Iðjuþjálfinn - 01.08.2011, Side 7
IðjuþjálfInn 1/2011 • 7
Í fræðslu og kynningarnefnd 20102011 sitja Björg Jónína Gunnarsdóttir, Bryn
hildur Guðmundsdóttir, Hafdís Péturs
dóttir, Rakel Anna Másdóttir og Sigrún Jóna
G. Eydal. Brynhildur, Rakel Anna og Sigrún
Jóna ganga út úr nefndinni þetta árið en
Arnþrúður Eik, Elín Heiða og Ragnheiður
Reykjalín koma inn í staðinn.
Hlutverk nefndarinnar er að hafa yfir
umsjón með fræðslumálum inn an félagsins
ásamt því að vinna að kynn ingar málum.
Stærsta og viða mesta verkefnið er að halda
utan um og skipuleggja hið árlega verkefni
Skólatöskudaga.
Fræðslumál
Á árinu hóf fræðslu og kynningarnefnd
samstarf við Endurmenntun Háskóla Ís lands
og felst það í samstarfinu að Endur menntun
skipuleggur ýmis námskeið sem standa
félögum Iðjuþjálfafélags Íslands til boða.
Félagsmenn hafa þó ekki nýtt sér námskeið
Endurmenntunar nógu vel. Mikilvægt er að
hvetja félagsmenn til þátttöku í námskeiðum
en starfsfólk Endur menntunar segir
ástandið vera svipað í öðrum fagfélögum.
Einnig hefur nefndin tvisvar staðið fyrir
hádegisfræðslu í sal BHM og þótti það
heppnast vel. Nokkur spurn hefur verið eftir
AMPSnámskeiði hér á landi og er vinna við
það námskeið nú komin í gang.
Kynningarmál
Kynningarmál eru vaxandi verkefni í starfi
nefndarinnar og hægt og rólega byggist upp
þekking og reynsla í þessum málaflokki.
Nefndin hefur ekki verið nógu öflug í
kynningarmálum og nokkuð erfitt hefur
reynst að ná athygli fjölmiðla, t.d. til að
kynna Skólatöskudaga. Með því að hafa
einn nefndarmeðlim sem tengilið við
fjölmiðla vonumst við til að efla þennan
hluta nefndarstarfanna.
Hugmyndir til að ná athygli
fjölmiðla
Hvetja iðjuþjálfa sem hafa farið á Skóla
tösku daga til að skrifa stutta pistla í vefmiðla
og blöð þar sem þeir segja frá reynslu sinni.
Senda „krassandi“ fréttatilkynningar á
fjölmiðla þar sem mikilvægi Skóla tösku
daga kemur fram.
Fræðslu og kynningarnefnd er einnig
í samstarfi við afmælisnefnd Iðju þjálfa fél
agsins með ýmis verkefni, svo sem daga tal
sem félagar fengu sent fyrir stuttu. Dagur
iðjuþjálfunar var haldinn í fyrsta sinn 27.
október 2010. Dagsetningin var miðuð
við alþjóðlega viku iðjuþjálfunar og
bindum við miklar vonir við að í fram tíð
inni verði dagurinn öflugur liður í kynn
ingu á iðjuþjálfun.
Skólatöskudagar
Skólatöskudagar voru haldnir fimmta árið í
röð og fóru fram vikuna 20.24. september.
Þátt taka var heldur minni en hún hefur
verið undanfarin ár og fóru 24 iðjuþjálfar og
einn nemi í 23 skóla víðs vegar á landinu.
Að sama skapi var fækkun á nemendafjölda
sem hittu iðjuþjálfa, en 1237 nemendur
fengu fræðslu og/eða vigtun. Hins vegar varð
sú breyting að margir skólar óskuðu eftir
að fá iðjuþjálfa á Skólatöskudögum, sem
er mjög gleðilegt. Fræðslu og kynn ing ar
nefndin hefur ákveðið nokkrar breytingar
á fyrirkomulagi Skólatöskudaga, svo sem
aukið samstarf við Háskólann á Akur eyri
um þátttöku iðjuþjálfunarnema og að meiri
áhersla verði lögð á fræðslu og upp röð un
í skólatöskuna. Vonast nefndin til þess að
þátttaka iðjuþjálfa og nema verði betri í ár.
Hægt er að nálgast skýrslu vegna Skóla tösku
daga 2010 á www.sigl.is og eins gögn sem
þeim tilheyra.
Að lokum
Fræðslu og kynningarmál fela í sér sam
vinnu við félagsmenn til að árangur náist
og því viljum við hvetja ykkur til að vera
dugleg að aðstoða okkur við að koma með
hugmyndir og útfæra þær. Því fleiri sem eru
virkir því meiri líkur eru á góðum árangri.
Stöndum saman okkur sjálfum og faginu
til hagsbóta!
Með góðri kveðju!
Fyrir hönd fræðslu- og kynningarnefndar,
Rakel Anna og Björg Jónína
hættu störfum í kjaranefnd á síðasta
aðalfundi félagsins. Rósa Hauksdóttir fer
aftur í varamannssæti í stjórn IÞÍ og þar af
leiðandi kemur nýr fulltrúi stjórnar inn í
kjaranefnd. Aðrir nefndarmenn voru ekki
til kjörs að þessu sinni.
Það er upplifun þeirra sem gengu úr
nefndinni að starfið sé mjög lærdómsrík og
góð reynsla, þar sem ýmis samskipti ganga
að stórum hluta út á samningaviðræður.
Eftirtalin gáfu kost á sér og voru
kjörin í kjaranefnd á aðalfundinum:
Rakel Anna Másdóttir (Reykjalundur),
Álfheiður Karlsdóttir (FSA), Guðjón
Benediktsson (LSHHringbraut/
geðdeild), Pálína Sigrún Halldórsdóttir
(Akureyrarbær) og Bergþóra Guðrún
Þorsteinsdóttir (Sjúkratryggingar Íslands
– Hjálpartækjamiðstöð). Það er mjög
ánægjulegt að nú eiga stærstu vinnustaðir
iðjuþjálfa aftur fulltrúa í kjaranefnd, sem
er afar mikilvægt til að efla tengsl félagsins
við félagsmenn og vinnustaði. Nefndin
hefur skipt með sér verkum og er Guðjón
formaður, Bergþóra varaformaður og
Rakel Anna ritari.
f.h. fráfarandi kjaranefndar
Berglind Indriðadóttir
Fréttir frá fræðslu- og kynningarnefnd