Morgunblaðið - 04.09.2015, Síða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2015
Þegar árunum fjölgar er hvert það sem bætist við góður bónus.Sjálf er ég þakklát fyrir góða heilsu, sem ég get ekki útskýrtöðruvísi en svo að genin hljóta að vera góð,“ segir Aðalheiður
Ólafsdóttir á Selfossi sem er 85 ára í dag. Hún hyggst halda upp á
daginn með að fara út að borða með fjölskyldunni. Afkomendahóp-
urinn telur nú alls um 30 manns og dæturnar eru fimm; búsettar á
Selfossi, í Þorlákshöfn, Hafnarfirði, Reykjavík og Stykkishólmi.
Aðalheiður er frá bænum Syðra-Velli í Flóa og ólst þar upp í hópi
fimmtán systkina. Þau eiginmaður hennar, Guðmundur Jónsson, sem
lést á síðasta ári, voru úr sömu sveit og fluttu þau á Selfoss árið 1953
og stofnuðu þar heimili sitt. Járnsmíðar og jarðvinna voru starfsvett-
vangur Guðmundar lengst af, en Aðalheiður sinnti heimili. Fór svo út
á vinnumarkaðinn þegar dæturnar voru uppkomnar. Var lengi meðal
eigenda og starfsmanna saumastofunnar Östru, hvar bróderað var úr
ullarvoðum. Þegar sú starfsemi lagðist af réðist Aðalheiður til starfa
við sjúkrahúsið á Selfossi og og vann í mötuneyti þess á síðasta skeiði
starfsævi sinnar.
„Já, mér finnst ég alveg ómöguleg nema ég hafi alltaf einhverja
handavinnu til að grípa í, saumaskap, prjóna og núna er ég að hekla.
Svo er ég alltaf með einhverjar bækur við höndina; núna er ég með
ljóð eftir Vestur-Íslendinginn Káin og svo Einar Ben. Þetta eru ólík
skáld en bæði standa fyrir sínu,“ segir Aðalheiður. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Selfoss „Verð að hafa handavinnu til að grípa í,“ segir Aðalheiður.
Genin útskýra árin
og góða heilsu
Aðalheiður Ólafsdóttir er 85 ára í dag
P
étur Már Ólafsson fædd-
ist á fæðingarheimilinu í
Kópavogi 4. september
1965. Hann hefur búið í
bænum nánast allar
götur síðan. Hann gekk í Digranes-
skóla, Víghólaskóla og útskrifaðist
sem stúdent frá Menntaskólanum í
Kópavogi árið 1985.
Pétur Már lauk BA-prófi í ís-
lensku og sagnfræði vorið 1989 og
cand. mag.-prófi í íslenskum bók-
menntum haustið 1991. Sama ár hóf
hann störf hjá bókaútgáfunni Vöku-
Helgafelli og var útgáfustjóri for-
lagsins frá 1992. Hann var jafn-
framt forstöðumaður útgáfusviðs
Eddu, hins sameinaða forlags Vöku-
Helgafells og Máls og menningar
2003–2004, er hann yfirgaf skútuna.
Árið 2005 stofnaði hann bókaút-
gáfuna Veröld ásamt Ólafi Ragnars-
syni sem hvarf fljótlega úr rekstr-
inum sökum heilsubrests. Veröld
sameinaðist Bjarti árið 2006 og á
Pétur Már nú Bjart & Veröld ásamt
Ragnheiði Elfu, konu sinni.
Pétur Már situr í stjórn Félags
íslenskra bókaútgefenda og stjórn
Bókmenntahátíðarinnar í Reykja-
vík. Þá var hann í stjórn Félags-
stofnunar stúdenta 1991–1993,
Stúdentaráði og Háskólaráði HÍ frá
1989–1991.
„Áhugamál mín litast mjög af því
að sumir segja að bókaútgáfa sé
ekki atvinna heldur lífsstíll.
Pétur Már Ólafsson bókaútgefandi – 50 ára
Fjölskyldan Sigurður Karl, Pétur Már, Ragnheiður Elfa, Þór, Ólafur Jens og heimiliskötturinn Gulli.
Bókaútgáfa er lífsstíll
Í Krossanesi í Skagafirði Pétur Már ríðandi á Boga. „Hann er fæddur
okkur, undan Fiðlu sem við eignuðumst veturgamla.
Heiðurshjónin Svandís A. Jónsdóttir og
Birgir Vigfússon eiga 50 ára hjúskapar-
afmæli í dag, 4. september. Þau verða
að heiman á þessum tímamótum.
Árnað heilla
Gullbrúðkaup
Kjartan Björns-
son, bæjarfulltrúi
og rakari á Sel-
fossi, er fimm-
tugur í dag, 4.
september. Þau
Ingunn Helgadótt-
ir kona hans taka á
móti fjölskyldu,
vinum og samferðafólki í Hótel Selfoss
frá kl. 20 í kvöld.
Árnað heilla
50 ára
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
– Ert þú utan höfuðborgarsvæðisins?
– Langar þig að ná fastari tökum á heilsunni með hjálp fagfólks?
– Getur þúæft sjálfstætt en vantar stuðning til að komast af stað?
–Viltu laga til í mataræðinu?
- Þín brú til betri heilsu
www.heilsuborg.is Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • Sími 560 1010
Nánari upplýsingar í síma 5601010
Fjarnám
með stuðningi fagaðila - þrír mánuðir