Skólavarðan - 01.08.2003, Page 11
NÁMSEFNI
Benjamín Dúfa - í kennslu á miðstigi grunnskóla
Bókin um Benjamín dúfu og samnefnd
kvikmynd hafa notið mikilla
vinsælda hjá ungum sem öldnum
og árið 1995 var ritgerðin Benjamín
dúfa – í kennslu á miðstigi tilnefnd
sem besta lokaverkefni nemenda til
B.Ed. prófs í Kennaraháskóla Íslands.
Höfundar eru Vala Bragadóttir og
Sólrún L. Pálsdóttir og þær létu ekki
staðar numið heldur hófust handa
við að hanna kennsludisk út frá efni
ritgerðarinnar.
Samnefndur diskur inniheldur
ritgerðina í einstökum köflum og í
heild sinni og kennarahandbók, ásamt
með fræðilegum rökum fyrir því að
skáldsögur séu kenndar á miðstigi
ásamt ýmsum upplýsingum um
Benjamín dúfu og efni hennar. Einnig
fylgja á disknum verkefnablöð fyrir
nemendur auk nokkurra fylgiskjala
með myndum sem eiga við hugmyndir
að umræðuefnum.
Kennsludisknum „Benjamín dúfa – í
kennslu á miðstigi“ hefur verið mjög vel
tekið af kennurum og við höfum haft
spurnir af því að höfundur bókarinnar,
Friðrik Erlingsson, hafi heimsótt skóla
í kjölfar kennslunnar og spjallað við
nemendur.
Verkefnin eru af ýmsum toga
og tengjast til dæmis bókmennta-
greiningu, málfræðivinnu, leikrænni
tjáningu og umræðu um og úrvinnslu
á hugmyndum á borð við sorg og
vináttu. Í kennarahandbókinni er
auk þess að finna mikinn efnivið í
fleiri verkefni í ítarlegri greiningu á
sögunni og persónusköpun hennar,
byggingu og sjónarhorni, máli og stíl,
umhverfi og tíma, vísunum, táknum og
persónulýsingum. Einnig er að finna í
kennarahandbókinni útdrætti úr öllum
köflum bókarinnar og íhugunarefni
fyrir nemendur að loknum hverjum
útdrætti.
Benjamín dúfa – í kennslu á miðstigi
er safaríkt námsefni sem hægt er að
gera sér mikinn mat úr. Diskurinn er á
pdf formi og krefst þess að viðtakandi
sé með Acrobat reader í tölvunni sem
flestir eru með núorðið, en ef ekki,
er hægt að sækja ókeypis eintak af
forritinu beint af forsíðu disksins. Þetta
námsefni er ekki gagnvirkt en auðvelt
er að prenta út verkefnablöð og annað
efni og skjölin eru ekki þung.
Sýnishorn af disknum – hluti
umfjöllunar um vísanir
„Benjamín dúfa hefur að geyma
ýmsar vísanir í bókmenntir. Ekki er
víst að nemendur átti sig á þessu og
er í höndum hvers kennara hvernig og
hvort hann vinnur eitthvað með vísanir
með nemendum sínum.
Þegar litið er á söguna í heild ber hún
mörg einkenni hetju- og riddarasagna.
Þetta kemur í ljós strax í upphafi
þegar Róland er kynntur til sögunnar.
Forfeður hans voru riddarar og hetjur
sem björguðu prinsessum, háðu einvígi
og unnu mikla sigra. Sjálfur flytur
Róland í hús sem líkist kastala. Meira að
segja húsgögnin eru í kastalastíl.
Strákarnir stofna reglu Rauða drekans
sem er riddarafélag. Margt af því sem
þessir ungu riddarar taka sér fyrir
hendur svo og örlög þeirra eru vísanir
í riddara- og hetjusögur. Riddararnir
eignast glæsileg vopn, fá viðurvefni og
tákn sem einkenna þá, æfa skylmingar
og glíma við ýmis konar þrautir eins og
hetjur til forna. Þeira hefna fyrir dauða
kattarins þar sem hið illa, Helgi svarti,
hlýtur makleg málagjöld, og verða
meiri hetjur fyrir vikið…
keg
11