Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Side 6

Tímarit Máls og menningar - 05.12.2002, Side 6
Þegar jólasveinninn var handtekinn Brynhildur Björnsdóttir þýddi José Eduardo Agalusa Pascoal gamli hafði sítt hvítt skegg, mjög hvítt og það lufsaðist niður bringuna á honum. Það hafði ekkert með tísku að gera; honum var bara alveg sama; vanhirt skeggið var tákn um eymd hans og volæði. En það var skegginu að þakka að hann fékk vinnu. Skegginu og því að hann var albínói – með eðluljósa húð og lítil bleik augu sem alltaf voru hulin bak við dökk sólgler- augu. Hann hafði gefið upp alla von um að fá nokkurntíma aðra vinnu. Hann var viss um að hann myndi bráðum deyja úti á götu, úr sorg frekar en hungri því hann fékk jú súpu hjá Generálnum á kvöldin og fann oft brauðskorpur í ruslafötunum. Hann svaf undir billjardborðinu á kránni á nóttunni, með teppi ofan á sér, sem Generállinn hafði lánað honum. Hann dreymdi sundlaugina. Hann hafði unnið við sundlaugina í fjörutíu ár, allt frá þeim degi er hann hóf þar störf sem húsvörður. Hann kunni að lesa, hann kunni að telja og hann mundi allar bænirnar sem hann hafði lært í trúboðsstöðinni, að maður minnist ekki á heiðarleika hans, hreinlæti og ást á starf- inu. Hvítu mönnunum líkaði við hann. Þeir sögðu alltaf : „Pascoal komdu hingað, Pascoal gerðu þetta.“ Þeir leyfðu honum að líta eftir litlu börnunum sínum, sumir buðu honum með í fótbolta (hann var fínn í marki!), aðrir sögðu honum leyndarmál; þeir fengu líka stundum lánað herbergið hans til leynilegra ástarfunda. Herbergið hans Pascoals var við hliðina á bún- ingsherbergjum karlanna. Hvítu mennirnir klöppuðu á bakið á honum: „Pascoal, eini svarti maðurinn í Angóla með sundlaug í garðinum.“ Svo hlógu þeir: „hvítasti svertinginn í Afríku.“ Þeir sögðu honum brandara um albínóa: „hef- urðu heyrt um höfðingjann sem hélt ræðu á þjóðhátíðardaginn? Já sko, hann fór upp á pall- inn, ræskti sig og sagði: hér í Angóla erum við öll portúgölsk – hvítir, svartir, múlattar og albínóar – öll portúgölsk.“ Svertingjunum líkaði hinsvegar ekki við Pascoal. Konurnar bölvuðu honum, þær hræktu á gólfið þegar hann gekk framhjá eða þóttust ekki sjá hann. Krakkarnir klifruðu yfir girðinguna í dagrenningu og stukku út í sundlaugina. Hann varð að fara framúr á nærbuxunum og reka þau burtu. Einn daginn keypti hann byssu, notaða loftbyssu. Hann fór að liggja í leyni bak við akasíutrén og skjóta á krakkana. Þegar Portúgalarnir fóru vissi Pascoal að nú væri hinu ljúfa lífi lokið. Hann fylgdist dapur í bragði með því þegar skæruliðarnir komu, skot- bardögunum og þegar ruðst var inn í húsin og öllu stolið og allt eyðilagt. En sárast var þegar þeir tóku sundlaugina. Félagi þetta og félagi hitt eins og fólk hefði ekki nöfn. Krakkar, sömu krakkarnir og hann hafði skotið á úr loftbyss- unni sinni, stóðu nú á stökkbrettinu og pissuðu í laugina. Einn góðan veðurdag var svo vatns- laust. Vatnið kom ekki daginn eftir og ekki dag- inn þar á eftir og aldrei aftur. Og sundlaugin fölnaði. Vatnið gulnaði, svo grænkaði það og skyndilega var allt fullt af froskum. Fyrst reyndi Pascoal að stemma stigu við innrás froskanna með því að skjóta á þá úr loftbyssunni. Það virkaði ekki. Því fleiri froska sem hann drap því fleiri froskar voru í lauginni, risastórir glaðværir froskar sem sungu til dagrenningar þær nætur þegar tunglið skein, og kaffærðu með kvaki sínu hundgá og skothvelli. Húsin voru slegin einhverskonar svefnsýki og borgin dó hægt og hægt. Afríka – eða hvað sem má kalla það – tók aftur það sem hún hafði eitt sinn átt. Það var grafið fyrir brunnum í bak- görðunum. Eldar tendraðir í görðunum. Grasið braust í gegnum malbikið, og réðst inn á gang- stéttirnar, veggina, portin. Konur möluðu hveiti á göngunum. Ísskápar voru notaðir til að geyma skó. Píanó voru prýðiskanínubúr. Kyn- slóðir af geitum uxu úr grasi og nærðust á bókasöfnum, afar menningarlegar geitur, eink- um þegar kom að frönskum bókmenntum þótt sumar hefðu meiri smekk fyrir fjármálum eða arkítektúr. Pascoal tæmdi sundlaugina og hreinsaði hana. Hann skrapaði saman öllu sínu fé og keypti hænur. Hann bað sundlaugina afsökunar: „Kæri vinur,“ sagði hann, „þetta er aðeins tímabundið ástand. Ég ætla að selja eggin og kjúklingana og svo kaupi ég gott vatn og ég kaupi klór. Sannaðu til. Þú verður fallegri en nokkru sinni fyrr.“ En næstu dagar reyndust þeir allra verstu. Einn daginn komu hermenn og tóku hænurnar. Pascoal sagði ekki neitt. Hann hefði kannski átt að gera það. „ Þessi albínói heldur að hann sé eitthvað,“ sagði einn sérlega pirraður hermað- ur. „Hann virðist halda að hann sé hvítur. Hann er gervihvítur“. Þeir börðu hann. Þeir héldu að hann væri dauður og skildu hann eftir í sund- lauginni. Nokkrum mánuðum seinna komu fleiri hermenn. Þeim hafði verið sagt að þarna byggi albínói sem ræktaði kjúklinga og þegar þeir fundu enga kjúklinga þá börðu þeir hann líka. Stríðið var skollið á að nýju. Flugvélar vörp- uðu sprengjum á borgina, eða leifarnar af henni, í fimmtíu og fimm daga. Á þrítugasta og sjötta degi féll sprengja á sundlaugina og eyði- lagði hana. Í margar vikur reikaði Pascoal um rústirnar. Dag nokkurn komu þrír menn á Land Rover – einn hvítur, einn múlatti og einn svart- ur – allir í jakkafötum og með bindi. „Þetta var borgarmorð – urbicide,“ sagði múlattinn og sveiflaði til höndunum. Pascoal vissi ekki hvað orðið þýddi en honum líkaði það vel. „Þetta var úrbisæd,“ endurtók hann og enn þann dag í dag, þegar hann hugsar um sundlaugina, veltir hann þessu orði fyrir sér tímunum saman „úr- bisæd“. Her sem samanstóð af afar útlendingslegum hvítum mönnum með bláa hjálma fór með hann til Lúanda einn morgun í dagrenningu og rigningu. Hann var á spítala í tvo daga. Þar var 06 Smás Þegarþeirhandtóku jóla 6.12.2002 14:09 Page 6

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.