Iðjuþjálfinn - 01.05.2007, Qupperneq 9
IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2007 • 9
Karen Jacobs. Undirbúningsnefndin sá
um að koma viðeigandi gögnum í
prentun og koma þeim út til þátt
takenda. Panta þurfti tvöfalt magn
gagna og svo mikil var eftirspurnin að
öll gögn kláruðust. Við undirbúning
og vinnslu gagn anna var meðal annars
unnið í samvinnu við undir bún ings
nefnd IÞÍ fyrir 3L EXPÓ sýninguna
sem haldinn var í Egilshöll í byrjun
september 2006. Undirbúnings nefndin
hefur tekið saman tölfræði legar niður
stöður sem bár ust nefnd inni og sent
þær áfram til Banda ríkjanna þar sem
AOTA vill halda utan um slíkar upp
lýsingar víðs vegar að úr heiminum.
Fræðsla og forvarnir Skólatösku
daganna fór þannig fram að iðju þjálfar
voru með fyrirlestur fyrir bekki eða
bekkjardeildir. Í flestum tilfellum fór
fram sýnikennsla á því hvernig nota á
skólatösk una og hvernig á ekki að nota
hana. Einnig var farið yfir hvernig á að
raða og pakka niður í skólatöskuna.
Nem endum var boðið upp á að vigta
skóla töskurnar sínar sem og sig sjálfa
og í framhaldi
var reiknað út
hlutfall þyngdar
tösku af eigin
þyngd nem enda.
Nem endur fengu
allir blað með sér
heim með fræðslu
af sama tagi og fór
fram í skóla stof
unni sem eink um
var ætlað til að
leiðbeina foreldr
um. Lagt var til líkt
og gert er í Banda
ríkjun um að heim
sóttir yrðu nemend
ur á mið stigi þar
sem taskan þyngist
eftir því sem börnin
eldast. Auk þess sem reynsla iðju þjálfa
sem hafa tekið þátt í Skóla töskudögum
sýnir að álags ein kenni eru tíðari í efri
bekkj ar deildum.
Þeir iðjuþjálfar sem tóku þátt í verk
efninu voru í mismunandi að stöðu.
Sumir unnu þetta í sjálf boða vinnu en
annars staðar féll þessi viðburður undir
skilgreiningu á vinnu iðjuþjálfanna til
dæmis í skólum. Aðrir voru á vettvangi
með vilyrði frá vinnu veitanda þó svo
að þessi nálgun félli ekki undir skil
greiningu á daglegri vinnu þeirra. Þeir
sem buðu fram krafta sína höfðu
nokkuð frjálsar hend ur um framkvæmd
ina. Þeir höfðu sam band við skóla að
eigin vali, hvort heldur
sem það var í nágrenni við
vinnu staðinn, sem þeir
tengdust vegna barna
sinna eða skólar sem þeir
unnu í. Þá höfðu
þátttakendur frjálsar
hendur með hversu
marga bekki eða skóla
þeir myndu heim sækja.
Undir búnings nefndin
óskaði eftir að fá að vita
fyrirfram hvaða skólar
yrðu fyrir valinu svo hægt væri að
stýra því ef margir ætluðu í sama
skólann sem og til að halda utan um
fjölda gagna sem þurfti að panta úr
prent un. Við brögð skól anna voru með
eindæm um góð og höfðu nokkr ir
skólar samband að fyrra bragði.
Alls tóku 38 iðjuþjálfar beinan þátt í
Skólatöskudögum 2006. Nokkuð var
um að nemar fóru með iðjuþjálfum í
skólana auk þess að Karen Jacobs var
stödd hér á landi og tók virkan þátt.
Heimsóttir voru um fjórð ungur grunn
skóla landsins, 36 á landsbyggðinni og
17 á höfuð borgar svæðinu, alls 54
skólar. Tölulegar upp lýsingar bárust
frá 33 skólum um rúm lega 2000 grunn
skólanemendur eða tæplega 5% ís
lenskra grunnskólabarna.
Skólatöskudagar eru góð markaðs
setning fyrir fagið og kynning á hlut
verki iðjuþjálfa í samfélaginu. Umfjöll
un um dagana var töluverð í
fjöl miðl um. Fréttir birtust í Morg
unblaðinu, Fréttablaðinu, Blað inu,
Ríkis sjónvarpinu og viðtal var við
iðjuþjálfa í þætti á Skjá einum. Þá voru
fjölmargir svæðis fjölmiðlar með um
fjöllun um þessa daga. Penn inn
Eymund son hafði sam band við Iðju
þjálfafélagið að fyrra bragði og óskaði
eftir að styrkja átakið. Þeir kostuðu til
prentun á stórum hluta gagnanna og
maður á þeirra snærum sendi út frétta
til kynningu og veitti ráð varðandi um
fjöllun í fjölmiðlum.
Þetta er fyrsta árið sem Skóla tösku
dagar eru framkvæmdir á veg um félags
ins á landsvísu. Undir búningsnefnd
varð vör við mikinn áhuga á skóla tösku
dögum innan skólakerfisins. Nokkr ir
skólastjórn endur höfðu sam band að
fyrra bragði og óskuðu eftir að fá
fræðslu fyrir sína nemendur. Áhugi er
hjá Iðjuþjálfafélagi Íslands á að halda
Skólatöskudaga árlega sem fræðslu og
markaðssetningu fyrir fagið. Mikilvægt
er að virkja sem flesta í félaginu því að
á þann hátt verða iðjuþjálfar mjög sýni
legir í íslensku samfélagi.
Höfundar eru iðjuþjálfar og unnu í
undirbúningsnefnd IÞÍ fyrir
Skólatöskudaga 2006
Skólataskan
Skólataskan þarf að f
alla þétt að
hrygg barnsins og not
a skal festingar
yfir mjaðmar- og/eða
brjóst.
Stillið allar festingar s
vo taskan
haldist sem næst líka
ma barnsins.
Taskan má ekki vega
meira en
10-20% af líkamsþyng
d barnsins.
Neðsti hluti töskunnar
á að hvíla við
mjóbakið og taskan á
aldrei að ná
lengra en 10 cm fyrir
neðan mitti.
Raðið í töskuna þanni
g að hlutirnir
renni ekki til í henni o
g þyngstu
hlutirnir eiga að vera
sem næst
baki barnsins.