Skólavarðan - 01.12.2011, Síða 4
4
Skólavarðan 3.tbl. 2011viðtalið
Hér á ég fjölskyldu, hús, líf og starf
Þau Barbara og Örvar eiga nú þrjú börn. „Hérna er ég núna
með fjölskyldu, hús, líf og starf. Þetta er því ekki lengur
spurning um hvað ég vil og hvort ég vil flytja til baka eða ekki.
Við erum fimm manna fjölskylda og fjögur úr fjölskyldunni
eiga sínar rætur hérna, á móti mér einni, sem á mjög sterkar
rætur í Suður-Týrol, sem er norðarlega á Ítalíu. Þaðan er ég
og þar talar fólk ekki bara ítölsku heldur líka þýsku. Þýskan
er móðurmál mitt og ég tala hana daglega hér á Íslandi við
börnin mín. Mér finnst ég halda tengslum við heimalandið með
þessum hætti og passa þess vegna upp á að tala móðurmálið.
Þetta gerist líka þegar ég les bækur á þýsku, þá finnst mér ég
skreppa aðeins heim.“
Barbara er frá litlu þorpi stutt frá Sterzing í Ölpunum. Hún
segir mikla fegurð þar og æskuslóðirnar eru umvafðar fjöllum,
trjám og blómum. Þarna er mikill snjór á vetrum enda flott
skíðasvæði. Áður en Barbara flutti til Íslands kenndi hún
ensku á námskeiðum heima hjá sér á Ítalíu, einnig hafði hún
kennt í Bretlandi og loks spænsku í Innsbruck í Austurríki.
Tungumálin vefjast svo sannarlega ekki fyrir henni og núorðið
talar hún líka góða íslensku.
Texti og mynd: hb
Barbara Fleckinger er ítölsk og býr í Ólafsvík.
Hún hefur starfað við kennslu á Snæfellsnesi
síðustu árin. Barbara kom fyrst til Íslands árið
1998 sem skiptikennari. Hún bjó þá í Reykjavík
en kenndi í sex mánuði við Fjölbrautaskólann í
Garðabæ. Á þessum tíma kynntist hún núverandi
manni sínum, Örvari Má Marteinssyni, og það
var ástin sem laðaði hana til landsins á nýjan leik.
„Ég kom til Íslands aftur árið 2000 til að stoppa
smávegis og vera hjá honum. Þetta „smávegis“
er nú orðið nokkuð langt,“ segir Barbara.
Something old, something new,
something for fun and something to do
Barbara Fleckinger hefur
ákveðið þema í kennslunni: