Iðjuþjálfinn - 01.08.2011, Síða 39
IðjuþjálfInn 1/2011 • 39
mikilvægt að starfsmenn noti bæði andlit og
líkama til tjáningar og geti leikið sér sjálfir.
Klúbburinn hefur verið starfræktur síðan
haustið 2010. Reynslan sýnir okkur að
til að klúbbastarfið kveiki á lífsneistanum
er mikilvægt að fylgja römmunum
með aðaláhersluna á gleðina. Að val á
einstaklingum í klúbbinn sé vandað,
með tilliti til að allir séu á svipuðu stigi í
sjúkdómsferlinu. Að þátttakendur hittist
í hverri viku, undantekningalaust, og að
báðir starfsmenn séu ávallt viðstaddir. Og
að einstaklingar í klúbbnum séu alltaf þeir
sömu, en ekki skipt út eftir ástandinu á
heimilinu hverju sinni.
Til að geta kallað klúbbinn sólskinsklúbb
eftir hugmyndafræði Lífsneistans er
mikilvægt að draga ekki úr kröfum og
stytta sér ekki leiðir. Nauðsynlegt er að
annar starfsmaðurinn hafi sótt námskeið í
Lífsneistanum og geti því miðlað áfram.
Klúbbastarfið í vetur hefur verið
skemmtilegt og höfum við séð lífsneistann
kvikna hjá mörgum einstaklingum, tjáskipti
aukast og kvíða minnka, og félagsleg
samskipti verða virkari. Auk þess tjá
einstaklingarnir sjálfir mikla ánægju og gleði
með starfið. Lífsneistinn er kominn til að
vera á Hrafnistuheimilunum.
Hægt er að lesa sér til um efnið í bók Jane
Verity sem heitir á frummálinu: „Dementia
– How to care and how to cope“. Einnig
er hægt að lesa bókina: „Að endurvekja
lífsneistann hjá fólki með heilabilun,“
sem gefin var út af Félagi aðstandenda
Alzheimerssjúklinga og annarra skyldra
sjúkdóma. Áhugasömum er velkomið að
hafa samband við undirritaðar ef þeir vilja
vita meira um klúbbastarfið á Hrafnistu.
Við óskum
Iðjuþjálfafélagi Íslands
til hamingju með
35 ára afmælið
Fjórða mars 1976 var Iðjuþjálfafélag Íslands formlega stofnað
og nafnið iðjuþjálfun fest í sessi. Stofnfélagar voru 10 talsins.
Fyrstu stjórnina skipuðu: Hope Knútsson
Guðrún Pálmadóttir
Anne Grethe Hansen og
Ingibjörg Ásgeirsdóttir.
Auk þeirra voru stofnfélagar:
Sigríður Loftsdóttir
Jóna Kristófersdóttir
Kristín Tómasdóttir
Emelita O. Nocon
Hildegard Demleiter og
Margrét Demleiter