Skólavarðan - 01.10.2007, Qupperneq 4
4
LEIÐARI
SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 7. ÁRG. 2007
Forsíðumynd: Á kjaramálaráðstefnu KÍ 5. október
Auglýsingar: Stella Kristinsdóttir
stella@ki.is / sími 595 1142 eða 867-8959
Prentun: Svansprent
Skólavarðan, s. 595 1118 (Kristín)
Laufásvegi 81, 101 Reykjavík
EFNISYFIRLIT
Ófremdarástand eða nýtt upphaf? 3
Formannspistill eftir Eirík Jónsson.
Málfrelsið og menntunin 4
Leiðari.
Að mæla það ómælanlega 5
Gestaskrif eftir Ríkharð H. Friðriksson.
Kjaramál: Veikindaréttur, hvað svo? 7
Nýjar leiðir í foreldrasamstarfi 8
Vefbækur.is 10
Hátt til lofts og vítt til veggja? Börn og byggingar 10
Misskipting tekna slík að engu tali tekur 11
Kjaramálaráðstefna KÍ á alþjóðadegi kennara 5. október.
Launaþróun kennara í leik-, grunn- og framhaldsskólum 14
Það er fyrir löngu orðið tímabært að tala um kjarna málsins! 16
Athugasemdir Þorsteins Þorsteinssonar við reiknilíkansgrein Aðalsteins
Eiríkssonar.
Aðgangur að evrópsku skólasamstarfi 18
eTwinningáætlun ESB.
Umhyggja á heima í öllum skólum 20
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson hélt fyrirlestur um hlutverk, sjálfsmynd og
viðfangsefni kennara á 21. öld á málþingi KHÍ í október.
Skrifleg lokapróf eru gagnslaus 24
að mati Einars Steingrímssonar prófessors í HR.
Vefkerfið Mentor flutt út til Svíþjóðar og Danmerkur 24
Fedtmule lever endnu (Guffi tórir enn) 26
Sitja bara kennarar á Alþingi? 26
Fyrsta bókin komin út á vegum RannUng 28
og margt fleira spennandi á döfinni hjá Rannsóknarmiðstöð í
menntunarfræðum ungra barna.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar en við eigum enn langt í land 29
segir Kristjana B. Svansdóttir um kennslu barna með ADHD.
Málfrelsið og menntunin
Ritstjóri: Kristín Elfa Guðnadóttir kristin@ki.is
Ábyrgðarmaður: Eiríkur Jónsson eirikur@ki.is
Umsjónarmaður félagatals: Sigríður Sveinsdóttir
sigridur@ki.is / sími 595 1115
Hönnun: Zetor ehf.
Ljósmyndir: Jón Svavarsson, nema annars sé getið
Unga fólkið í Danska þjóðarflokknum, hugarfóstri Piu Kjærsgaard
sem varð að veruleika 1995 þegar hún og fylgismenn hennar
gengu úr Framfaraflokki Mogens Glistrups, heldur úti vefsíðu sem
ber heitið „Meld din lærer“. Það útleggst „Klagaðu kennarann
þinn“ á íslensku.
Nú er það svo að Danski þjóðarflokkurinn, þriðji stærsti flokkur
Danmerkur, er fyrst og fremst þekktur fyrir andúð á innflytjendum.
Að vonum er vefurinn því þéttsetinn af meldingum ungs fólks
um vinstrisinnaða kennara sem reyna að heilaþvo þá. Inni á milli
eru örfáar meldingar í hina áttina, svo sem um kennara sem
styðja Íraksstríðið eða hata múslíma. Loks kvarta nokkrir undan
kennurum vegna almenns virðingarleysis í garð nemenda án þess
að það sé tengt við tilteknar pólitískar skoðanir.
Ég er svo forpokuð sjálf að ég gat varla byrjað að lesa vegna
andúðar á viðhorfunum í Dansk folkepartis ungdom. Sem
kunnugt er nýtur Kjærsgaard og skoðanir hennar í útlendinga-
málum sívaxandi stuðnings í Danmörku. Það eru bara hörðustu
vinstrimenn og flokkar þeirra sem taka ekki undir að einhverju
eða öllu leyti og sjálf segir Pia í aðdraganda kosninga: „Við erum
tilbúin og í mjög góðu skapi.“
En klagaðu-kennarann-vefsíðan kveikir fleiri þanka. Málfrelsi
er svo óendanlega dýrmætt og mörkin milli frelsis eins og ófrelsis
annars svo óendanlega óljós – á stundum. Einmitt þess vegna
er umræða um sjálft málfrelsið nauðsynleg í allri menntun; frá
Kristín Elfa Guðnadóttir
Lj
ó
sm
y
n
d
:
K
ri
st
já
n
V
a
ld
im
a
rs
so
n
leikskóla, þaðan í grunnskóla, svo framhaldsskóla og loks háskóla.
Þetta er umræða sem aldrei er lokið og öllum kennurum á öllum
skólastigum ber siðferðileg skylda til að taka þátt í henni, hvort
sem hún er skilgreind í aðalnámskrá eða ekki.
Málfrelsi og menntun hafa verið samofin frá örófi alda og
innræting (sem dönsku ungliðarnir hafna, að minnsta kosti hjá
öðrum en sjálfum sér) er ekki menntun. Innræting og ritskoðun
eru hinir illu þríburabræður málfrelsisins. Þeir eru ekkert síður
flóknir en það og jafnbrýnt að ræða um þá, enda óhægt að fjalla
af viti um einn bróðurinn án þess að hinir fylgi með.
Allt fólk telur sig „eiga“ þessi þrjú hugtök og veruleikann sem
býr þeim að baki, hvar í flokk sem það skipar sér. Kennarar eru
mannlegir og slá eign sinni á málfrelsið og illu bræðurna tvo
eins og aðrir en þurfa að undirgangast þá miklu ábyrgð að taka
í sífellu þessa ákvörðun: Á ég að halda skoðunum mínum til hlés
eða viðra þær? Þetta er oft vandmeðfarið og sumir myndu líklega
kalla það skerðingu á málfrelsi kennarans.
Höldum áfram að tala um málfrelsi. Umræða er besta vörnin
gegn bæði doða og öfgahyggju.
Kristín Elfa Guðnadóttir