og lagði mikla áherslu á að halda góðu sam- bandi. Við kveðjum ömmu Sissu með söknuð í hjarta og erum þakklátar fyrir allar þær dásamlegu stundir sem við átt- um með henni og afa. Við geymum í hjarta okkar fallegar minningar um hana og afa. Hvíldu í friði elsku amma. Kibba, kibba komið þið greyin. Kibba, kibba, græn eru heyin. Kibba, kibba, gemsar og gamlar ær og golsóttur sauðapeyinn. (Sigurður Ágústsson) Helga, Sigurbjörg og Hild- ur Gylfadætur. Elsku amma. Þú varst lagleg kona, alltaf vel til höfð og vildir hafa fagra hluti í kringum þig og áttuð þið afi fallegt heimili á Brávallagötunni. Þangað var gott að koma. Afi fór út í bak- arí á meðan þú hitaðir kakó og snerist í nokkra hringi í kring- um okkur. Anna man sérstak- lega eftir að hafa skemmt sér við að mala kaffibaunir í kaffi- kvörninni með skúffu og einnig var gaman að skoða fjölskyldu- myndir. Þér þótti alltaf gaman að bjóða upp á veitingar og eft- ir komu þína á Hrafnistu áttir þú alltaf nokkrar sortir af góð- gæti í skápnum til að bjóða gestum og gangandi. Alltaf kom jólapakki frá þér og þú varst mjög minnug á afmæl- isdaga og lengi vel fengum við símhringingu og hamingjuóskir þrátt fyrir að þú hafir þurft hjálp við að hringja síðustu ár- in. Það kom skemmtilegur glampi í augun þín þegar þú sagðir frá því þegar þið afi kynntust. En sagan sem þú sagðir okkur var eitthvað á þá leið að þið vinkonurnar fóruð á ball eftir að hafa fengið leyfi foreldra ykkar til að gista sam- an. Afi bauð þér síðan upp, þið dönsuðuð allt kvöldið og hann fylgdi þér heim að dyrum. Minnir að hann hafi svo siglt úr höfn daginn eftir og síðan barst þér bréf frá honum sem var bara stílað á nafnið þitt og Nes- kaupstaður því hann vissi ekki heimlisfangið. Þar bauð hann þér gull og græna skóga og á endanum urðuð þið hjón. Við systur lærðum það fljótt að það var mikið hrós að vera talinn hafa Fáskrúðsfjarðarsvip og þeim sem hann báru leyfðist aðeins meira en öðrum. Ein okkar minnist þess að sama var hvaða vitleysu hún gerði þá bara brostir þú að því nema daginn sem henni datt í hug að sópa eldhúsgólfið eftir að búið var að leggja á borð fyrir há- degisverð. Þann dag varstu ein- faldlega ekkert svöng en afi færði þér nú samt eitthvað að drekka út í garð. Einnig hafðir þú þann vana að skola kaffiboll- ann þinn áður en þú fékkst þér kaffi. Þér þótti fínt að tala með dönskuslettum, eins og kast- arolur, konvúletta og svo fórstu út á altan og elskaðir að borða danskt smurbrauð. Þið afi vor- uð dugleg að ferðast og það var spennandi fyrir okkur sveita- stelpurnar þegar þið komuð á vw-bjöllu á sumrin með tjaldið í húddinu. Þá voru til dæmis í boði brenndar pylsur. Árið 1981 voru þið afi heima í Áshól þar sem hann var að mála ný- byggt fjósið að innan. Hann var tilbúin í glens og grín og hopp- aði með okkur í parís. Það ætl- aðir þú líka að gera en upp- götvaðir þér til mikillar óhamingju að þú gast ekki lengur hoppað. Afi glotti og stríddi þér, þú varst hissa en eftir smá íhugun kom upp sú hugmynd að líklega gleymist getan til að hoppa æfi maður hana ekki reglulega. Eftir því sem árin færðust yfir voru fleiri ættmenni sem sóru sig í ættina góðu og sástu trúlegast orðið Fáskrúðsfjarðarsvip á okkur öllum. Þú hafðir sterka trú á Guð og fullvissu um að hitta afa og systkini þín þegar vistinni á jörðu niðri lyki. Við elskum þig og biðjum að heilsa þeim og öllum hinum. Þínar sonardætur, Anna, Brynja og Elín Grétarsdætur. Sigurbjörg Sigfinnsdóttir ✝ Jón ValdimarJónsson var fæddur 1. ágúst 1929 á Eyvindar- stöðum í Eyjafirði. Hann lést á Dval- ar- og hjúkrunar- heimilinu Lög- mannshlíð, Akureyri, 15. ágúst 2015. Foreldrar hans voru Jón Jónsson, f. 2.8. 1888, d. 21.10. 1970, og Kristín Sigurðardóttir, f. 22.8. 1893, d. 4.8. 1983. Þann 10. ágúst 1957 giftist Valdimar Kolbrúnu Árnadótt- ur frá Akureyri, f. 24.7. 1939. önnur börn Hreins (Indiana Ása og Karl Guðni). 2) Árni, f. 4.2. 1959. Maki: Þóra Björg Ei- ríksdóttir, f. 17.5. 1967. Börn: Eva, f. 29.6. 1991, Eiríkur Árni, f. 20.12. 1993 og Rún, f. 22.12. 1998. 3) Jón Kristinn, f. 1.11. 1962. Maki: Elísabet Jó- hanna Sigurðardóttir, f. 5.8. 1967. Börn: Kolbrún Björg, f. 22.6. 1987, Kristín, f. 20.8. 1993, Sigurður Sveinn, f. 21.11. 1997, og Kristófer Lárus, f. 2.2. 2007. Valdimar vann fyrst sem togarasjómaður og síðan öll möguleg störf hjá vegagerð- inni á Akureyri, síðustu árin sem eftirlitsmaður með færð á Öxnadalsheiðinni. Útför Valdimars fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 4. september 2015, kl. 13.30. Foreldrar hennar voru Árni Frið- riksson, f. 17. júní 1902, og Elsa Jóns- dóttir, f. 8. janúar 1910. (Fyrir átti Valdimar Ragn- heiði Þóru Valdi- marsdóttir, f. 3.3. 1955, dóttir henn- ar er Eygló Arna Sigurðardóttir, f. 5.8. 1977.) Börn Valdimars og Kolbrúnar eru : 1) Elsa, f. 20.3. 1957. Maki: Hreinn Gunnlaugsson, f. 22.10. 1954. Dóttir þeirra er Ingunn Elísabet, f. 2.10. 1990. Önnur börn Elsu (Valdimar og Helgi), Afi Valdi trúði á það góða í fólki. Hann hafði fallega og þægilega nærveru. Hann átti það til að vera þögull. En hnytt- inn var hann. Það sást langar leiðir hversu vænt honum þótti um hana ömmu. Hann sýndi henni virðingu jafnt og öllum öðrum. Afi Valdi vildi allt fyrir alla gera. Hann átti það til að hlýja mér á höndunum þegar mér var kalt. Stundum pakkaði hann mér inn í eitt af bútasaumsteppun- um hennar ömmu. Þá lágum við saman tvö í sófanum. Ég hafði líka gaman af því þegar við sát- um tvö við eldhúsborðið og snyrtum á okkur neglurnar. Það má segja að þá færni hafi ég lært af honum afa. Enda var afi Valdi mikið snyrtimenni og angaði ávallt vel. Það var gam- an að fylgjast með honum smyrja samlokur þegar gestir komu í heimsókn. Smjörið var smurt í öll horn og osturinn skorinn niður svo að hann pass- aði fullkomlega á brauðið. Þetta var hans list. Það kom fyrir að afi og amma keyrðu mig á æf- ingar og ég var alltaf mætt tím- anlega. Enda vildi afi leggja næstum því klukkutíma fyrr af stað, sem var eins gott því að ekki fór Pajero-inn hratt yfir. Eftir þetta furðaði ég mig aldrei á því þegar afi og amma voru mætt fyrst á staðinn. Ég gleymi aldrei göngulagi hans. Ég átti það til að elta hann í Stórholtinu og apa eftir honum, þar sem hendur voru fyrir aftan bak og hann lallaði hægt áfram. Stundum sat hann í stólnum við hliðina á sjónvarp- inu og spennti greipar og um leið sneri hann þumlunum í hringi. Ég velti því oft fyrir mér hvað hann væri að hugsa. Hvert hugur hans væri kominn. Kannski var hann staddur úti á sjó með ömmu þar sem engar áhyggjur voru. Bara hann, ástin hans og sjó- mannslífið. Það fór honum líka vel. Afi var nefnilega sterkari en Stjáni blái og miklu betri sjómaður í þokkabót. Hann var heljarmenni. Eitt sinn heyrði ég þá sögu að hann hefði stungið sér til sjós og synt í land eftir að hann hafði verið plataður í túr. Hann hafði þá engan áhuga á að fara. Hann vildi vera hjá fjölskyldu sinni. Afa þótti nefni- lega mjög vænt um fjölskyldu sína og sinnti henni vel. Amma var hans drottning og börn hans konungborin. Hann var alltaf til staðar fyrir þau. Það er sárt að sjá eftir hon- um, enda höfuð fjölskyldunnar. Hans verður sárt saknað. Það var mér sannur heiður að fá að kynnast honum. Ef ég verð heppin erfi ég vonandi eitthvað af þessum töfrandi persónuein- kennum hans og góðvild. Menn eins og afi Valdi finnast ekki á hverju strái. Með þakklæti fyrir allt afi minn, þín, Ingunn Elísabet Hreinsdóttir. Látinn er mikill öðlingur, sem hefur barist við ólæknandi sjúkdóm undanfarið. Valdimar hitti ég fyrst eftir 1970, þegar ég kom frá sérnámi í læknisfræði og settist að í heimabæ mínum Akureyri og vann þar í 35 ár. Starfinu fylgdu ferðalög um nærsveitir bæjarins og m.a. til Sauðárkróks og Siglufjarðar. Á þeirri leið var á veturna oftlega illfært yfir Öxnadalsheiðina. Hérna megin heiðarinnar var Valdi mættur, fyrir allar aldir, en hann sá um mokstur og leið- beiningar Vegagerðarinnar yfir þá heiði. Áður en ég hélt á heiðina, í fyrsta skiptið, hitti ég þar fyrir fallegan, hávaxinn mann, með bros á vör og rólegan, hægan talanda, sem vildi allt fyrir mig gera. Frá upphafi treysti ég þessum manni og leiðbeiningum hans og fór strax að þykja vænt um hann. Hann vissi deili á mér og átti það til að keyra á undan mér upp heiðina, ef honum fannst ég eitthvað hikandi. Síðar gerðist það, að eldri dóttir mín og Árni, eldri sonur Valda, tóku saman fyrir um fjórðungi aldar. Við það lágu leiðir okkar Valda þéttar sam- an. Álit mitt á Valda breyttist ekki, nema síður væri, við þetta. Góðmennskan var hans aðall og fölskvalaus gleði hans og ást hans á Kollu og börnum þeirra, skein úr rólegu brosi hans. Barnabörnin áttu þarna traustan vin, þar sem þau fundu hlýlegt athvarf í kjöltu hans. Árni, tengdasonur minn, er með sterka, trausta útgeislun, sem líktist föður hans og glað- værð Kollu móður sinnar og tekur alltaf yfirvegaðar ákvarð- anir, eins og faðir hans gerði ávallt. Nú er þessi afbragsmaður, genginn til feðra sinna. Ef ég þekki hann rétt, er hann feginn að losna við þann kross, sem hann hefur borið undanfarin misseri. Ég veit, að Pétur Gullna-hliðs dyravörður, þarf ekki að gá í bókina sína, þegar Valdi drepur á dyr. Hann þekk- ir sitt fólk. Ég votta Kollu og börnum þeirra dýpstu samúð mína og konu minnar. Eiríkur Páll Sveinsson. Mig langar í örfáum orðum að minnast félaga míns, Valda, sem nú er fallinn frá. Við Valdi kynntumst í gegnum Vegagerð- ina þar sem við unnum ýmis verkefni saman en eins hitt- umst við oft utan vinnu og þá ekki síst eftir að við hættum báðir að vinna. Valdi var traust- ur maður og nákvæmur. Það var gott að vinna með honum og hann var ekkert hlífa sér þó hann hefði einhvern annan með sér. Valdi var gríðarlegur veiði- maður og kom alltaf heim með góðan feng bæði á byssu og stöng. Valdi var líka mjög gest- risinn og það var gott að koma til hans og Kollu og spjalla. Aldrei var hægt að gera Valda greiða án þess að hann borgaði það margfalt til baka. Kollu og öðrum aðstandendum votta ég samúð mína um leið og ég kveð góðan dreng. Ingi Ragnar Sigurbjörnsson. Valdimar Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.