Skólavarðan - 01.12.2011, Blaðsíða 26
26
Skólavarðan 3.tbl. 2011ÞunglYnDi
„Ég hef skrifað tíu bækur alls, bæði fyrir fullorðna og ungt fólk, en
ekkert sem ég hef sent frá mér stendur hjarta mínu eins nærri og Upp
á líf og dauða,” segir Jónína aðspurð um nýju bókina. „Það eru um tíu
ár síðan ég ákvað að skrifa um þunglyndi fyrir krakka í efstu bekkjum
grunnskóla. Mér fannst einfaldlega nauðsyn að til væri bók um þetta
efni fyrir þennan aldurshóp. Unglingsárin eru svo tilfinningaþrungið og
sveiflukennt aldursskeið, hamingjutopparnir iðulega svimandi háir og
öldudalirnir hræðilega djúpir og dimmir. Allt er í efsta stigi. Oft virka
vandamálin því óyfirstíganleg og erfitt getur verið að trúa því þegar
fullorðna fólkið fullvissar mann um að erfiðleikarnir taki enda.“
Þunglyndi á léttum nótum?
„Það reyndist heilmikill vandi að finna þessu viðkvæma
umfjöllunarefni réttan farveg,“ viðurkennir Jónína. „Þetta er línudans
og auðvelt að misstíga sig. Þess vegna gaf ég mér góðan tíma og
prófaði ýmsar leiðir. Í fyrravetur datt mér svo í hug að hafa þetta
spennubók í léttum dúr og þar með gekk dæmið upp. Ég veit að
það hljómar kannski mótsagnakennt að skáldsaga um þunglyndi og
sjálfsvígshættu geti verið á léttum nótum. Ef marka má þær viðtökur
sem bókin hefur fengið og þá meðal annars ritdóma í blöðum hefur
þetta þó lukkast ágætlega og það gleður mig óumræðilega. Það er
jú til lítils að skrifa unglingabók sem krakkar vilja ekki lesa og ég
held að spennan og húmorinn séu lykilatriði í því sambandi. En inn
í textann flétta ég svo fróðleik sem ég vona að sitji eftir að lestri
loknum. Til þess var leikurinn einmitt gerður, að opna augu ungs
fólks fyrir einkennum þunglyndis og vonandi kveikja umræður í
skólum og vinahópum. Kannski væri t.d. hægt að nota bókina sem
umræðugrundvöll í lífsleikni.“
Hver samdi ljóðið?
Geturðu lýst söguþræðinum í stuttu máli. „Já, aðalpersónur sögunnar
eru þrjár – tvíburarnir Hrönn og Hákon og Líney, vinkona þeirra,“
segir Jónína. „Þau eru öll að hefja nám í framhaldsskóla og eftir að
fimm bekkjarfélagar Hrannar vinna verkefni heima hjá henni finnur
hún blað með dapurlegu ljóði sem einhver krakkanna hefur skilið
eftir, annaðhvort vísvitandi eða óvart. Og hún telur augljóst að sá sem
skrifaði ljóðið eigi mjög erfitt og langi jafnvel ekki til að lifa lengur.
Hrönn ákveður að leita uppi höfund ljóðsins, með aðstoð bróður síns
og vinkonu, og koma honum til hjálpar. Þetta er hins vegar hægara
sagt en gert þar sem þau eru nýbyrjuð í skólanum og þekkja krakkana
fimm aðeins lauslega. Þremenningarnir grípa því til þess ráðs að kynna
sér einkenni þunglyndis á netinu. Síðan ganga þau skipulega til verks
við að kynnast krökkunum betur, þ.e. taka einn krakka fyrir á hverjum
degi. Þannig vonast þau til að fá á hreint hvaða bekkjarfélaga líður
svona óskaplega illa. En allt verður þetta að ganga hratt fyrir sig því ef
marka má tóninn í ljóðinu gæti verið skammur tími til stefnu.“
Unglingabók um viðkvæmt efni
Texti: keg
Mynd: Úr safni viðmælanda
Unglingsárin eru svo tilfi nningaþrungið
og sveifl ukennt aldursskeið, hamingju-
topparnir iðulega svimandi háir og
öldudalirnir hræðilega djúpir og dimmir.
Nýverið kom út skáldsaga fyrir unglinga sem fjallar um
þunglyndi og sjálfsvígshættu. Bókin nefnist Upp á líf
og dauða og er eftir Jónínu Leósdóttur. Þetta er fimmta
unglingabók Jónínu en hún segir nýju söguna hafa verið
lengi í vinnslu, enda efnið afar viðkvæmt og vandmeðfarið.
Jónína Leósdóttir