Iðjuþjálfinn - 01.08.2011, Blaðsíða 30
30 • IðjuþjálfInn 1/2011
Gerður Gústavsdóttir
Yfiriðjuþjálfi
Breyttar áherslur – nýjar leiðir
Á undanförnum misserum hefur Æfinga
stöðin farið í gegnum breytingar á innra
skipu lagi með það að markmiði að bæta
þjónustuna við skjólstæðinga sína. Liður
í því er að auka samvinnu við foreldra
og þátt þeirra í þjónustuferlinu. Í starfi
okkar með börnum og ungmennum er
leitast við að fylgjast vel með nýjungum,
þróun og þekkingu innan iðjuþjálfunar og
sjúkra þjálfunar með skjólstæðingsmiðaða
þjónustu að leiðarljósi. Við leggjum metnað
okkar í að veita heildræna nálgun við lausn
vanda og leggjum því ríka áherslu á náið
sam starf við fjölskyldur og þá sem veita
barninu þjónustu. Til okkar leitar mjög
breiður hópur með margvíslegan vanda. Við
höfum nýtt okkur þau tækifæri sem hafa
skapast til að fara nýjar leiðir og stuðlað að
áherslu breytingum í þjónustu við börn og
fjölskyldur þeirra.
Æfingastöðin er sjálfstæð heil
brigðisstofnun og hefur verið starfrækt frá
árinu 1956. Það er Styrktarfélag lamaðra
og fatlaðra sem rekur Æfingastöðina
auk sumar og helgardvalarstaðar fyrir
fötluð börn og ungmenni í Reykjadal í
Mosfellsbæ. Hlutverk Æfingastöðvarinnar
er að efla börn og ungmenni með skerta
færni og stuðla að virkri þátttöku þeirra
í samfélaginu. Þar er einnig ákveðnum
hópi fullorðinna einstaklinga sinnt, sér í
lagi þeim sem hafa verið hreyfihamlaðir
frá barnæsku og notið þjónustu Æfinga
stöðvarinnar frá unga aldri. Einnig er veitt
þjónusta við einstaklinga með Parkinson
sjúkdóm.
Á Æfingastöðinni veita iðjuþjálfar
og sjúkraþjálfarar þjónustu þar sem
áhersla er á fjölbreytt úrræði fyrir börn,
ungmenni og foreldra þeirra. Yfir
þúsund einstaklingar sækja þjónustu
Æfingastöðvarinnar á ári hverju.
Heildarfjöldi starfsmanna er um 35 þar
af 10 iðjuþjálfar og 16 sjúkraþjálfarar.
Þjónustan fer ýmist fram í húsnæði
Æfingastöðvarinnar að Háaleitisbraut 13
eða í nánasta umhverfi barnsins svo sem
í leikskólum/skólum eða á heimili. Auk
þess starfar iðjuþjálfi í Íþróttahúsinu við
Strandgötu í Hafnarfirði.
Í takt við breyttar áherslur og
aukna þekkingu hefur starfsemi
Æfingastöðvarinnar tekið meira og
meira mið af þörfum fjölskyldna barna
með sérþarfir. Stjórn Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra ákvað fyrir
nokkru að endurskipuleggja þjónustu
Æfingastöðvarinnar með hugmyndafræði
fjölskyldumiðaðrar þjónustu að leiðarljósi.
Þjónustan byggir á ákvarðanatöku og
áhrifum skjólstæðingsins sjálfs í eigin
íhlutun sem fellur vel að fjölskyldumiðaðri
þjónustu. Æfingastöðin hefur þannig
styrkt stöðu sína enn frekar sem miðstöð
þekkingar og þjónustu við börn og
ungmenni með skerta færni.
Fjölskyldumiðuð þjónusta hefur verið
að festa sig í sessi bæði hér á landi og
erlendis og getur, að margra mati, skipt
sköpum til að ná góðum árangri í meðferð.
Á síðustu áratugum hafa rannsóknir sýnt
fram á að betri árangur næst ef fjölskyldan
er höfð með í ráðum og fær þann stuðning
sem hún þarfnast. Auk þess hefur komið
fram í þjónustukönnunum á vegum
Æfingastöðvarinnar að foreldrar óska eftir
Æfingastöðin