Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Síða 4
Jólagetraun tmm
Jólagetraun tmm er í þetta sinn helguð einum þekktasta rithöfundi Íslendinga, Snorra Sturlusyni. Spurt er
um ýmislegt sem tengist Snorra, samtíma hans og verkum, bæði á miðöldum og í nútímanum. Svör við sum-
um þessara spurninga er að finna í verkum Snorra en annarra þarf að leita í síðari tíma heimildum. Ný og
glæsileg útgáfa ritsafns Snorra er í verðlaun en það inniheldur Heimskringlu, Snorra-Eddu og Egils sögu
Skallagrímssonar.
Sendið svör með tölvupósti á netfangið tmm@edda.is eða í umslagi merktu „tmm – getraun“, Edda – útgáfa,
Suðurlandsbraut 12, 108 Reykjavík. Svör þurfa að berast fyrir 15. janúar. Dregið verður úr réttum lausnum.
1. „Almáttugur guð skapaði í upphafi himin og
jörð og alla þá hluti er þeim fylgja og síðast
menn tvo er ættir eru frá komnar, Adam og
Evu, og fjölgaðist þeirra kynslóð og dreifðist
um heim allan.“ Með þessum orðum hefur
Snorri Sturluson formála sinn að Snorra-Eddu.
Þar dregur hann upp mynd af heiminum, sköp-
un hans og þróun og segir jafnt frá söguhetjum
Biblíunnar sem merkilegum fornkonungum.
1.A. Í hversu margar „hálfur“
skiptist veröldin samkvæmt
formála Snorra og hvað
kölluðust þær?
Uppruna Óðins rekur Snorri til konungsætta í
Tróju eða Tyrklandi. Þaðan heldur Óðinn til
landvinninga í norðri: „Óðinn hafði spádóm og
svo kona hans og af þeim vísindum fann hann
það að nafn hans mundi uppi vera haft í norð-
urhálfu heims og tignað umfram alla konunga.
Fyrir þá sök fýstist hann að byrja ferð sína af
Tyrklandi og hafði með sér mikinn fjölda liðs,
unga menn og gamla, karla og konur, og höfðu
með sér marga gersamlega hluti.“
Óðinn kemur fyrst til Saxlands og setur þar til
landgæslu þrjá syni sína. Af þeim eru Völsung-
ar komnir, að sögn Snorra. Þaðan heldur Óðinn
til Norðurlanda.
1.B. Snorri segir að Óðinn hafi
sett syni sína til landa í Noregi og
Danmörku og að frá þeim séu
norsku og dönsku konungsættirn-
ar komnar. Hverjir voru þessir
synir Óðins?
1.C. Sjálfur á Óðinn að hafa feng-
ið völd í Svíþjóð. Sonur hans tók
hins vegar við að honum látnum
og frá syninum er komin merk
konungsætt sem Snorri fjallar
einnig um í Heimskringlu. Hver er
þessi ættfaðir sænsku konung-
anna og hvað kallast ættin?
2. Í Skáldskaparmálum Snorra-Eddu fer maður
nokkur í Ásgarð og aflar sér mikils fróðleiks um
æsina. „Hann gerði ferð sína til Ásgarðs, en er
æsir vissu ferð hans var honum fagnað vel og
þó margir hlutir með sjónhverfingum. . . .
[Gestinum] þótti göfuglegt þar um að sjást.
Veggþili öll voru þar tjölduð með fögrum skjöld-
um. Þar var og áfenginn mjöður og mjög drukk-
ið. Næsti maður [gestinum] sat [sögumaður],
og áttust þeir við drykkju og orðaskipti. Sagði
[sögumaður] [gestinum] frá mörgum tíðindum
þeim er æsir höfðu átt.
2.A. Hvað heitir þessi maður og
hver er sessunautur hans sem
segir frá?
Gesturinn spyr margs og vill meðal annars
fræðast um kenningar. „Hvernig skal kenna
____?“ spyr hann og nefnir einn ásanna. Svar-
ið sem hann fær er svohljóðandi: „Svo að kalla
hann son Sifjar, stjúp Þórs, öndurás, bogaás,
veiðiás, skjaldarás.“
2.B. Hver er þessi ás sem
gesturinn spurði um?
3. Í Egils sögu er þessi vísa:
Erumka leitt,
þótt ljótr of sé,
hjálma klett
Af hilmi þiggja.
Hvar er sá er gat
af göfuglyndum
æðri gjöf
allvalds syni?
3.A. Hvar er komið sögu þegar
Egill kveður þessa vísu og í hvaða
borg er hann staddur?
3.B. Hver er konungurinn sem
hann yrkir til og hver er faðir kon-
ungsins, allvaldurinn?
Skömmu eftir að vísan er kveðin skilja leiðir
þeirra Egils og Arinbjarnar hersis. Að skilnaði
gefa þeir hvor öðrum dýrmætar gjafir. Egill gaf
Arinbirni „. . . gullhringa þá tvo er Aðalsteinn
konungur gaf honum og stóð mörk hvor . . .“
3.C. Hvað gaf Arinbjörn Agli að
skilnaði?
4. Á síðasta ári sendi Einar Kárason frá sér
skáldsöguna Óvinafögnuð sem hann byggir á
ævi frænda Snorra Sturlusonar. Einar leggur
þessum frænda orð í munn og hefur sögu hans
á þessum orðum: „Ég hef kannski ekki ráð á
því að fárast yfir ólifnaði, drykkjuskap og slags-
málum, en ég var samt búinn að fá nóg af því
öllu í Niðarósi, því pestarbæli.“
4.A Hvað heitir söguhetja Einars
Kárasonar fullu nafni og hvernig
var hún skyld Snorra Sturlusyni?
Gagnrýnandi Morgunblaðsins, Ingi Bogi Boga-
son, minntist meðal annars á sköpun aðalper-
sónunnar og helsta óvinar hennar í dómi um
bókina: „Persónulýsingar eru mæta vel unnar.
[Frændi Snorra] og [óvinurinn] stíga hér sterkir
fram. Sá fyrri ábyrgðarlaus, óhræddur, óút-
reiknanlegur, ekki vígamaður að upplagi en
nógu frændrækinn til að gera það sem hann tel-
ur réttast að gera. Sá seinni er gjörhugull, var
um sig, tekur ekki meiri áhættu en nauðsyn
krefur. Yfirbugaður í lokin gengur hann í klaust-
ur.“ (Mbl. 28. nóv. 2001)
4.B. Hver er þessi helsti óvinur
söguhetjunnar (fullt nafn) og hver
er hápunktur átaka þeirra?
Vegleg verðlaun í boði:
Ný útgáfa af ritsafni
Snorra Sturlusonar!
04 Jólagetraun Snorri Sturl 5.12.2002 16:49 Page 4