Iðjuþjálfinn - 01.08.2011, Page 28
28 • IðjuþjálfInn 1/2011
Harpa María Örlygsdóttir
Iðjuþjálfi og íþróttakennari
Æfingastöðin
Félagsfærni er færni í mannlegum samskiptum og hegðun sem gerir okkur
kleift að taka þátt í samfélaginu. Við byrjum
sem ungabörn að læra félagsfærni og erum
að læra allt okkar líf. Börn læra þessa færni
eða hegðun af fólki sem það umgengst svo
sem. foreldrum, systkinum, kennurum,
vinum og ættingjum. Flest börn læra
sjálfkrafa þessa hegðun og eru ekki að spá í
þær óskrifuðu reglur sem fylgir því að verða
þátttakandi í samfélaginu. Sum börn eiga
erfiðara með að læra þessa hegðun og þurfa
því beina kennslu og þjálfun í félagsfærni.
Á Æfingastöðinni við Háaleitisbraut
er boðið upp á ýmis námskeið þar sem
áhersla er lögð á að efla félagsfærni.
Æfinga stöðin er miðstöð þjónustu og
þekkingar í hæfingu og endurhæfingu
fyrir börn og ungt fólk sem þurfa aðstoð
við að bæta færni í leik og starfi, svo þau
geti þroskast, dafnað og notið lífsins. Veitt
er bæði einstaklings og hópþjálfun af
iðjuþjálfum og sjúkraþjálfurum. Félags
færninámskeiðin á Æfingastöðinni eru
fyrir börn og ungmenni á aldrinum 316
ára og fara þau fram í hópum, þar sem
yfirleitt eru 46 börn í hóp. Á sumum
nám skeiðunum er að auki lögð áhersla á
fínhreyfifærni, grófhreyfifærni og útiveru.
Þau börn sem eru með slaka félagslega
færni eru gjarnan vinafá, verða oft fyrir
stríðni, hafa ekki getu í að vinna í hóp,
eru með lítið sjálfstraust og hafa litla leik
gleði í sér. Þessir þættir geta haft áhrif á
svo margt í lífinu, svo sem líðan í skóla og
tóm stundum og jafnvel á námslega færni.
Það er jafn mikilvægt að læra félagsfærni
eins og stærðfræði og sund. Það er því
mikilvægt að grípa inn í sem fyrst og veita
þessum börnum kennslu og þjálfun, því
það er hægt að ná góðum árangri með
þjálfun í félagsfærni.
Reynslan hefur sýnt að góð leið til að
kenna og þjálfa félagsfærni er í gegnum
leik. Börn læra margt í gegnum leik og er
mikil vægi þess oft vanmetið. Þau þurfa
aðstoð við að skilja leik og leikreglur og
til hvers er ætlast af þeim. Börn með slaka
félags færni verða að fá tækifæri sem og
æfingu í að vera þátttakendur í hóp. Þau
þurfa meðal annars kennslu í að skiptast
á, fylgja fyrirmælum og reglum, tjá sig í
hóp, hlusta á aðra, taka tillit til annarra,
ein beita sér, leysa verkefni, leysa ágreining,
eiga samskipti, sýna samvinnu, sýna sam
kennd og tjá tilfinningar.
Meginmarkmið námskeiðanna á
Æfinga stöðinni er að börnin fái tækifæri
til að vera hluti af hóp og að virkja þátt
tökugleði þeirra. Á námskeiðunum er
meðal annars stuðst við hugmyndafræði
sem byggir á lausnamiðuðum aðferðum
sem snýr að hvernig barnið sér vandamál
og fær aðstoð við að leysa það og hug
myndafræði reynslunáms sem byggir á því
að barnið lærir það sem það upplifir.
Þegar börn koma á námskeiðin er
mikil vægt að þau viti hvað þau eru að gera
þar og að allir sem koma á Æfingastöðina
eru að æfa sig í einhverju. Á hverju nám
skeiði eru settar reglur með hópnum og
þær eru æfðar og ræddar en einnig er farið
í ýmsa leiki og samvinnuverkefni sem
reyna á þær reglur. Reglurnar eru meðal
annars tengdar þáttum eins og vináttu,
sam vinnu og jákvæðni. Sem dæmi um
regluna vinátta, þá eru kennd ýmis ráð
til að eignast vini, koma vel fram við
aðra, hvað hægt sé að gera ef upp kemur
ágrein ingur og hvernig megi stjórna reiði
og fleira.
Þá eiga sum börn auðvelt með að
um gangast og tala við fullorðna en eiga
í erfiðleikum með að tengjast öðrum
börnum. Í þeim tilfellum þarf þjálfarinn
að fara í hlutverkaleiki og barnið þarf
að fá að prófa að framkvæma hlutina og
fá stuðning frá þjálfara allan tímann. Í
sumum tilfellum virkar vel að nota félags
færnisögur, litlar sögur í máli og myndum,
þar sem skýrt er út skref fyrir skref hvað
gera skal í vissum aðstæðum.
Til að hægt sé að meta árangur setja
börn frá u.þ.b. átta ára aldri sér markmið
í samráði við þjálfara og foreldra. Mark
miðin hafa það að leiðarljósi að vekja
áhuga barnsins á þjálfuninni og auka
skilning á því sem verið er að vinna
með. Börnin vinna að markmiðunum
á námskeiðinu og eru þau tengd þeim
þáttum sem hindra barnið í félagsfærni.
Mark miðin eru endurmetin í lok hvers
námskeiðs. Dæmi um markmið sem börn
hafa sett sér eru: Ég ætla að æfa mig í að
fara eftir fyrirmælum, ég ætla að hafa betri
stjórn á skapinu, ég ætla að vera jákvæður
og kynnast öðrum krökkum.
Rannsóknir sýna að hægt sé að tengja
slaka félagsfærni við neikvæða sjálfsmynd
og líðan. Börn og sérstaklega ungmenni
eru uppteknari af því hvað þau eru léleg
en hvað þau eru dugleg. Mikilvægt er því
að mæta þessum börnum með hlýju og
áhuga, efla styrkleika þeirra og byggja upp
sjálfsvitund og sjálfstraust.
Stór hluti af því að vera með góða
félagsfærni er að vera ánægður og sáttur
við sjálfan sig. Það er ekkert betra en að
sjá glöð og ánægð börn. Þar er hrósið
stærsta vopnið enda hefur það verið kallað
vítamín sálarinnar.
Félagsfærniþjálfun barna á
Æfingastöðinni