Skólavarðan - 01.12.2008, Blaðsíða 28
28
NÁMSGöGN, LESENdAbRéF
SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 8. ÁRG. 2008
Á ráðstefnunni Að marka spor þann 1. des-
ember sl. tilkynnti formaður Rannsóknar-
sjóðs leikskóla, Ólöf Helga Pálmadóttir, að
ákveðið hefði verið að leggja sjóðinn niður og
færa RannUng andvirði hans, fjórar milljónir
króna. Jóhanna Einarsdóttir prófessor tók
við sjóðnum fyrir hönd RannUng og þakkaði
það traust sem rannsóknarstofunni væri
sýnt. Jóhanna sagði þetta mikla hvatningu
fyrir rannsóknir í leikskólum landsins.
Á mínum vinnustað berst kassinn með
Skólavörðunni, trúnaðarmaður ýmist opnar
hann og biður fólk að taka sér blað eða tekur
blöðin og setur á borð á kennarastofunni.
Fólk gluggar í blöðin í vinnunni ef það hefur
tíma sem eru örfáir og eftir einhverja daga
fer blaðabunkinn í endurvinnsluna þannig
að mér finnst afar illa farið með peningana
okkar. Það er því spurning um að senda út
könnun hvort fólk vill fá blaðið sent heim,
lesa það á netinu eða fá um fimm stk. til að
lesa á kennarastofunni.
Bestu kveðjur að norðan!
Unnur Valgeirsdóttir kennari við Giljaskóla.
Nú er Bína búin að læra mikið af
skemmtilegum hlutum og veit að mamma
kemur alltaf aftur að sækja hana í
leikskólann. Bína er þess vegna brosandi
og glöð. Hún hefur líka eignast góðan vin
sem heitir Torfi. Kennarinn hennar Bínu
ákveður að hún sé búin að læra nógu mikið
til að geta byrjað í skólahópi. Bína verður
óörugg. Hún hræðist nýja hluti og er ekki
alveg viss um hvað er ætlast til af henni.
Torfi hjálpar henni og kennarinn útskýrir
hvað hún á að gera. Bína verður glöð og
örugg, hún upplifir gleðina sem fylgir því
að skilja og læra nýja hluti.
Í skólahópnum lærir Bína að undirbúa sig fyrir
lestur, þ.e.a.s að styrkja hljóðkerfisvitund.
Með hljóðkerfisvitund er átt við þann
hæfileika að geta hugsað og talað um
hljóðkerfi málsins. Bína og hin börnin í
skólahópnum þurfa að læra að málið hefur
form sem kallast setningar og orð. Hljóðin
eiga sér síðan fyrirmynd sem heita stafir.
Hún lærir að ríma, hlusta á hljóð, flokka
hljóð, setja saman orð og þekkja bókstafi.
Bína lærir mest í gegnum leik. Hún leikur
sér í snjónum með hinum börnum og finnur
fullt af orðum sem tengjast snjó og byrja á
S. Öllum börnum finnst gaman að leika og
læra.
Bína lærir líka að það eru ekki allir eins.
Sumir eiga erfitt með að hlusta á kennarann,
sitja kyrr og einbeita sér. Bína og hin börnin
í skólahópnum læra hvað það er að einbeita
sér. Mörg börn haga sér illa vegna þess
að þau skilja ekki hvað er sagt og eiga í
erfiðleikum með að tjá sig. Þau þurfa aðstoð
til þess að geta hlustað og einbeitt sér. Það
er mikilvægt að börn viti nákvæmlega hvað
er ætlast til af þeim. Einnig þarf að mæta
börnum út frá persónulegum þörfum þeirra.
Það er mjög misjafnt hvað börn eru komin
langt í að undirbúa sig fyrir listina að læra
að lesa. Það skiptir þess vegna miklu máli
að undirstöðuþættir fyrir lestur séu í lagi
áður en hefðbundið lestrarnám hefst.
Það er líka mikilvægt að börn læri að
biðja um hjálp og hvernig þau eiga að eignast
vini. Bína er búin að læra þessi grunnatriði
í boðskiptum. Hún veit að hún þarf ekki að
gráta, lemja eða kasta sér í gófið til þess að
fá athygli. Hún kann að biðja um hjálp og
er þess vegna t.d. búin að læra að klæða
sig sjálf. Hún er líka örugg þó að mamma sé
stundum sein að sækja hana. Bína er alveg
róleg. Hún veit að mamma hefur mikið að
gera, en hún kemur samt alltaf að sækja
hana. Það skiptir miklu máli fyrir öll börn að
upplifa öryggi og velllíðan í leikskólanum.
Það er grundvöllur fyrir því að þau nái að
tileinka sér þá mikilvægu kennslu sem fer
fram.
Rannsóknir um allan heim sýna að það
eru bein tengsl á milli hljóðkerfisvitundar
og lestrar. Einnig hefur verið sýnt fram á
að hægt er að styrkjar hljóðkerfisvitund
og hafa þannig áhrif á lestrarfærni. Góð
hljóðkerfisvitund er undirstöðuþáttur til
þess að geta tileinkað sér lestur.
Þessi bók er tilvalin til þess að nota heima
og í markvissri málörvun í leikskóla. Í bókinni
koma fram skemmtilegar hugmyndir um
hvernig hægt er að vinna með undirstöðuþætti
fyrir lestur. Hún er tilvalin fyrir börn sem eru
byrjuð í skólahóp í leikskólanum og einnig
er hún skemmtileg fyrir börn sem eru
byrjuð að sýna bókstöfunum áhuga. Bókin
hentar einnig eldri börnum sem eiga erfitt
með að tileinka sér lestur vegna erfiðleika
í hljóðkerfisvitund. Bjarni þór Bjarnason
myndlistamaður myndskreytti bókina.
Honum tekst vel að gera myndirnar í bókinni
lifandi og skemmtilegar. Bókin er gefin út af
bókaforlaginu Sölku.
Ásthildur Bj. Snorradóttir, talmeinafræðingur
Börn og tónlist - nýr vefur fyrir kennara!
Tillaga frá lesanda:
Ný bók um Bínu: Bína lærir orð, hljóð og stafi
HÖFUNDUR KYNNIR:
Ásthildur Bj. Snorradóttir
Í sambandi við þróunarverkefnið Breitt og fjölbreytt tónlistarstarf í leikskóla stofnaði
Birte Harksen kennari vefinn Börn og tónlist, bornogtonlist.net, sem er hugmyndabanki
um tónlistarstarf á leikskólastigi, en einnig vettvangur til gagnkvæmra samskipta fyrir
áhugafólk hvaðanæva að á landinu.
Ólöf Helga afhendir Jóhönnu sjóðinn.
Rannsóknarsjóður leikskóla lagður niður