Skólavarðan - 15.01.2001, Side 3
4
Þegar Þyrnirós vaknaði af værum blundi kættust vinir og vandamenn enda
lítt skemmtilegt að þurfa að sofa í heila öld, jafnvel þótt það sé hennar hágöfgi til
samlætis.
Teikn eru á lofti um að ráðamenn séu einnig að vakna af löngum svefni, svefni
vitundarleysis um íslenskt skólalíf og ágæti menntunar. Og það er vel ef rétt reynist.
Hins vegar getur tekið tímann sinn fyrir svefnpurkurnar að ná utan um allar
breytingarnar sem áttu sér stað á meðan þær sváfu. Og á meðan purkurnar læra upp
á nýtt stendur samfélagið heldur ekki í stað. Þess vegna væri ráð fyrir ráðamennina
að taka í útrétta hönd kennara og nýta sér hvað þeir eru ávallt reiðubúnir til að
hjálpa á alla lund, eins og skátarnir. Það stendur nefnilega ekki á kennurum að gefa
upplýsingar um íslenskt skólastarf. Þeir eru á sínum stað, inni í skólunum, og ef for-
maður og varaformaður Félags grunnskólakennara geta sótt heim flesta grunnskóla
landsins á einu ári þá hljóta til dæmis menntamálaráðherra, fjármálaráðherra og for-
sætisráðherra lýðveldisins, ásamt með hinum ýmsu stjórum bæja og borgar að geta
gert slíkt hið sama og bætt tónlistar- og framhaldsskólum við, á svo sem eins og
einu kjörtímabili eða svo.
Íslenskt samfélag stendur á þröskuldi umskipta sem munu hafa áhrif á allt líf í
landinu og skólalíf (og ráðherralíf) þar með talið. Það er tilfærslan frá einsleitu sam-
félagi yfir í margleitt. Í þessu blaði er fjallað um fjölmenningarlega kennslu með
fyrri grein af tveim, sú seinni birtist í næsta tölublaði. Ísland hefur allar forsendur til
að forðast þá pytti sem mörg önnur lönd hafa fallið í varðandi samskipti nýbúa og
þeirra sem fyrir eru og skólinn er sá vettvangur sem vænlegastur er í þessu skyni.
Sú nýbreytni er tekin upp frá og með þessu tölublaði að ýmsum greinum er fylgt
eftir með ítarefni í vefriti blaðsins sem vistað er á heimasíðu Kennarasambands Ís-
lands. Þetta á við um veigamiklar greinar sem ekki er unnt að fjalla jafnítarlega um í
Skólavörðunni og málefnið gefur tilefni til. Ítarefni getur verið krækjur eða lengri
grein/greinar. Það er von okkar sem stöndum að Skólavörðunni og heimasíðunni að
þessi nýjung mælist vel fyrir og fólk nýti sér hana í miklum mæli.
Kristín Elfa Guðnadóttir
Kynning á ritstjórn
Ritstjórnina skipa fulltrúar aðildarfélaga KÍ auk forstöðumanns útgáfu- og kynning-
arsviðs KÍ, ritstjóra Skólavörðunnar og formanns KÍ. Félagsmenn eru hvattir til að
hafa samband við fulltrúa síns félags og/eða ritstjóra með ábendingar varðandi efni.
Ritstjórnina skipa:
Auður Árný Stefánsdóttir, fulltrúi Skólastjórafélagsins,
audur@ismennt.is
Ása H. Ragnarsdóttir, fulltrúi Félags grunnskólakennara,
asaragn@ismennt.is og asaragn@isl.is
Eiríkur Jónsson, formaður KÍ,
eirikur@ki.is
Helgi E. Helgason, forstöðumaður útgáfu- og upplýsingasviðs,
helgi@ki.is
Kristín Elfa Guðnadóttir, ritstjóri,
kristin@ki.is
Kristín Stefánsdóttir, fulltrúi Félags tónlistarskólakennara,
kristin-stef@simnet.is
Magnús Ingvason, fulltrúi Félags stjórnenda í framhaldsskólum,
min@fb.is og min@li.is
Sigurrós Erlingsdóttir, fulltrúi Félags framhaldsskólakennara,
sigurrose@msund.is
Leiðar i
Og þá varð kátt í höllinni
Efni
Greinar
„Þetta var alls ekki auðveldasta leiðin” 6
Viðtal við Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur um
aðdraganda kjarasamnings grunnskólans,
kynningu, umræðu og atkvæðagreiðslu.
Skóli í samfélagi fjölmenningar 10
Fyrri grein af tveim um fjölmenningarlega
kennslu. Guðrún Pétursdóttir og Ingibjörg
Hafstað skrifa.
Kennarar! Heyra nemendur til ykkar? 12
Valdís Jónsdóttir talmeinafræðingur kynnir
merkar niðurstöður rannsóknar á notkun
hljóðkerfis í kennslu.
Gullið tækifæri til aukins sveiganleika 14
Fjölbrautaskólinn við Ármúla tekur einn skóla
þátt í átaksverkefni um sveigjanleika á
vinnustöðum.
Kveður við annan tón 16
Þrír tónlistarskólar, þrenns konar tónlistarstarf.
Allir verða að standa við sitt 18
Kjarasamningur framhaldsskólans er rétt að
komast til framkvæmda og námstefna samn-
ingsaðila fyrir skólameistara og trúnaðarmenn
nýafstaðin.
Hugleiðingar í hálfleik 22
Sigrún Grendal fer yfir stöðuna í samninga-
málum tónlistarskólans.
Fastir liðir
Formannspistill 3
Að þessu sinni skrifar Elna Katrín Jónsdóttir.
Umræðan 5
Tveir skólastjórar grunnskólans fjalla um skóla
morgundagsins.
Gestaskrif 9
Gunnar Hersveinn blaðamaður og heimspek-
ingur er gestur okkar í þetta skipti.
Fréttir og smáefni 9
Sagt frá vettvangsnámi framhaldsskólakennara
vegna almennrar námsbrautar.
Skóladagar 25
Ný myndasaga Skólavörðunnar.
Kaup og kjör 25, 26
Hannes Þorsteinsson skrifar um
grunnskólann (25) og Helgi E. Helgason um
framhaldsskólann (26).
Námsgögn 26
Skólalíf í landinu 27
Smáauglýsingar og tilkynningar 28
Smiðshöggið 30
Haukur Már Haraldsson rekur smiðshöggið
með persónulegu uppgjöri við verkfallið.
Ritstjóri: Kristín Elfa Guðnadóttir
Ábyrgðarmaður: Helgi E. Helgason
Ritstjórn: Auður Árný Stefánsdóttir, Ása H. Ragnarsdóttir,
Eiríkur Jónsson, Helgi E. Helgason, Kristín Elfa Guðnadóttir,
Kristín Stefánsdóttir, Magnús Ingvason, Sigurrós Erlingsdóttir
Hönnun: Penta ehf.
Ljósmyndun: Jón Svavarsson
Teikningar: Ingi
Auglýsingar: Ritstjórn
Prentun: Prentsmiðjan Grafík ehf. Frá vinstri: Magnús, Helgi. Eiríkur, Kristín Elfa, Ása, Sigurrós, Kristín. Auður var fjarverandi.