Morgunblaðið - 04.09.2015, Síða 41

Morgunblaðið - 04.09.2015, Síða 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2015 Self/Less Spennumynd sem segir af Damian, forríkum eldri manni sem er dauð- vona og ákveður að nýta sér nýja tækni og flytja vitund sína yfir í líkama yngri manns. Honum er tal- in trú um að hinn ungi maður hafi verið klónaður og heppnast flutn- ingurinn vel. Damian nýtur lífsins sem aldrei fyrr í ungum og hraust- um líkama en gamanið tekur að kárna þegar á hann sækja minn- ingar annars manns. Vaknar þá grunur um að hinn nýi líkami sé ekki klónaður. Leikstjóri er Tar- sem Singh og með aðalhlutverk vera Ben Kingsley, Ryan Reynolds, Derek Luke, Matthew Goode og Natalie Martinez. Metacritic: 34/100 The Transporter Refueled Fjórða myndin í Transporter- hasarmyndasyrpunni. Frank Mart- in, fyrrverandi sérsveitarmaður og málaliði, hefur viðurværi sitt af því að flytja pakka milli staða fyrir vafasama náunga. Allt gengur snurðulaust fyrir sig þar til dul- arfullt skaðræðiskvendi, Anna, ræður hann til starfa og svíkur hann, rænir föður hans og þvingar Frank til þess að ráðast gegn rúss- nesku glæpagengi sem stundar mansal. Frank þarf að taka á hon- um stóra sínum og nýta til fulls ökuhæfileika sína og herþjálfun. Leikstjóri er Camille Delamarre og með aðalhlutverk fara Ed Skrein, Loan Chabanol, Ray Ste- venson, Gabriella Wright, Anatole Taubman og Lenn Kudrjawizki. Metacritic: 32/100 No Escape Verkfræðingurinn Jack Dwyer flytur með fjölskyldu sína til ónefnds lands í Asíu þar sem hon- um hefur boðist spennandi starf. Áður en langt um líður verður þar mikil uppreisn, blóðugir götubar- dagar geisa milli hers og mótmæl- enda og þarf Dwyer að koma sér og fjölskyldu sinni á öruggan stað. Leikstjóri er John Erick Dowdle og með aðalhlutverk fara Owen Wilson, Lake Bell, Sterling Jerins Claire Geare og Pierce Brosnan. Metacritic: 38/100 Bíófrumsýningar Hættulegir flutningar Vísindaskáldskapur Kingsley og Reynolds í Self/less sem segir af dauð- vona eldri manni sem lætur flytja vitund sína yfir í líkama yngri manns. Bein útsending verður á RÚV frá upphafstónleikum Sinfóníu- hljómsveitar Íslands í kvöld og mun það vera í fyrsta sinn sem RÚV sýn- ir beint frá tónleikum í tónleikaröð SÍ og að auki upphafstónleikum. Á þeim mun söngvarinn Kristinn Sig- mundsson syngja aríur úr nokkrum af sínum uppáhaldsóprum og bregða sér í hlutverk Don Basilio í Rakaranum frá Sevilla eftir Ross- ini, greifans í Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart, Bancos úr Macbeth og Sakaríasar í Nabucco eftir Verdi. Útsendingin hefst kl. 20 og um dagskrárgerð sér Helgi Jóhannes- son. Morgunblaðið/Golli Ástsæll Kristinn Sigmundsson á æfingu með Sinfó fyrir tónleikana í fyrradag. RÚV sýnir beint frá Sinfó í fyrsta sinn » Alþjóðlega kvik-myndahátíðin í Fen- eyjum, ein sú virtasta í heimi, var sett í fyrra- dag með sýningu kvik- myndarinnar Everest sem Baltasar Kormákur leikstýrði. Baltasar naut sín vel innan um kvik- myndastjörnurnar á rauða dreglinum, eins og sjá má og hafa gagn- rýnendur tekið Everest vel, á heildina litið. Há- tíðin stendur í tíu daga og meðal þekktra leik- stjóra sem sýna nýjustu myndir sínar á henni eru Tom Hooper, Alex- ander Sokurov og Char- lie Kaufman. Baltasar í stjörnufans við opnun kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum Gleði Baltasar Kormákur með nokkrum af leikurum Everest, frá vinstri Emily Watson, Josh Brolin og Jake Gyllenhaal. Everest var opnunarmynd hátíðarinnar í ár sem stendur til 12. september. Flottir Reffilegir, ungir ljósmyndarar tilbúnir að mynda stjörnurnar. Sposk Ítalska leikkonan og fyrirsætan Elisa Sednaoui brosti út í annað. Vinsæll Gyllenhaal heilsaði upp á aðdáendur og veitti góðfúslega áritanir. AFP NO ESCAPE 3:45,5:45,8,10:15 TRANSPORTER REFUELED 8, 10:20 STRAIGHTOUTTACOMPTON 5, 10:10 ABSOLUTELY ANYTHING 6 THE GIFT 8 MINIONS - ENS TAL 2D 3:50 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.