Skólavarðan - 01.10.2007, Page 26
Ástarsambandi Íslendinga
og Dana er engan
veginn lokið og sjást
þess ýmis merki. Fyrir
ellefu árum stofnuðu
menntamálaráðherrar
beggja landa til samstarfs
um sérstakan stuðning við
dönskukennslu á Íslandi. Samningurinn
var staðfestur árið 2000, endurnýjaður
2003 og í apríl á þessu ári undirrituðu
ráðherrar menntamála samning til
næstu fjögurra ára. Undirrituð varð læs
á íslensku og dönsku á sama tíma en
þá voru Andrésblöðin líka á det dejlige
sprog. Nú er öldin önnur og engin danska
í umhverfinu. Hvað er til ráða? Lausnin
er auðvitað að búa til megaflott (dregið
af meget flot) barnaefni sem krakkarnir
ánetjast eins og Feitmúla forðum. Það
er ekki í augsýn og því eru góð tíðindi
að enn skuli menn ekki hafa gefist upp
á að styðja við bakið á dönskunni. Í
samningnum er meðal annars kveðið á
um ráðningu dansks sendikennara við
KHÍ, ráðningu tveggja danskra farkennara
til starfa í grunnskólum landsins, styrki til
námsferða dönskunema á háskólastigi og
verkefni á sviði endurmenntunar kennara,
námsefnisgerðar, rannsókna og þróunar.
Danir leggja fram tvær og hálfa miljón
í þarlendri mynt árlega og við leggjum
fram sex miljón íslenskar krónur á ári
til samstarfsverkefnisins. Þarna er fullt
af styrkmöguleikum fyrir kennara
sem vilja skemmta nemendum og
mennta þá í gegnum þetta vinalega
tungumál. Nánari upplýsingar eru á
vefjum menntamálaráðuneyta Íslands og
Danmerkur: www.menntamalaraduneyti.
is og us.uvm.dk/grundskole/adresser/inter-
nationalt/danskundervisningpaaisland
keg
26
FRÉTTIR OG TILKYNNINGAR
SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 7. ÁRG. 2007
Fedtmule lever endnu
(Guffi tórir enn)
Dönsku hipphoppararnir MC Einar
innleiddu rapp á dönsku í Kaup-
mannahöfn á níunda áratugnum,
en fram að því þótti hallærislegt að
rappa á móðurmálinu. Hljómsveitin
fjallaði meðal annars um Feitmúla í
textum sínum.
3f- Félag um upplýsingatækni og menntun
hefur endurnýjað vef sinn og er slóðin
núna www.3f.is 3f er félag áhugafólks
um upplýsingatækni og menntun og
félagsmenn eru kennarar á öllum skóla-
stigum frá leikskóla til háskóla.
• Samtök náttúru- og útiskóla (SNÚ) voru
stofnuð þann 3. nóvember sl.
• Náttúruskóli Reykjavíkur með ýmis
konar fróðleik um útikennslu og fleira
er með heimasíðuna natturuskoli.is
• Happenin‘ habitats, skemmtilegur
útikennsluvefur, happeninhabitats.
pwnet.org/index.php
• Á rannsóknarmálþingi KHÍ í október
var fjölbreytt og áhugaverð umfjöllun
um náttúruna, umhverfismennt og
útikennslu í málstofum og fyrirlestrum.
Nánar verður sagt frá þessu í næsta tbl.
Skólavörðunnar.
Námskeið fyrir kennara og
annað starfsfólk grunnskóla,
haustönn 2007.
Um er að ræða fimm fyrirlestra sem verða
29. og 30. nóvember 2007. Að nám-
skeiðinu stendur samstarfshópur fulltrúa
frá ADHD samtökunum, Símenntun
Rannsóknir Ráðgjöf KHÍ, Félagi grunn-
skólakennara, SAMFOK, Heimili og skóla,
Skólastjórafélagi Reykjavíkur og Eirð
fræðslu- og ráðgjafarþjónustu.
Skráning fer fram hjá Símenntun Rann-
sóknir Ráðgjöf Kennaraháskóla Íslands,
á srr.khi.is, upplýsingar í síma 563 3980.
Námskeiðið er haldið í Gerðubergi, A
sal á 2. hæð. Boðið verður upp á léttar
veitingar í kaffihléum. Námskeiðsgjald er
kr. 15.000.
Ekki alveg, en rúmur þriðjungur
alþingismanna, eða 38,1%,
hefur stundað kennslu. Þetta
eru 24 alþingismenn. Þá hafa
33,3% alþingismanna setið í
sveitarstjórn eða 21 talsins. Loks
hafa 11 alþingismenn bæði
setið í sveitarstjórn og stundað
kennslu, eða 17,5%.
Flestir leik- og grunnskólar
eru reknir af sveitarfélögunum.
Sem kunnugt er hefur gengið
erfiðlega að manna þessa skóla
enda láglaunavinnustaðir.
Flestir tónlistarskólar eru líka
reknir af sveitarfélögunum en
framhaldsskólar eru hins vegar
flestir ríkisreknir. Þessi uppgötvun,
að jafnmargir alþingismenn
skuli hafa kennt og/eða setið í
sveitarstjórn og raun ber vitni,
er því mikið fagnaðarefni. Ætla
má að kennarar, nemendur og
menntun eigi marga og sterka
talsmenn á þingi sem hljóti
að vinda sér í að bæta stöðu
nemenda og kennara á landsvísu,
styðja við öflugt skólastarf og
hækka laun svo um munar. Þetta er fólk sem veit nákvæmlega hvar skórinn kreppir og
er í aðstöðu til að vinna stórvirki í málaflokknum.
Brettið nú upp ermar, þið alþingismenn sem hafið stundað kennslu og/eða setið í
sveitarstjórn, myndið samhentan flokk á þingi og færið málin til betri vegar!
Upplýsingar eru fengnar úr ferilskrám þingmanna sem birtar eru á althingi.is
Alþingismenn sem sitja/
hafa setið í sveitarstjórn
Alþingismenn sem hafa
stundað kennslu
Arnbjörg Sveinsdóttir Arnbjörg Sveinsdóttir
Ármann Kr. Ólafsson Álfheiður Ingadóttir
Árni Þór Sigurðsson Árni Páll Árnason
Björk Guðjónsdóttir Árni Johnsen
Björn Bjarnason Ásta R. Jóhannesdóttir
Grétar Mar Jónsson Ásta Möller
Guðbjartur Hannesson Einar Már Sigurðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson Guðbjartur Hannesson
Gunnar Svavarsson Guðfinna S. Bjarnadóttir
Helgi Hjörvar Gunnar Svavarsson
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Helgi Hjörvar
Jón Bjarnason Jón Bjarnason
Kristinn H. Gunnarsson Jón Magnússon
Kristján Þór Júlíusson Karl V. Matthíasson
Kristján L. Möller Kristinn H. Gunnarsson
Lúðvík Bergvinsson Kristján Þór Júlíusson
Magnús Stefánsson Kristján L. Möller
Ragnheiður Ríkharðsdóttir Magnús Stefánsson
Sif Friðleifsdóttir Ólöf Nordal
Steinunn Valdís Óskarsdóttir Ragnheiður Ríkharðsdóttir
Sturla Böðvarsson Sturla Böðvarsson
Valgerður Sverrisdóttir
Ögmundur Jónasson
Össur Skarphéðinsson
Sitja bara kennarar á Alþingi?
Skólaganga barna með
athyglisbrest og ofvirkni
Punktar um útikennslu
og náttúruskóla
Nýr vefur 3f