Iðjuþjálfinn - 01.08.2011, Síða 30

Iðjuþjálfinn - 01.08.2011, Síða 30
30 • IðjuþjálfInn 1/2011 Gerður Gústavsdóttir Yfiriðjuþjálfi Breyttar áherslur – nýjar leiðir Á undanförnum misserum hefur Æfinga­ stöðin farið í gegnum breytingar á innra skipu lagi með það að markmiði að bæta þjónustuna við skjólstæðinga sína. Liður í því er að auka samvinnu við foreldra og þátt þeirra í þjónustuferlinu. Í starfi okkar með börnum og ungmennum er leitast við að fylgjast vel með nýjungum, þróun og þekkingu innan iðjuþjálfunar og sjúkra þjálfunar með skjólstæðingsmiðaða þjónustu að leiðarljósi. Við leggjum metnað okkar í að veita heildræna nálgun við lausn vanda og leggjum því ríka áherslu á náið sam starf við fjölskyldur og þá sem veita barninu þjónustu. Til okkar leitar mjög breiður hópur með margvíslegan vanda. Við höfum nýtt okkur þau tækifæri sem hafa skapast til að fara nýjar leiðir og stuðlað að áherslu breytingum í þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra. Æfingastöðin er sjálfstæð heil­ brigðisstofnun og hefur verið starfrækt frá árinu 1956. Það er Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra sem rekur Æfingastöðina auk sumar­ og helgardvalarstaðar fyrir fötluð börn og ungmenni í Reykjadal í Mosfellsbæ. Hlutverk Æfingastöðvarinnar er að efla börn og ungmenni með skerta færni og stuðla að virkri þátttöku þeirra í samfélaginu. Þar er einnig ákveðnum hópi fullorðinna einstaklinga sinnt, sér í lagi þeim sem hafa verið hreyfihamlaðir frá barnæsku og notið þjónustu Æfinga­ stöðvarinnar frá unga aldri. Einnig er veitt þjónusta við einstaklinga með Parkinson sjúkdóm. Á Æfingastöðinni veita iðjuþjálfar og sjúkraþjálfarar þjónustu þar sem áhersla er á fjölbreytt úrræði fyrir börn, ungmenni og foreldra þeirra. Yfir þúsund einstaklingar sækja þjónustu Æfingastöðvarinnar á ári hverju. Heildarfjöldi starfsmanna er um 35 þar af 10 iðjuþjálfar og 16 sjúkraþjálfarar. Þjónustan fer ýmist fram í húsnæði Æfingastöðvarinnar að Háaleitisbraut 13 eða í nánasta umhverfi barnsins svo sem í leikskólum/skólum eða á heimili. Auk þess starfar iðjuþjálfi í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Í takt við breyttar áherslur og aukna þekkingu hefur starfsemi Æfingastöðvarinnar tekið meira og meira mið af þörfum fjölskyldna barna með sérþarfir. Stjórn Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra ákvað fyrir nokkru að endurskipuleggja þjónustu Æfingastöðvarinnar með hugmyndafræði fjölskyldumiðaðrar þjónustu að leiðarljósi. Þjónustan byggir á ákvarðanatöku og áhrifum skjólstæðingsins sjálfs í eigin íhlutun sem fellur vel að fjölskyldumiðaðri þjónustu. Æfingastöðin hefur þannig styrkt stöðu sína enn frekar sem miðstöð þekkingar og þjónustu við börn og ungmenni með skerta færni. Fjölskyldumiðuð þjónusta hefur verið að festa sig í sessi bæði hér á landi og erlendis og getur, að margra mati, skipt sköpum til að ná góðum árangri í meðferð. Á síðustu áratugum hafa rannsóknir sýnt fram á að betri árangur næst ef fjölskyldan er höfð með í ráðum og fær þann stuðning sem hún þarfnast. Auk þess hefur komið fram í þjónustukönnunum á vegum Æfingastöðvarinnar að foreldrar óska eftir Æfingastöðin

x

Iðjuþjálfinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.