Skólavarðan - 01.03.2005, Page 22
22
SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 5. ÁRG. 2005
Framundan er Nýsköpunarkeppni
grunnskólanemenda 2005. Margir
skólar hafa nú þegar hafið undirbún-
ing hennar. Keppnisflokkarnir eru ferns
konar: Uppfinningar, útlits- og form-
hönnun, hugbúnaður og þemaverk-
efnið Slysavarnir, en það síðastnefnda
er á vegum Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar. Hægt er að senda inn hug-
myndir til 26. mars.
Tilhögun keppninnar er sú að nem-
endur fylla út þar til gert eyðublað/-blöð
og senda til Kennaraháskóla Íslands eða
á netinu, sjá www.nkg.is Hugmyndirnar
fara síðan fyrir matsnefnd. Í henni eru
um tíu manns sem meta þær og velja 60
- 70 hugmyndir sem fara áfram í vinnu-
smiðjur. Að lokum velur dómnefnd hvaða
hugmyndir skuli fá verðlaun og eru veitt
þrenn verðlaun í hverjum af flokkunum
fjórum. Þau eru í formi ríkisskuldabréfa.
Sumir skólar leggja áherslu á sérstök
atriði í samstarfinu. Sem dæmi má nefna
að Foldaskóli hefur tekið að sér vinnu-
smiðjurnar og hafa þær verið þar undan-
farin þrjú ár og gengið sérlega vel. Þær
verða þar núna 10. og 11. sept.
Frumkvöðull og helsti hvatamaður NKG,
Paul Jóhannsson, sagði í viðtali við Skóla-
vörðuna að Marel hf. hefði nú stofnað til
samstarfs við keppnina næstu þrjú árin og
var samningur þar að lútandi undirritaður
sl. haust. Tilgangur Marels væri að auka
vægi nýsköpunar og stefna að því að vera
fyrirmynd annarra fyrirtækja á Íslandi. Fyr-
irtækið veitir beinan fjárstuðning, svo sem
að gefa verðlaun, veita verðlaunapeninga
og duglegasta skólanum farandbikar, og
margvíslega faglega aðstoð eins og að
láta þátttakendur njóta reynslu fyrirtæk-
isins og þekkingar á sviði sýningarhalds
og kynninga. Þá hefur náðst samkomulag
milli Marels hf., Garðabæjar og NKG um
að ráða kennsluráðgjafa í raungreinum og
nýsköpun fyrir grunnskóla Garðabæjar og
mun hann einnig verða starfsmaður NKG
og hafa aðstöðu í Sjálandsskóla.
Að sögn Pauls er engan bilbug að finna
á aðstandendum NKG og munar mikið
um meðbyrinn sem m.a. kemur fram með
framlagi Marels hf. og Garðabæjar.
Kennaraháskóli Íslands, Stakkahlíð, 105
Reykjavík, merkt: Nýsköpunarkeppni grunn-
skólanemenda og Marel hf. 2005.
NKG
Marel hf. styður og styrkir
keppnina næstu þrjú ár.
Kjarna, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ, Sími: 5868180
www.lesblind.com, Tölvuskeyti: lesblind@lesblind.is
Umboðsaðili Davis® kerfisins á Íslandi
Námskeið í
Davis námstækni
Vilt þú sem kennari:
• Ná betur til nemenda þinna
óháð námsstíl þeirra?
• Hafa betri stjórn í skóla-
stofunni?
• Efla almennan námsárangur?
• Fyrirbyggja námsörðugleika,
td. vegna lesblindu?
Fyrir kennara 5-9 ára barna Hvernig Davis-kerfið
virkjar hæfileikana
sem búa að baki
námsörðuleikum
• Lesblinda
• Skrifblinda
• Reikniblinda
• Verkstol
• Ofvirkni (ADHD)
• Athyglisbrestur (ADD)
Skráning á lesblind@lesblind.is eða
síma 586 8180
Námskeiðið fer fram 14.-16. júní í Mosfellsbæ
og kostar kr. 89.000.-
Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda
og Marels hf. 2005