Iðjuþjálfinn - 01.05.2007, Síða 7
en eiga erfitt með að taka fyrsta skrefið.
Líkamsræktin er í umsjón sjúkraþjálfara
en iðjuþjálfi frá Ljósinu er einnig á
staðnum til að halda utan um einstakl
ingana. Stofnaður hefur verið aðstand
endahópur og fengum við til liðs við
okkur prest og hjúkrunarfræðing sem
bæði hafa mikla reynslu af að vinna í
hópum og unnið mikið með sorgar
samtökunum Nýrri dögun. Tvisvar
sinnum í viku göngum við meðfram
sjónum við Ægissíðuna og kennum
þeim sem vilja stafgöngu í leiðinni.
Mikið er um sjálfboðastörf í Ljósinu
og fullt af fólki sem hefur margvísleg
hlutverk við að leiðbeina öðrum t.d.
handverkshúsinu. Lækningarmáttur
felst í því að fá að hjálpa öðrum og
margir hafa á þann hátt fundið nýjan
tilgang og ný hlutverk í lífinu.
Ég sem iðjuþjálfi átti þann draum að
byggja upp starfsemi sem væri heildræn
og tæki tillit til þarfa neytenda. Eftir
þetta fyrsta ár er ég sannfærð um að
allt er hægt ef trúin á verkefnið er nægi
lega sterk.
Mikilvægt er að þeir einstaklingar sem koma í Ljósið fái tækifæri til
að byggja upp sínar sterku hliðar svo auðveldara verði að takast á
við lífið í breyttum aðstæðum. Lífið verður aldrei alveg eins og áður
þar sem sú reynsla að greinast með krabbamein fylgir þeim ætíð.
Sumir eru tímabundið í endurhæfingu og fara aftur í sömu hlutverkin
og þeir voru í fyrir greiningu, aðrir þurfa að skipta yfir í ný hlutverk.
■
Það er vel við hæfi að fjalla um fjórða
kafla siðareglna félagsins í blaði sem
einmitt er tileinkað þessum málaflokki.
Það er grein 4.2 sem er til umfjöllunar
nú. Eins og áður er hér um að ræða
stuttan pistil þar sem velt er upp
nokkrum atriðum sem varða þessa
grein. Það er mikilvægt að leyfa siða
reglunum að tala til sín, velta þeim
fyrir sér og merkingu þeirra.
4.2 Iðjuþjálfi eflir og bætir iðjuþjálfun
í takt við þróun og breytingar í sam
félaginu.
Breytingar eru hluti af lífinu. Sumir
sækjast í að breyta til, öðrum líkar betur
við að halda sig við það sama. Í grein
4.2 í siðareglunum er bent á að gagnvart
faginu okkar höfum við ekkert val. Það
er hluti af starfi iðjuþjálfa að vera vak
andi fyrir því að þróa fagið þannig að
það svari sem best þörfum samfélagsins
á hverjum tíma. Iðja fólks breytist og
starf okkar sem iðjuþjálfar á að taka mið
af þeim breytingum. Viðhorf okkar til
lífsins eru okkur ekki alltaf meðvituð.
Er ég fastheldin eða fagna ég breyt
ingum? Hver sem viðhorf mín eru, er
mikilvægt að staldra við og skoða hvaða
áhrif þau hafa á mig sem fagmann. Þarf
ég e.t.v. að vera opnari fyrir umhverfinu?
Eða þarf ég að taka meira tillit til
umhverfisins? Það er eðli fags að þróast
og við tökum þátt í því á einn eða annan
hátt. Við höfum misjafnar áherslur og
sumum fellur betur en öðrum að láta til
sín taka varðandi eflingu fagsins. Nýjum
hugmyndum þarf að vinna fylgi og
jafnvel breyta viðhorfum. Það er gott að
allir eru ekki eins og mikilvægt að
tileinka sér jákvæðni gagnvart þeim sem
hafa þrek og þor til að vinna nýjar
lendur innan fagsins. En um leið muna
eftir því að allir hafa eitthvað að gefa til
þróunar fagsins, hver á sinn hátt.
Fyrir hönd Siðanefndar
Iðjuþjálfafélags Íslands
Guðrún Áslaug Einarsdóttir
Pistill frá Siðanefnd
– 4. Kafli iðjuþjálfi og samfélagið
IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2007 • 7