Skólavarðan - 01.03.2005, Page 12
12
SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 5. ÁRG. 2005
SKÓLAHEIMSÓKN
Tónlistarskóli Garðabæjar, sem var
upphaflega rekinn af Tónlistarfélagi
Garðahrepps, bjó lengi vel við þröngan
húsakost en haustið 1999 flutti hann í
nýtt og glæsilegt hús að Kirkjulundi
11. Nemendur eru 480 í söng- og hljóð-
færanámi en kennarar eru 27. Skólinn
skiptist í þrjár deildir, rekstrardeild,
píanó- og söngdeild og blásara- og
strengjadeild. Mikil áhersla er lögð
á samleik og samsöng nemenda og
starfandi eru blásarasveitir og strengja-
sveit, ásamt ýmsum samspilshópum.
Agnes Löve hefur gegnt starfi skóla-
stjóra frá árinu 2000. Skólavarðan fór í
heimsókn í Garðabæ og leitaði upplýs-
inga um skólann sem bæjarbúar hafa
lagt svo mikinn metnað í.
Eðlilegt að fjármagn fylgi
hverjum nemanda
Agnes var spurð að því hvort Garðbæingar
væru músíkalskir. Hún hló við og sagði að
þeir hefðu hvað sem öðru liði sótt mjög
í tónlistarskóla og skólinn hefði alltaf
verið mjög öflugur þótt bæjarfélagið
hefði ekki verið stórt. Núna búa um 9000
manns í bænum og nemendur eru vel á
fimmta hundrað. Aðspurð um það hvort
nemendur kæmu úr öðrum bæjarfélögum
sagði Agnes að það hefði farið minnk-
andi sl. tvö ár vegna breyttra reglna um
greiðslu skólagjalda milli sveitarfélaga.
Agnes metur það svo að þetta sé neikvætt
því það sé gott að nemendur geti valið sér
tónlistarskóla og fylgt þeim kennurum sem
þeir óska sér. Hún sagði að í grunnskólum
Garðabæjar fylgdi fjármagnið nemand-
anum og eðlilegt væri að það sama gilti
um tónlistarnám.
Skólinn til bæjarbúa - bæjarbúar
í skólann
Skólinn heldur nú upp á fjörutíu ára starfs-
afmæli sitt og af því tilefni er mikið um
dýrðir í skólastarfinu. Þegar ég kom í heim-
sókn unnu nemendur með þemað samspil
til að undir- búa heimsóknir víðs vegar um
bæinn. Þeir voru að undirbúa að koma
fram á ýmsum stofnunum bæjarins og fjöl-
mennum stöðum til að vekja athygli á því
sem þeir hafa fyrir stafni. Hádegistónleikar
höfðu verið haldnir í skólanum, fimm í sept-
ember og fimm í janúar, og þar komu fram
fyrrverandi burtskráðir nemendur skólans
og starfandi kennarar. Þetta voru hálftíma
tónleikar og var aðgangur ókeypis. Þetta
var gert til að fá Garðbæinga til að koma
í skólann og sjá og heyra hvaða árangri
hann skilar. Að sögn Agnesar gekk þetta
afar vel og var mjög jákvætt.
Fyrirmyndar húsnæði
Sennilega er Tónlistarskólinn í Garðabæ
sá tónlistarskóli á Íslandi sem býr við
hvað bestan húsakost.. Þar eru þrettán
kennslustofur, tvær fyrir hópkennslu og
ellefu litlar og stórar stofur fyrir hljóð-
færakennslu. Tveir glæsilegir tónleikasalir
eru í húsinu, annar er æfingasalur fyrir
hljómsveitir og hópa en hinn er með upp-
hækkað svið og bólstruð sæti fyrir 100
gesti. Þar er Steinway-flygill og þar fara
allir tónleikar skólans fram. Nemendur
geta hreiðrað um sig í biðstofu meðan
þeir bíða eftir að komast að hjá kennara
sínum og öll aðstaða fyrir kennara og
annað starfsfólk er rúmgóð og falleg. Í
anddyri skólans tekur músíkalskt listaverk
eftir Gerði Gunnarsdóttur á móti gestum
Tónlistarfræjum
sáð í Garðabæ
Agnes Löve skólastjóri
Tónlistarskóla Garðabæjar.
Ásgeir Jón Ásgeirsson gítarkennari með nemanda.
40Tónlistarskóli Garðabæjar fagnar 40 ára starfsafmæli