Skólavarðan - 15.01.2001, Blaðsíða 21
Kaup og k jör
25
Þegar þetta er skrifað
er kynningu og atkvæða-
greiðslu um nýjan kjara-
samning FG lokið en nið-
urstaða liggur ekki enn
fyrir. Á kynningarfundum
sem undirritaður hefur
haldið hafa umræður snú-
ist mikið um hvað eigi að
ráða launum kennara en ekki síður hvort
skólastjórar eigi að ákvarða laun að ein-
hverju marki.
Hvað varðar fyrra atriðið er bæði rætt
um þreparöðun og launaflokkaröðun.
Röðun í þrep
Samkvæmt kerfinu, sem hefur gilt í
fimmtán ár, hefur að mestu verið gengið út
frá því að meta prófaldur kennara til röðun-
ar í þrep þótt einnig hafi verið nokkur
tenging bæði við lífaldur og starfsaldur.
Fram til 1986 var miðað við starfsaldur ein-
göngu en þá prófaldur tekinn upp líka og
má segja að með tengingu við hann hafi
verið stigið fyrsta skrefið í átt til lífaldurs-
röðunar. Ein meginástæða þess að nú var
tekið upp lífaldursviðmið eingöngu er að
mikil einföldun verður á launaafgreiðslum
þar sem ekki þarf lengur að athuga
próf-, starfs- og lífaldur starfsmanna
til að raða þeim í þrep.
Röðun í launaflokka
Röðun kennara í launaflokka hefur und-
anfarin fimmtán ár nær eingöngu verið
tengd námsstigum en var þar áður bæði
tengd kennsluferli og námi. Þátttaka kenn-
ara í stjórnun skóla hefur verið metin sem
einn launaflokkur hjá staðgenglum í litlum
skólum og einnig sem einn launaflokkur
hjá þeim kennurum sem hafa haft fimm
tíma á viku í árganga- og fagstjórn.
Helstu ástæður þess að ákveðið var að
taka upp lífaldursviðmið í endurmenntun-
arflokkum var að það einfaldar launaaf-
greiðslu og losar einnig endurmenntun
kennara undan kvöðinni um 20 kennslu-
stunda lágmark sem stýrt hefur allri skipu-
lagningu á símenntun þeirra. Í framhaldinu
má því búast við fjölbreyttari endurmennt-
un og að meira verði um styttri námskeið
sem auðveldara verður að koma fyrir á
starfstíma skóla.
Breytingar í samningnum
Í nýgerðum kjarasamningi lagði LN
mikla áherslu á að skólastjórar fengju aukið
svigrúm til að launa kennurum vegna mis-
munandi ábyrgðar og álags í starfi. Þetta at-
riði hefur verið mjög umdeilt í umræðunni
og fram hafa komið miklar efasemdir um að
skólastjórar ráði við þetta vald, þ.e. að þeir
geti dreift þessum flokkum þannig að sátt
ríki innan skólanna.
Í samningnum var einnig kveðið á um
aukna verkstjórn skólastjóra. Tímar, sem
áður voru til faglegra starfa í skólum en töld-
ust óbundin viðvera, eru nú undir verkstjórn
skólastjóra og er ætlast til að hann og kennari
komi sér saman um hvar, hvernig og hvenær
vinnan er unnin. Þetta aukna verkstjórnar-
vald skólastjóra hefur einnig verið umdeilt og
hafa kennarar m.a. talið að skólastjórar muni
töflusetja alla tíma án tillits til hvort þörf sé á
því og koma með þeim hætti í veg fyrir að
kennarar geti unnið yfirvinnu sem sumum
reynist nauðsynleg.
Breytingar í framtíðinni
Þessi umræða um hvort skólastjórar séu
færir um að stjórna vinnutíma í meira mæli
og hvort hægt sé að fela þeim meira vald til
að ákveða launaflokkaröðun kennara hefur
einnig vakið upp spurningar um hvort þeir
eigi samleið með kennurum í stéttarfélagi,
hvort eðlilegra sé að þeir komi fram sem
hluti af viðræðunefnd viðsemjenda og
standi þá utan stéttarfélagsins eins og skóla-
meistarar framhaldsskóla. Þessi umræða nú
eftir kjarasamningana sýnir einnig þörfina á
hreinskilinni umræðu innan kennarahóps-
ins um það hvað þeir vilja leggja til grund-
vallar þegar ákveðið er hvernig heildar
launapottinum er skipt.
Hannes Þorsteinsson
launafulltrúi FG
Að lokinni atkvæðagreiðslu
Sækja þarf sérstaklega um úthlutun á orlofshúsnæði í Ásabyggð við Flúðir, Kjarna-
skógi við Akureyri og Sóleyjargötu 33 í Reykjavík um páskana. Eins og áður er páska-
tímabilinu skipt í tvennt. Fyrra leigutímabilið er frá 6. apríl 11. apríl og það seinna frá
11. apríl 17. apríl.
Umsóknir þurfa að berast skrifstofu
Kennarasambandsins fyrir 9. mars nk.
Netfang orlof@ki.is
Stjórn orlofssjóðs
Frá orlofssjóði Kennarasambands Íslands
Páskaleiga á orlofshúsnæði